Dagblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 4
v
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976,
Bækur hafa ekki hækkað eins mikið og annað:
Vaxandi samkeppni við
aðra af þreyingarmiðla
Segja má að það teljist meðal
þjóðarsiða okkar Islendinga að
gefa bækur til jólagjafa, en nú
fer einmitt sá tími i hönd þegar
bækur taka að streyma á mark-
aðinn.
„Það er næsta ótrúlegt
hversu litlar verðhækkanir
hafa orðið á nýjum bókum,“
sagði Sigriður Sigurðardóttir,
verzlunarstjóri hjá Isafold, í
samtali við DB. „Hækkunin er
að meðaltali um 20% og jafnvel
enn minni í sumum tilfellum.
Nýjar islenzkar skáldsögur
kosta t.d. innbundnar um 2.400
krónur en kr. 1.980 í pappírs
kiljuformi. Barnabækur má
enn fá mjög ódýrar og hafa t.d.
Tinnabækurnar vinsælu
aðeins hækkað um 120 krónur
frá í fyrra, en þær kosta nú kr.
960.-. Ævisögur eru jafnan dýr-
ari en skáldsögur enda oftast
meira til þeirra vandað með
myndum og öðru, og ef nefnt er.
dæmi, þákostat.d. endurminn-
ingar séra Jóns Auðuns kr..
3.840.-“
En því hafa bækur hækkað
svo litið, þegar almennt
verðlag hefur hækkað um 30%
frá sama tíma í fyrra?
örlygur Hálfdánarson bóka-
útgefandi telur þetta merki
sannrar, frjálsrar samkeppni.
„Jafnvel þó bókaútgefendur
eigi með sér gott samstarf, þá
er mikil samkeppni milli þeirra
innbyrðis eins og gefur að
skilja, og eru þeir bókstaflega
verðhræddir," sagði hann.
„Þetta er að sjálfsögðu bót
fyrir kaupendur, en mjög
slæmt fyrir útgefendur, sem
þyrftu að hækka verðið að
miklum mun. Kostnaðarhækk-
unin hefur orðið a.m.k. 30%
svo að hagnaðurinn af bókaút-
gáfu verður sifellt minni. Bók-
in stendur nú í harðnandi sam-
keppni á markaðinum, því svo
margir gjafamöguleikar hafa
komið til og fólk á þess nú kost
V
að finna sér mun fleira til af-
þreyingar en lestur bóka. Þvl
er það I raun og veru nauðsyn-
legt, ef bókaútgáfa á ekki að
leggjast niður hér á landi, að
halda verðinu I lágmarki."
„Það er óhætt að fullyrða að
þessi þjóðarsiður okkar Islend-
inga, að gefa bækur I jóla-
gjöf, sé I rauninni máttarstólpi
og undirstaða bókaútgáfu hér á
landi," sagði örlygur að lokum.
JB
Stiklað á stóru — annað bindi sjáifsævisögu
Gunnars Benediktsssonar:
BYLTINGARSINNAÐUR
KLERKUR SEGIR FRÁ
Um árabil var séra Gunnar
Benediktsson ákaflega umdeildur
maður. Þeim, sem muna aðgerðir
þessa byltingarsinnaða klerks,
hlýtur að vera mikill fengur I
sjálfsævisögu hans. — Annað
bindið, „Stiklað á stóru — frá
bernsku til brauðleysis", kemur
út á jólamarkaðinn. Utgefandi er
Bókaútgáfan Örn og Örlygur.
Á bókarkápu segja útgefendur
m.a. um séra Gunnar: „Frásagn-
argáfa séra Gunnars, hispursleysi
og ritleikni er þjóðkunn. Aldrei
hefur hann verið hreinskilnari og
opinskárri um einkamál sin og
ævikjör en í þessari bók....“.
„Stiklað á stóru“ er 191 blað-
siða að stærð. Bókin kostar 3.450
krónur. -AT-
Stálpípur — Þanar
Tilboð óskast I stálpípur fyrir hitaveitur, þvermál 508
m/m. Heildarlengd er ca 27.200 m.
Þanar fyrir pípurnar, alls ca 175 st.
Útboðsgögn verða opnuð á sama stað föstudaginn 17. des.
nk. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
30 ferm. timburhús
til sölu til brottflutnings.
Hentugt fyrir sumarbústað eða
vinnuhús.
Húsið er fulleinangraö og klætt að
innan.
Uppl. í síma 41640 á daginn og 40250 á
kvöldin.
Kópavogsbúar
Leitið ekki langt yfir skammt.
Allar nýlenduvörur með 10%
lægri élagningu en heimilt er.
Mjög ódýr egg, kr. 400,- kg.
Strásykur í 25 kg sekkjum á 110 kr. kg
Strásykur í 10 kg sekkjum á 112 kr. kg
Við erum í leiðinni að heiman og heim.
VERZLUNIN KÓPAVOGUR
Borgarholtsbraut 6 — Sími 41640
Þetta er ein af myndunum sem prýða bók séra Gunnars,— hér er
hann ásamt syni sinum við samantekt.
Ný Ijóðabók: Tilvistariögmálið:
Fjallað um spádóma
biblíunnar með hliðsjón af
atburðum í nútíð
„Tilvistarlögmálið" nefnist
ljóðabók, sem er nýkomin út. Þar
fjallar höfundurinn, Björn E,
Hafberg, um spádóma biblíunnar
með hliðsjón af atburðum sem
áttu sér stað í Evrópu,
sérstaklega fyrir og eftir seinni
heimsstyröldina. Niðurstaða höf-
undar er sú, að glötunin ein sé
íramundan, verði blaðinu ekki
snúið við.
„Tilvistarlögmálió" er fjórða
bók Björns E. Hafberg. Fyrsta
bók hans kom út árið 1974. Suð
nýjasta er gefin út á kostnað höf-
undar og fjölrituð i Letri. Hún
er 55 blaðsíður að stærð.
-AT-
Endurminningar eiginkonu
neðanjarðarprestsins
Arið 1971 kom út bók, sem
nefndist Neðanjarðarkirkjan og
fjallaði um baráttu rúmenska
prestsins Richards Wurmbrands.
Nú fyrir jólin gefur bókaútgáfan
Örn og Örlygur út endurminning-
ar eiginkonu Wurmbrands,
Sabinu, og nefnist Bókin „Ljós
mér skein“.
I þessari bók segir frú
Wurmbrand frá því, hvernig
bjargföst trú á guð veitti henni
styrk til að lifa af meðferðina.
sem hún hlaut i rúmenskum fang-
elsum. Bókina þýddi Sigurlaug
Árnadóttir frá Hraunkoti i Lóni.
Hún er 211 blaðsiður að stærð og
kostar 2.950 krónur. -AT-
BÓK UM FERÐ LEWIS 0G CLARKS
— til vesturstrandar Bandaríkjanna
Fyrir þremur árum hóf göngu
sina nýr bókaflokkur hjá Erni og
Örlygi, sem nefnist Frömuðir
landafunda. Þriðja bókin i þeim
flokki er nú komln út i þýðingu
Örnólfs Thorlaciusar. Bókin heit-
ir „Lewis og Clark og ferðin yfir
Norður-Ameríku“.
Ritstjóri þessa bókaflokks er
Sir Vivian Fuchs. Hann er löngu
viðkunnur fyrir eigin könnunar-
leiðangra og hefur m.a. farið
þvert yfir Suðurskautið.
Áður hafa komið út hjá Erni og
Örlygi bækur um hnattsiglingu
Maggelans og pólferðir Amunds-
sens og Scotts. Það er Örnólfur
Thorlacius sem hefur umsjón
með bókaflokknum á islenzku.
I verzlunum kostar bókin 2.950
kr.
-AT-
Fjórða Emmu-
bókin er
komin út
— og nefnist Emma
verður ástfangin
Fjórða stúlknabókin um Emmu
er komin út og nefnist „Emma
verður ástfangin“. Fyrri bækurn-
ar nefnast „Emma“,
„Émmusystur", og „Emma spjar-’
ar sig“. Útgefandi þeirra er
bókaiitgáfan Örn og Örlygur.
Það er Iðunn Reykdal, sem hef-
ur þýtt Emmubækurnar. Bókin er
prentuð i Viðey hf og bundin hjá
Arnarfelli hf. „Emma verður ást-
fangin“ kostar 1.690 krónur.
-AT-
UPP Á LÍF
0G DAUÐA
— 9. bók Francis
Cliffords á íslenzku
Hörpuútgáfan á Akranesi send-
ir f-á sér niundu bókina eftir
Francis Clifford. Hún nefndist
„Upp á lif og d.auða“. Skúli Jens-'
son þýddi bókina.
Francis Clifford nýtur mikilla
vinsælda hér á landi fyrir bækur'
sínar. Hanrt hlaut árið 1969 1.
verðlaun Crime Writers’
Association og hefur siðan hlotið
fjölda viðurkenninga.
Prentun og bókband er unnið í
Prentverki Akraness hf. Verð
bókarinnar i bökaverzlunum er
2.520 krónur.
-AT-
KÖNNUN
KYRRAHAFSINS
— nýjasta bókin í
bókaflokknum Lönd
og landkönnun
„Könnun Kyrrahafsins" nefnd-
ist nýjasta bókin frá Erni og Ör-
lygi í bókaflokknum um mann,
kynssöguna frá sjónarhorni land-
könnuða. Flokkurinn heitir Lönd
og landkönnun.
t þessari bók er greint frá
Vasco Nunez de Balbao, sem
fyrstur Evrópumanna leit Kyrra-
hafið augum, fyrstu landnemum á
Kyrrahafseyjunum, hnattsigling-
um, Kyrrahafi nútimans og
mörgu fleiru. Bækurnar í flokk-
inum eru prentaðar í Júgóslavíu,
en annað iðnverk er unnið hjá
Prentstofu C.. Benediktssonar.
Sérlega vel er vandað til útlits
bókarinnar.
Þýðandi „Könnunar Kyrrahafs-
ins“ er Steindór Steindórsson frá
Hlöðum, en Örnólfur Thorlacius
og Hákon Tryggvason hafa
umsjón með islenzku útgáfunni.
Verð bókarinnar er 2.994 krón-
ur.
-AT-