Dagblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976. 5 Lýðræði í framkvæmd á Hornafirði: Nemendur og kennar- ar sömdu um reyk- lausan skóla Heppuskóli, gagnfræðaskól- inn á Höfn í Hornafirði, var byggður árið 1972 og hófst kennsla i húsinu 1973. Þá voru nemendur um 60, eru nú 82. Fyrstu gagnfræðingar frá Heppuskóla voru útskrifaðir 1974. Þá var skólastjóri Heimir Þór Gislason, en nú er Guð- mundur Ingi Sigurbjörnsson tekinn við. Tilefni þessa frétta- korns er ekki að rekja sögu skólans með tilheyrandi nafna- skrám og ártölum, heldur að vekja athygli á lýðræðislegu og réttsýnu fyrirkomulagi, eða öllu heldur samkomulagi milli kennara og nemenda skólans. sem aðrir skólar mættu að skað- lausu taka til eftirbreytni. Tiðni reykinga hjá unglingum hefur aukizt.jafnt á skólatíma sem utan hans. Til að stemma stigu við þessari þróun, þarf skilning allra á vandamálinu og að eitt- hvað sé gert. Þetta gerðu um- ræddir við Heppuskóla sér ljóst. Fundir voru boðaðir og samkomulag gert. Fréttam. Dbl. fór á stúfana eftir upplýs- ingum hjá Guðmundi Inga skólastj. „Við tókum eftir því fljótlega í haust,“ sagði Guð- mundur Ingi,,, að nokkrir nem- endur söfnuðust saman á á- kveðinn stað utan skólans i fri- minútum til að reykja. Þessir nemendur komu oft og einatt of seint i tima og ýmis önnur vandamál sköpuðust út af þessu. Er skólastarfið hófst var nemendaráð stofnað og við köll- uðum ráðið til fundar. Eftir umfjöllun var samkomulag gert um að enginn reykti í eða við skólann á skólatíma, hvorki nemendur né kennarar. 1 þessu samkomulagi fólst nokkur fórn fyrir okkur kennara, sem vor- um vanir að slappa af með kaffisopa og reyk i frímínútum. Nú, eftir V/i mánuð finnum við ekki fyrir þessu og við sjáum að þetta hefur einungis orðið okk- ur til góðs, hvað þá nemendum, sem hafa algjörlega haldið sam- komulagið." Guðmundur Ingi sagði ennfremur, að nú væri fyrirhuguð nafnlaus könnun á þvi hve margir nemendur reyktu, nemendur fylltu út spurningaeyðublað með ýmsum spurningum um reykingar, unnið yrði úr svörunum og eyðublöðin siðan brennd. „Krabbameinsfélagið er eini aðilinn sem fær aðgang að nið- urstöðum könnunarinnar," sagði Guðmundur Ingi. v.v. Nýir topp- menn hjá Sambandinu Hjörtur Hjartar, framkvæmda- stjóri Skipadeildar SlS, mun láta af störfum um næstu áramót. Nú hefur verið ákveðið að Axel Gisla- son, 31 árs verkfræðingur, taki við starfi Hjartar. Hann var áður framkvæmdastjóri skipulags- og framkvæmdadeildar. Við þvi starfi tekur Kjartan P. Kjartans- son sem var yfirmaður Lundúna-! skrifstofu SÍS. Til London ferj Gisli Theódórsson, sem starfað' hefur sem aðstoðarframkvæmda- stjóri Innflutningsdeildar. Axel Gisiason Kjartan P. Kjartansson (íisli Theódórsson Forstjóri ATVR vill minni álagningu ríkið heimtar sitt „Eg hef mælt með þvi að meira hófs verði gætt i álagn- ingu á létt vín en nú er,“ sagði Jón Kjartansson forstjóri ATVR á fundi með blaðamönn- um i fyrradag. „Við erum hér i landi sem ekki selur áfengt öl og því ætti fremur að stuðla að þvi að drukkið væri létt vin í stað sterkra drykkja," sagði Jón. Hann gat þess einnig að á tslandi væri hlutfall neýttra drykkja mjög i hag sterkum drykkjum miðað við það sem væri á öðrum Norðurlöndum. „I Sviþjóð t.d.“ sagði Jón „auglýsir einkasalan mjög sterklega notkun léttra vina i stað hinna sterku. Ég veit ekki hvert upplit yrði á mönnum ef ÁTVR tæki upp á þvi að auglýsa létt vin.“ Á íslandi er álagning á létt vin mun lægri en á hinum sterku. Er miðað að þvi, eins og málin standa nú, að ná i ríkis- kassann um 700 krónum af hverri léttvínflösku en um 3.500 kr. t.d. af hverri vodka- flösku. Tiliögur Jóns Kjartans- sonar um lægri álagningu á létt vin hafá ekki hlotið hljóm- grunn ráðamanna enda gera þeir sem semja fjárlög mjög miklar kröfur til ÁTVR um tekjuöflun fyrir ríkiskassann. Er áfengið i augum ráðamanna um verðlag þess jafn örugg tekjulind og fjárfesting i stein- steypu hefur verið á undan- förnum óðaverðbólguárum. -ASt. Símar 23636 og 14634 Til sölu Einstaklingsíbúð við Laugaveg 2ja herbergja íbúð við Laugarúsveg 3ja herbergja risíbúð í Bústaðahverfi 4ra herbergja íbúð mjög vönduð við Æsufell 4ra herbergja íbúð við Brúvallagötu Raðhús og einbýlishús í Mosfellssveit, eigna- skipti möguleg. Sala og sammip' Tjarnarstíg 2, Seltjarnar- nesi, kvöldsími sölumanns 23636. Valdimar Tómasson, viðskiptafræðingur, lög- giitur fasteignasali. Spariskírteini og vegahappdrættis- skuldabréf óskast. Allir árgangar koma til greina, Seðla- bankaverð. Fyrirgreiðsluskrifstofan/ verðbréfasala Veslurgölu 17. sími 16223. Þor le i f u r Guöm u ndsson. simi 12469. Síö brjóstahöld frá Profile, b, c og d skál Skálmabuxur í litlum og stórum númerum Úrval af undirkjólum Verzlunin MADAM Glæsibæ - Sími 83210 Nýr fastur blaðauki í miðri viku. Fjórar blaðsíður af skemmtilegum þrautum og heilabrotum. Þrjár verðlaunaþrautir, þar af ein sérstaklega fyrir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.