Dagblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1976. 7 Aftökur íKína Svo virðist sem maður nokkur hafi verið tekinn af lífi fyrir að krota á veggspjöld i borginni Changsha í Kína. Á spjöldunum var greint frá skipun Hua Kuo-feng i em- bætti formanns kommúnista- flokksins. Ferðamenn sem komu til Peking hafa greint vestrænum fréttamönnum frá því að skýrt hefði verið frá þessu í til- kynningarspjöldum yfirvalda í borginni. Þess hefði einnig verið getið að „ungur maður“ hefði reynt að koma í veg fyrir að maðurinn krotaði yfir nafn Hua á veggspjöldunum. Svo virðist sem maðurinn hafi neitað að iðrast gerða smna fyrir yfirheyrslur og var hann þá dæmdur til dauða fyrir andbyltingarstarfsemi. Hua, sem tók við embætti Mao formanns í fyrra mánuði, kom fram ásjónarsvið í stjórn- málum landsins sem stjórn- andi Changsha-borgar, en hún er hofuðborg fæðingarhéraðs Maos, Hunant. Þá segja ferðamenn að tilkynnt hafi verið að kona hefði verið liflátin fyrir að stunda vændi, sem þar gengur undir nafninu „glæpir kynj- anna tveggja“. Hafði hún auk þesá barið ömmu sína sem hvatt hafði hana til þess að „hætta að selja sig til kyn- ferðislegra nota“. Kínverjar sprengja f jögur megatonn Stjórnvöld í Kína hafa tilkynnt að sprengd hafi verið vetnis- sprengja þar í landi og að með þvf hafi kjarnorkuvopnabúr þeirra „risið í nýjar hæðir“. Samkvæmt fréttum úr Dag- blaði alþýðunnar, sem vitnuðu í fréttir fréttastofu Nýja Kína, var ekki farið út í tækniatriði vegna sprengjunnar sem er hin fjórða á þessu ári. í fréttum frá Bandaríkjunum segir hins vegar að hér hafi verið um fjögurra megatonna sprengju að ræða, sem er hin stærsta sem Kínverjar hafa sprengt til þessa. Eitt megatonn er samsvarandi milljón tonnum af TNT. Gary Gllmore: Reyndi sjálfs- morð á ný Hinn dauðadæmdi morðingi, Gary Gilmore, sem krafizt hefur þess að hann verði tekinn af lífi! reif lausar næringarleiðslur af handleggjum sínum í gær og segja læknar að það kunni að hafa verið önnur tilraun hans á einum sólarhring til þessa að svipta sig lífi. Talsmaður sjúkrahússins sagði hins vegar að ekki sé ljóst hvort hann reyndi að fremja sjálfsmorð enn einu sinni. Gilmore er á sjúkrahúsi eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af lyfjum. Unnusta hans gerði slíkt hið sama í íbúð sinni í Salt Lake City. „Hann hefur ekki getað skaðað — verður nú fluttur i fangelsi sig mikið með þessu,“ sagði talsmaður sjúkrahússins og bætti því við, að Gilmore yrði bráðlega fluttur til fangelsisins á ný. Unnusta hans, Nicole Barrett, er enn milli heims og helju eftir sjálfsmorðtilraun sína og er ekki vitað, hvort hún heldur lífi. Gary Gilmore: > , Reyndi hann að svipta sig lifi enn einu slnni? Veröa drykkjuveizlur bannadar hjá Sameinuöu þjóöunum? Sendiherra Vestur-Þjóðverja hjá Sameinuðu þjóðunum, Rudiger von Wechmar barón, lagði fyrir skömmu fram tillögu í höfuðstöðvum samtakanna og minnast menn þess ekki að nokkur tillaga hafi valdið eins miklu fjaðrafoki. Hvatti hann til þess að alþjóðaþingið legði blátt bann við matarveizlum sendiráða, hanastélssamkvæmum og öðrum matarboðum á þeim grundvelli, að þau væru heilsu- spillandi og drægju verulega úr vinnuþreki þingfulltrúa. Tillöguna lagði hann fram í viðeigandi umhverfi: Matar- veizlu þar sem á borðum voru m.a. heilsteiktar endur og humar. Arásin á Intercontinental: VARIRAKSSTJORNIVITORÐI MEÐ MANNRÆNINGJUNUM! Jórdaníumenn hafa nú ásakað írani um að hafa skipu- lagt árás fjögurra skæruliða Palestínumanna á Intercontin- ental-hotelið í Amman, en í bardaga er brauzt út í lok umsátursins létu sjö manns lífið í opinberri tilkynningu sem gefin var út vegna atburðarins, segir að skæruliðarnir fjórir hafi ráðizt inn í hótelið og tekið 150 gesti sem gísla í stutta stund áður en til bardaga kom milli öryggissveita, þar sem þrir skæruliðanna féllu, auk fjögurra annarra. Segir enn- fremur í tilkynningunni að skæruliðarnir hafi verið frá landsvæöum Araba, sem israelsmenn ráða yfir. Þá segir í tilkynningu jórdanska yfirvalda að fjórði skæruliöinn, sem lifði bardag- anna af, illa særður, hafi borið vitni um það að þeir hafi verið þjálfaðir til hermdarverjta með skæruliðasveitunum i Irak og með samþykki stjórnar landsins. Líður „Ungfrú Alheimur” undir lok? Búizt við mótmæl- um vegna tveggja keppenda frá Suður-Afríku fegurðardrottning, sagði í gær- kvöldi, að hún óttaðist að til ein- hverra mótmælaaðgerða kynni að koma. Sjö stúlkur af 69 þátttakendum hafa þegar lýst því yfir að þær muni ekki taka þátt í úrslitunum, vegna þess að tveir fulltrúar eru frá Suður-Afríku, annar hvitur, en hinn svartur. Morey hefur kvartað yfir þvi að „þessi sjúkdómur geti borizt út og ég veit ekki hvar þetta endar. Ég get ekki útilokað þann möguleika að stúlkurnar gangi allar út í beinni sjónvarpsútsendingu til þess að mótmæla afstöðu stjórn- valda í Suður Afríku.“ Búast má við því að keppnin um titilinn „Ungfrú Alheimur árið 1976“, kunni að verða vett- vangur mikilla mótmæla í kvöld og jafnvel ætla menn að þel- dökkar fegurðardísir muni ganga af sviðinu í miðri sjónvarpsút- sendingu til þess að mótmæla þátttöku ungfrú Suður-Afríku í keppninni um titilinn. Aðalskipuleggjandi keppninn- ar, Julia Morley sem eitt sinn var Ungfrú Alheimur frá því í fyrra: Ganga allar stúlkurnar út í kvöld?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.