Dagblaðið - 18.11.1976, Qupperneq 6
6
DACBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976.
Nýjar uppljóstranir í rannsókn Kennedymorðsins:
Vissi FBI um ætlun Oswalds?
Svo virðist sem Fidel Castro,
forsætisráðherra Kúbu, hafi vitað
um fyrirætlanir Lee Harvey.
Oswalds um að ráða Kennedy
Bandaríkjaforeta af dögum, ef
marka má seðil nokkurn er J.
Edgar Hoover yfirmaður alríkis-
lögreglunnar reit skömmu eftir
morðið. Segir ennfremur, að
Hoover hafi sent Warren-
nefndinni bréfið 17. júní árið
1964, en þá stóð rannsókn málsins
sem hæst.
Samkvæmt heimildum Reuters-
fréttastofunnar segir ennfremur
að FBI hafi komizt að því, rúmum
sjö vikum fyrir morðið í Dallas, að
það væri fyrirhugað og að Oswald
yrði morðinginn.
Mikil leit hefur nú verið gerð
að bréfi þessu af aðilum í rann-
sóknarnefnd þingsins um banatil-
ræði sem vikið er að annars staðar
hér á síðunum. Sagt er einnig að
Castro hafi stutt fyrirætlanir
Oswalds vegna margendurtek-
inna tilrauna Bandaríkjastjórnar
til að ráða hann sjálfan af dögum.
Ekki hefur verið vitað um seðil
þennan fyrr en nú og Warren-
nefndin minntist aldrei á hann,
enda komst hún að þeirri niður-
stöðu, að Oswald hefði verið einn
að verki.
Rannsóknin á Kennedy-moröinu:
VITNIKVODD FYRIR
RÉn MEÐ DÓMI
Erlendar
fréttir
Rannsóknarnefnd bandaríska
þingsins hefur nú fengið þeirri
kröfu sinni framgengt að nokkur
vitni í sambandi við morðin á
John F. Kennedy og Martin
Luther King verði látin bera vitni
fyrir rétti.
Richard Sprague, formaður sér-
stakrar rannsóknarnefndar um
banatilræði sem sett var á lagg-
irnar af fulltrúadeild þingsins,
sagði að nefndin hefði krafizt
þess að „töluverður fjöldi" manna
verði leiddur fyrir rétt, en vildi
ekki segja hvernir þeir væru.
Samkvæmt heimildum er talið
að flest verði vitnin úr röðum
starfsmanna bandarísku alrikis-
lögreglunnar og leyniþjónust-
unnar, CIA, auk annarra emb-
ættismanna er höfðu með rann-
sókn þessara morðmála að gera.
Ákvörðunin um dómkvaðningu
þessa kom eftir daglangar vitna-
leiðslur fyrir nefndinni, sem m.á.
fékk að sjá litmyndir af sönnunar-
gögnum varðandi morðið á Martin
Luther King árið 1968.
Rannsóknarnefnd þingsins var
sett á laggirnar í vor eftir að
sérstök rannsóknarsveit öldunga-
deildarinnar skýrði frá því að FBI
og CIA hefðu ekki látið Warren-
nefndinni í té öll gögn varðandi
málið er hún vann að rannsókn
morðsins á Kennedy forseta árið
1963.
E.nn eru að berast fréttir af
nýjum uppljóstrunum i sam-
bandi við rannsókn morðsins á
Kennedy forseta.
MIKIL OLÍUMENGUN FINNST
Á BOTNINORDURSJÁVAR
Nórðmenn hafa fyrirskipað
tveimur erlendum olíufyrir-
tækjum, Esso og Elf, að fjar-
lægja tafarlaust alls kyns
óhreinindi sem þau skildu eftir
sig eftir boranir á einum
auðugustu fiskimiðum i
Norðursjónum, að sögn tals-
manns ríkisstjórnarinnar.
Frederik Hagmann, for-
maður umsjónarnefndar olíu-
vinnslu við Noregsstrendur,
sagði fréttamönnum fyrir
skömmu að ýmis óhreinindi
hefðu sézt á botni á Patch-
bankans, enda þótt fyrirtækin
tvö hefu talið sig geta tryggt að
öll óhreinindi, sem orðið hefðu
eftir við olíuboranir þeirra á
árunum 1967-68, hefðu verið
fjarlægð.
Rannsóknir nefndarinnar og
Sjávarbotnsstpfnunar Noregs,
sem notuðu sjónvarpsmynda-
vélar við verk sitt, sýndu hins
vegar að alls kyns óþverri og
drasl lægi á hafsbotninum.
,.Um slíkt gilda mjög
ákveðnar reglur sem báðum
fyrirtækjunum var kunnugt
um,“ sagði Hagmann ennfrem-
ur.
Sagði hann að ' efið væri að
íhuga málsókn á hendur fyrir-
tækjunum.
AIls kyns drasl liggur nú á
hotni Norðursjávar eftir oliu-
horanir alþjóðafyrirtækja.
Hafa sjómenn orðið fyrir miklu
veiðarfæratjóni af völdum
þessa og íhugar norska
rikisstjórnin nú mátsóku.