Dagblaðið - 18.11.1976, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976
ALDREIGLÆTA HJA
ENGLANDI í RÓM!
— Italía sigraði England 2-0 í Rómaborg
„Tap hér í Róm eru mér mikil
vonbrigði. Við komum hingað í
von um jafntefli, jafnvel sigur,“
sagði Don Revie framkvæmda-
stjóri Englands eftir ósigur Eng-
lendinga í Róm 0-2. ítalir höfðu
töglin og hagldirnar í leiknum og
áttu Englendingar sér aldrei við-
reisnar von eftir að Italir höfðu
náð forustu með marki
Antognioni.
.Jín þrátt fyrir tap,“ hélt Revie
áfram, „er ég ánægður með
frammistöðu ensku landsliðs-
mannanna. Þeir börðust allan
tímann mjög vel og við vorum
óheppnir að fá á okkur fyrra
markið. Knötturinn fór af fæti
Keegan og breytti stefnu þannig
að Clemence réð ekki við skotið.
En þrátt fyrir tap munum við
ekki gefast upp heldur halda bar-
áttunni áfram."
Já, ítalir léku sannarlega vel og
langtímum saman komu Englend-
ingar ekki við knöttinn. En vörn
Englands var þétt — fram að
fyrra markinu. Roy McFarland
braut á Franco Causio og aúka-
spyrna var dæmd. Hann tók
spyrnuna sjálfur, sendi á
Antognini sem skaut föstu skoti
að marki Englands. Knötturinn
kom við Kevin Keegan, breytti
stefnu og í netmöskvunum
hafnaði hann við óstjórnleg fagn-
aðarlæti áhorfenda. Hinir 85 þús-
und áhorfendur stóðu sannarlega
að baki sínum mönnum.
Italir bættu síðan við öðru
marki í síðari hálfleik, á 78. mín-
útu og var sérlega fallega unnið
að markinu. Roberto Bettega,
einn skæðasti sóknarmaður
Evrópu, skallaði glæsilega í netið
eftir sendingu fyrir markið.
Englendingar voru sigraðir af
sér mun betra liðið. Ahnars var
leikurinn alls ekki vel leikinn.
Mikið bar á taugaóstyrk, sérstak-
lega af hálfu Englendinga og á
köflum var vart heil brú í leik
þeúra. Með þessum sigri sínum
hafa möguleikar Itala aukizt mjög
— en erfiðir leikir I Finnlandi
eftir. Það ætti ekki að verða
hinum léttleikandi ofraun að
sigra í Finnlandi ef dæma má
eftir leik þeirra í gærkvöld.
Staðan i riðlinum er nú:
Ítalía 2 2 0 0 6-1 4
England 3 2 0 1 6-4 4
Finnland 3 1 0 2 9-7 2
Luxemburg 2 0 0 2 2-11 0
Jafntefli í Dresden
— A-Þýzkaland náði aðeins jafntefli gegn Tyrkjum 1-1
A-Þjóðverjar urðu fyrir miklu
áfalli í undankeppni HM í gær-
kvöld er Olympíumeistararnir
náðu aðeins jafntefli gegn
Tyrkjum og það á heimavelli — í
Dresden. Þrátt fyrir að Þjóðverj-
ar hafi átt allan leikinn þá gekk
þeim illa að ráða við Tyrkina, sem
léku mjög sterkan varnarleik.
Þrátt fyrir aðeins jafntefli þá
fengu Þjóðverjar sannkallaða
óskabyrjun. Þegar á 3. mínutu lá
knötturinn í neti Tyrkjanna.
Kotte komst í sendingu ætlaða
markverði Tyrkjanna, Senol.
Senol brá Kotte ög honum urðu
ekki á nein mistök í vítaspyrn-
unni.
En Tyrkir gáfust ekki upp — á
31. mínútu skoraði Cemii leik-
maður Trabzonspor. Þeir sem sáu
Cemil leika hér á Laugardalsvell-
inum hrifust af hraða hans og
leikni. Tyrkir fengu dæmda víta-
Sigur Skota
á Hampden
— Skotar sigruðu Wales 1-0 á
Hampden Park í Glasgow
Skotland sigraði Wales 1-0 á
Hampden Park í Glasgow í gær-
kvöld. Yfirburðir Skotlands voru
miklir en illa gekk að brjóta
niður sterka vörn Wales — og
raunar var eina mark leiksins
sjálfsmark Ian Evans á 15.
mínútu fyrir hálfleiks.
Sigur Skota var sanngjarn en
þó kom berlega í ljós að liðið á við
erfiðleika að stríða — að skora
mörk. Hvað eftir annað komust
leíkmenn Skotlands í góð mark-
tækifæri en brást bogalistin.
Ein mark leiksins kom á 15.
mínútu fyrir hálfleiks. Kenny
Dalglish hjá Celtic skaut föstu
skoti að marki Wales. Knötturinn
fór í Ian Evans hjá Crystal Palace
og framhjá Dai Davies í marki
Skota. Wales lék illa í fyrri hálf-
leik og þrívegis heimtuðu áhorf-
endur vítaspyrnu, en ágætur
dómari leiksins veifaði í _ hvert
sinn áfram.
Wales lék mun betur í síðari
hálfleik en þrátt fyrir það höfðu
Skotar ávallt undirtökin og tví-
vegis small knötturinn i stöngum
Wales. Asa Hartford hjá Man-
chester City átti gott skot en rétt
framhjá. Dalglish komst í mjög
gott færi en brást illa, skaut yfir.
Allt kom fyrir ekki og litlu
munaði. að John Toshak skoraði
fyrir Wales en Ross í marki Skota
varði vel. "
Löndin eru með Tékkum í riðli,
en þeir eru sigurstranglegasta
liðið í riðlinum. Staðan I 7. riðli er
nú:
Tékkóslóvakía 2 1 0 0 2-0 2
Skotland 2 10 11-22
Wales 10 0 10-10
spyrnu á 31. mínútu — Cemil
framkvæmdi sp.vrnuna. Jurgen
Croy, sem lék sinn 75. landsleik,
varði en knötturinn féll fyri
fætur Cemils og honum urðu ekki
á nein mistök, 1-1.
Það sem eftir var leiksins var
látlaus sókn að marki Tyrkja en
þeir vörðust vel — leiknir leik-
menn sem oft hrifu áhorfendur.
Með jafnteflinu i Dresden hafa
Tyrkir tekið forustu í riðlinum,
en þeir höfðu áður sigrað Möjtu
4-0. Þetta var fyrsti leikur A-
Þjóðverja í riðlinum en að auki
eru Austurríkismenn í sama riðli.
25. Evrópu-
leikur FH
- FH leikur í kvöld við Slask Wroclaw
íslandsmeistarar FH leika i
kvöld fyrri leik sinn gegn pðlsku
meisturunum Slask Wroslow í
Geir Hallsteinsson — hann
verður Pólverjunumerfiðuref að
líkum lætur.
kvöld. Enginn efar að íslands-
meistaranna bíður erfið raun,
Pólverjar hafa á að skipa
frábærum handknattleiksliðum
og Slask hefur verið sterkasta lið
Póllands undanfarin ár.
En hitt er jafnljóst að FH á að
geta sigrað pólsku meístarana.
FH hefur á aö skipa leikreyndu
liði, leikmönnum sem leikið hafa
fjölda Evrópuleikja. Með þá Geir
Hallsteinsson og Viðar Símonar-
:son í fararbroddi eiga FH-ingar
að geta náð sigri. Auðunn Óskars-
son mun leika sinn fyrsta leik í
rúmlega tvö ár í kvöld en þessi
sterki varnarmaður mciddist í
HM í Frakklandi og hefur ekki
leikið síðan með liði sínu. Ekki er
að efa að Auðunn verður FH
styrkur og vel hvattir af
áhorfendum eiga FH-ingar góða
möguleika.
Leikurinn í kvöld hefst kl.
20.00 í Laugardalshöllini j.
RITSTJÖRN:
HALLUR
SiMONARSON
V-Þjóðverjar
sigruðu Tékka
Heimsmeistarar V-Þýzkalands
sigruðu Evrópumeistara Tékka í
Hahnover 2-0 í gærkvöld. Þar með
hefndu Þjóðverjar tapsins í
Belgrad — þegar Tékkar sigruðu
þá á vitaspyrnukeppni og tóku
Evrópumeistaratitilinn.
Tékkar sem ekki, höfðu tapað
landsleik í 2 ár ' áttu aldrei
möguleika gegn frábærum V-
Þjóðverjum, sem léku sannarlega
eins og heimsmeisturum sæmir.
Heins Flohe skoraði stórglæsilegt
mark á 17. minútu í fyrri hálfleik
— 1000. mark V-Þýzkalands. Eric
Beer bætti síðan við öðru marki
Þjóðverja með góðu skoti frá
vítateig. Fleiri urðu mörkin ekki
— en aldrei fór á milli mála hvort
liðið var sterkara,
hcimsmeistararnir höfðu ávallt
undirtökin þrátt fyrir að Tékkar
sæktu nokkuð í síðari hálfleik.
WBA kaupir
Cross
Johnny Giles hefur fest kaup á
David Cross frá Coventry fyrir
140 þúsund pund. Cross er dýrasti
leikmaður sem Giles hefur keypt
fyrir félag sitt — WBA — frá því
hann tók við framkvæmdastjórn
en hann hefur ver-ið á höttunum
eftir sóknarleikmanni. Giles mis-
tókst að kaupa Paul Marines frá
Plymouth — sem kaus Ipswich
frekar.
David Cross neitaði að fara til
West Ham sem vildi kaupa hann.
Honum leizt ekki á stórborgina
Lundúnir — kaus heldur að vera
áfram í Miðlöndunum.
Sigur Frakka
í París
Frakkar sigruðu íra 2-0 í París
í 5. riðli HM í gærkvöld. Leikur-
inn þótti ekki vel leikinn og
raunar gerðu írar sig seka um
slæm mistök sem kostuðu þá tvö
mörk — og sigur Frakka var í
höfn.
Fyrri hálfleikur var ákaflega
slakur, heimamenn náðu sér
aldrei á strik og fór það í skap
leikmanna. Frakkar tóku sig
saman í leikhléi og í síðari hálf-
leik virtist sem allt annað lið væri
inni á vellinum. Þegar á 3. mínútu
skoruðu Frakkar — sending var
ætluð Arsenal leikmanninum
O’Leary inn í hans eigin vítateig.
O’Leary náði ekki knettinum og
Michel Platini þurfti aðeins að
ýta honum yfir marklínuna.
Síðara markið kom aðeins
tveimur mínútum fyrir leikslok
— þá var Bathenay að verki með
góðuskoti.
Staðan í riðlinum er nú:
Frakkland 2 110 4-23
Búlgaría 10 112-22,
írland 10 0 1 0-2 0
Torino sektað
ítalska liðið Torino hefur nu
fengið að gjalda hinnar slæinu
hegðunar leikmanna liðsins í
Evrópuleik við v-þýzka iiðið
Borussia Mönchengladbach. - Þá
voru þrír leikmenn ítalska liðsins
reknir af leikvelli — þeir
Luciano Castátelli, en hann var
settur í fjögurra leikja bann,
Renato Zaccarelli, fékk 3 leikja
bann og Vittorio Caporale fékk
tveggja leikja bann.
Torino var auk þess sektað um
7.5 milljópir króua. Borussia
Möni’heöfládbach sigraði Torino
samanlágt 2-1,, á Italiu 2-1 og
ger^i ya^íitiflLhéima 0-0. Þessi
' ■selít er hirj,1i»éta siðan 1974 er
•Attetlco.Madrid fékk sömu sekt.
” *r-