Dagblaðið - 03.02.1977, Page 15

Dagblaðið - 03.02.1977, Page 15
ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 1977. f Cops and Robbers: 15 LOGREGLAN SNYR SER AÐ AFBROTUM Kvik myndir Tom og Joe glíma hér við þann vanda að kjafta sig inn fyrir öryggisdyr kauphallarinnar. Vegna trausts manna á lögreglubúningnum tekst þeim ætlunarverkið og allir eru þess fullvissir að þar séu dulbúnir bófar á ferð. Tónabíó: Cops And Robbers (Lögreglumenn á glapstigum) Framleiðandi: Elliott Kastner Leikstjóri: Arman Avakian Afialhlutverk: Cliff Gorman, Joseph Bol- ogna. Lögreglumennirnir Tom (Cliff Gorman) og Joe (Joe Bologna) eru orðnir nokkuð gamlir í starfi og þjálfaðir eftir því. Þeim er ljós sú staðreynd að vegna starfs síns hafa þeir allra manna bezta aðstöðu til að fremja auðgunarbrot og þeir grípa tækifærið. Þeir velja sér verkefni sem er ekki af verri endanum; þeir hyggjast ræna handhafaskulda- bréfum úr kauphallarbygging- unni í New York, að verðmæti tíu milljóna dollara. Til að koma ránsfengnum í verö hafa þeir samband við kunnan mafíuleiðtoga. Hann lofar að greiða þeim tvær milljónir fyrir viðvikið og þó að hann hafi peningana ekki handbæra, er hann þess fullviss að hann þurfi aldrei að greiða ræningjunum þessa upphæð. Ránið tekst eftir margs konar erfiðleika sem lýst er í mynd- inni á langdreginn og þreytandi hátt. Fregnir um það berast mafíósanum í fjölmiðlum og steinhissa á ráðsnilld lögreglu- mannanna fer hann að safna fé handa þeim. Eftirleikurinn — afhending skuldabréfanna — er álíka langdreginn og fyrri hlutinn en ASGEiR TÓMASSON þó með dálítilli spennu. Ahorf- endum sem ekki vita með hvorum aðilanum þeir eiga að hafa samúð, er haldið í óvissu um hvorir muni sigra að lokum, lögreglumennirnir tveir eða mafían. Lögregian sjálf spilar þarna enga rullu. Ég minnist þess ekki að hafa áður séð neina kvikmynd þar sem lögreglan og glæpa- menmrnir eru sömu per- sónurnar. Vegna óvana veit enginn með hverjum hann á að halda og ég hygg að öllum bíó- gestum hafi verið líkt farið og mér, að þeir hafi beðið eftir því með óþreyju fram á síðustu stundu að lögreglan kæmist á spor skuldabréfaþjófanna. Kvikmyndin Cops and Robb- ers er kveljandi langdregin en að henni lokinni vildi maður þó ekki hafa látið hana óséða. Þrátt fyrir galla sína hvetur hún til umhugsunar um að- stöðumun lögreglumanna og hins almenna borgara. Þar ættu lögreglumenn að hafa undir- tökin. -AT- ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MALNING - ÚTSALA - MÁLNING 1200 krónur Þetta er verð á galloni af hvítri plastmálningu nú næstu daga. Stórlækkað verð til hagræðis öllum þeim sem eru að BYGGJA BREYTA eða BÆTA Lftið við í Litaveri — það borgar sig Hreyfiishúsinu, Grensásvegi 18 ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.