Dagblaðið - 13.06.1977, Síða 10
10
Útgofandi Dagblaðið hf.
Framkvnmdastjóri: Svainn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristiánsson.
Fréttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar:
Jóhannes Raykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aðstoðarfróttastjóri: Atli Stainarsson. Safn: Jón
Saavar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson.
Biaðamenn: Anna Bjarnason, Asgair Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stafónsdóttir, Gissui
Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob F. Magnússon, Jónas Haraldsson, Katrin
Pólsdóttir, ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson, Ragnar Lór.
Ljósmyndir: Bjamlaifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjólmsson, Svainn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þróinn Þorieifsson. Draifingarstjóri: Mór E.M.
Halldórsson.
Ritstjóm Síðumúla 12. Afgraiösla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrifstofur Þvaifiolti 11.
Aðalsimi blaðsins 27022 (10 Ifnur). Áskrift 1300 kr. ó mónuði innanlands. i lausasölu 70 kr.
aintakið. I
Satning og umbrot: Dagblaðið og Staindórsprant hf. Ármúla 5.
Mynda og plötugerö: Hilmirhf. Sfðumúla 12. Prantun: Árvakur hf. Skaifunni 19.
Gróðinn
Ársuppgjör ýmissa fyrirtækja, /Jj
sem hafa verið birt síðustu vikur,
sýna að mikill gróði hefur safnazt.
Þetta er frábrugðið því sem var
árin á undan, þegar víða var tap.
Nú er talsverður hagnaður til
staðar, sem þær kauphækkanir,
sem nú er að stefnt í kjarasamningunum og
verða sennilega innan við tuttugu þúsund
krónur í hækkun þegar í stað, ættu ekki að
eyða.
Rekstrarhagnaður Flugleiða varð til dæmis
um 462 milljónir, eftir að fullt tillit hafði verið
tekið til afskrifta og fjármagnskostnaðar.
Nokkrum dögum seinna var upplýst á aðal-
fundi Eimskipafélagsins, að hagnaður þess
hefði orðið rúmlega 63 milljónir en árið áður
nam tapið 17 milljónum. Afskriftir af eignum
Eimskipafélagsins, sem búið var að taka tillit
til, námu á síðasta ári 704 milljónum. Saman-
lagður hagnaður þessara tveggja lykilfyrir-
tækja nam því 525 milljónum.
Nú skipti sköpum hjá álfélaginu. Hagnaður
af rekstri álversins varð 9,4 milljónir, eftir að
rúmlega 271 milljónhafði verið greidd í fram-
leiðslugjald. Árið áður hafði verið 984 milljóna
halli á rekstrinum. Athyglisverð breyting á
stöðunni varð hjá einu stórfyrirtækinu enn,
Álafossi. Fjárhagslega varð þetta bezta ár hjá
því fyrirtæki, síðan skipulagsbreytingar voru
gerðar árið 1968. Hreinn hagnaður varð 54
milljónir, eftir að reiknað hafði verið með
afskriftum. Hagnaðurinn meira en tvöfaldaðist
frá árinu áður.
Bankarnir hafa að undanförnu birt ársupp-
gjör sín, sem sýna mörg hundruð milljóna
hagnað.
Veltan hjá KRON varð 1,3 milljarðar og jókst
um þrjátíu af hundraði. Hagnaðurinn varð
tæpar sex milljónir að loknum afskriftum. Sam-
vinnutryggingar skiluðu um 82 milljónum í
hagnað. Stjórnendur Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri komust að þeirri niðurstöðu, að reksturinn
hefði borið sig svo miklu betur en árið áður, að
þar munaði 64 milljónum. Hreinn hagnaður
Slippstöðvarinnar nam 7,8 milljónum.
Þannig mætti lengi rekja dæmi, sem sýna
miklu betri afkomu fyrirtækja á síðasta ári en
árið á undan. í þeim fáu fyrirtækjum, sem hér
hafa verið nefnd, hefur hagnaðurinn verið
langt yfir milljarð.
Jafnframt berast fréttir um stórhækkað verð
á útflutningsvörum okkar á Bandaríkjamark-
aði.
Menn óttast hins vegar, að verðbólga í kjöl-
far kjarasamninga kunni að breyta afkomu
fyrirtækja að nýju til hins verra. Það er hagur
jafnt launþega sem atvinnurekenda, að fyrir-
tækin í landinu beri sig þokkalega.
En þær háu tölur, sem hér hafa verið
nefndar, sýna, hversu fáránlegt og háskalegt
það væri, ef samningamennirnir á Hótel Loft-
leiðum keyrðu kjaradeiluna út í langvarandi
verkföll út af einhverjum þúsundkalli eða svo í
kauphækkunum.
Þessi þúsundkall skiptir ekki sköpum hvorki
fyrir afkomu verkafólks né fyrirtækin.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JUNl 1977.
Sömuleiðis er hægt að færa fólki góðar fréttir, sé HDL-magnið nóg.
Athæfi
fjöldamorðingja
kannað
helmingi meira en í fólki yfir-
leiu. Svipaðar mðurstöður hafa
fengizt hjá vísindamönnum
sem fylgdust með völdum hópi
fólks í Svíþjóð og á Hawaiieyj-
um.
Hœgt er að gefa
fólki róðleggingar
fyrr en óður
Af þessu leiðir að fólki með
mikla blóðfitu þarf ekki endi-
lega að vera hætt við hjarta-
slagi — ef fitan inniheldur
nægilega mikið af HDL. Þessi
vitneskja þykir bændum ef-
laust góð því að mjólk og smjör
eru þá ekki lengur á bannlist-
anum sem hjartasjúklingar
verða að forðast er þeir velja
sér fæðutegundir.
Vísindamenn eru enn að
vinna úr vitneskjunni sem
fékkst í Framingham. Þeir
leggja áherzlu á að nú sé þó
hægt að vara sjúklinga við í
tima sé mikið af LDL f blóðfitu
þeirra. Einnig sé hægt að flytja
góðar fréttir sé nóg af HDL f
fitunni. Margn spurningunni
er þó enn ósvarað og leyni-
lögregluliðið, sem minnzt var á
í upphafi, á miklu verki enn
ólokið í Framingham.
Röngu matarœði er
oft um að kenna
Mikilvægt efni, sem veitir
fólki mótstöðuafl gegn hjarta-
áfalli, er það sem læknar kalla
HDL og er ákaflega þétt fitu-
tegund í blóðinu. Það sem
meira er — allir hafa mikið
magn af HDL er þeir fæðast.
Talið er fullsannað að um helm-
ingur blóðfitu nýfæddra barna
sé HDL, þannig að móðir nátt-
úra gerir sitt bezta til að vernda
fólk gegn hjartaslagi. Því
miður fer þetta efni ört minnk-
andi eftir því sem við eldumst,
aðallega vegna rangs matar-
æðis.
En fita kemur í fitu stað. I
stað þéttu HDL-fitunnar kemur
önnur lausari í sér. Á lækna-
máli nefnist hún LDL og hún er
sökudólgurinn.
„I átta ár gerðum við rann-
sóknir á hópi karla og kvenna,“
segir dr. William P. Castelli,
yfirmaður rannsóknarstofunn-
ar i Framingham. ,,t upphafi
Hjartaaðgerð í Framingham. Þetta er siðasta úrræðið þegar matar-
kúrar duga ekki.
Siðastliðin átta ár hefur
óvenjulegt lið leynilögreglu-
manna verið að störfum í smá-
bænum Framingham í Banda-
ríkjunum. Þeir eru að rekja
slóð morðingja sem velur sér
helzt ekki yngri fórnarlömb en
fertug. Morðingi þessi hefur á
samvizkunni að stytta um það
bil einni milljón manna aldur
árlega, — í Bandaríkjunum
einum. Morðinginn heitir ...
hjartaslag.
Framingham-liðið kannar
hvernig morðingi þessi velur
sér fórnarlömb. Sumum virðist
hjartaslagið ekki líta við en
aðrir eru í stöðugri hættu.
Þessu vilja læknar fá afdráttar-
laus svör við.
voru allir alheilbrigði>' en í
lokin fengum við 142 hjartatu-
felli. Við könnuðum blóðfituna
og fengum þá niðurstöðu að sjö-
tíu af sjötíu og níu körlum með
hjartaslag og tveir þriðju
þeirra 63ja kvenna, sem
kenndu sér meins, höfðu lítið
magn af HDL í sér.“
Til samanburðar fylgdust vís-
indamenn með nokkrum fjöl-
skyldum 1 Cincinnatti í Banda-
ríkjunum. Þær voru valdar með
hliðsjón af þvi að hjartaáfall
var óþekkt fyrirbæri meðal
þeirra. Sú könnun sýndi að í
blóðfitunni var óvenjumikið
magn af HDI, — um það bil
Tilraunadýrin eru fólk
Tilraunadýrin við þessa
rannsókn eru sjálfir íbúar
Framingham — bæði konur og
karlar. Vísindamenn fylgjast
með mataræði þeirra, lífshátt-
um og af hvaða kvillum þeir
veikjast. Síðan eru niðurstöð-
urnar bornar saman við sam-
bærilega rannsóknahópa i
Evrópu og Asíu.
Fljótlega eftir að Framing-
ham-rannsóknirnar hófust tóku
böndin að berast að fitumagni
blóðsins sem hugsanlegri orsök
hjartaáfalls. Sönnunargögnin
bentu hins vegar til hins gagn-
stæða. Nú er það almennt
viðurkennt að margt fleira en
blóðfita komi til þegar maður
fær hjartaslag.