Dagblaðið - 13.06.1977, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1977.
MARGTSKEÐUR
TIL SJÓS
Jón Dan:
SÍOASTA KVÓLD i HAFI
AJmenna bókafélagiö 1977. 211 bls.
Nýja saga Jóns Dans er fyrir
ýmsra hluta sakir undarleg
bók. En það er ekkert undar-
legt við það auðkenni sögunnar
sem fyrst liggur í augum uppi:
hina nákvæmu svið- og tíma-
setningu atburðanna. Sagan
gerist á nákvæmlega tiltekn-
um tima, eða frá því í apríl og
fram í október árið 1965, en
umgerð atburða í sögunni eru
tvö bréf sem þá eru dagsett.
Sjálf atburðarásin í sögunni fer
fram á miklu skemmri tíma,
gerist um borð í skipi á leið frá
Kaupmannahöfn til Reykja-
víkur, sem trúlega á þá að vera
Gullfoss, hefst við brottför
skipsins, en lýkur daginn sem
stigið er á land í Reykjavík.
Á sama máta eru persónur í
sögunni all-nákvæmlega skil-
greindar. Aðal-sögumaður er
rithöfundur og að góðum og
gömlum sið sjónarvottur at-
burða í sögunni frekar en þátt-
takandi sjálfur.
Hann heitir Oddur Þór og er
það raunar bínefni, dregið af
„author“. Á sama hátt eru
aðrar persónur einnig upp-
nefndar: Maupassant, Bel Ami,
prinsinn, gula drottningin,
ljúfa Anna, Trumbi, Gottskálk
eða herra lattassi, meistari, svo
aðeins sé hið helsta nefnt. En
stétt þess og staða er ljós og
skýr í sögunni. Maupassant et
annar rithöfundur, eða allténd
höfundarefni, prinsinn og Bel
Ami námsmenn á heimleið frá
Þýskalandi, drottningin og
ljúfa Anna eru léttúðardrósir
sem hafa haft atvinnu af
nektardansi í Kaupmannahöfn,
herra Gottskálk hefur lengi
verið sendiráðsritari, einkum í
Þýskalandi, en meistari er
þjónn hans, Trumbi er
unglingspiltur sem hefur verið
að gutla við tónlistarnám í
Kaupmannahöfn, en á nú að
byrja aftur í menntaskóla.
Móðir hans, Oddný, kom að
sækja hann til Kaupmanna-
hafnar, en fer á heimleiðinni að
stíga í vænginn við sparisjóðs-
stjóra nokkurn, sem er þeim
samskipa. Það er hann sem
stýrir gleðskap „siðasta kvöld í
hafi“ þegar örlög skipast.
Það er ekkert undarlegt né
skrýtið við þessa stað- og tíma-
setningu atburða eða þá per-
sónuskipan í sögunni. Nema þá
það að í rauninni kemur ekkert
af þessu efni hennar neitt við.
Sagan gæti gerst hvar sem er og
hvenær sem er og hverjir sem
er tekió þátt í henni. Meir að
segja er spursmál hvort efni
hennar væri það ekki ávinn-
ingur að gerast í meiri fjarlægð
og meðal ókunnuglegra fólks.
kannski á Islandssiglingu
snemma á öldinni, allténd fyrir
fyrra stríð, eða þá á einhverju
alþjóðlegu lystiskipti i hnatt-
ferð, þar sem sögur oft eru
látnar ske, eða hóteli, eða
hressingarhæli, sem líka hafa
vel gefist. Bara ekki í svona
miklum námunda við lesand-
ann. Þvi að væntanlega skiptir
það meginmáli fyrir framgang
sögunnar að lesandi festi auð-
veldlega trú á það fólk og at-
burði sem hér greinir frá. Og
það veittist að minnsta kosti
undirrituðum lesanda fjarska
örðugt, þrátt fyrir hennar raun-
sæislega yfirskin, ef ekki bein-
línis vegna þess.
En frásagnarhátturinn á sög-
unni er að sínu leyti sam-
kvæmur öðru raunsæi hennar.
Aðal-sögumaður er sem fyrr
segir Oddur Þór, vitni og áhorf-
andi atburða sem snerta hann
djúpt, svo djúpt að hann ræðst í
að taka saman þessa frásögn og
ritstýra henni. Oddur Þór segir
frá í upphafi og niðurlagi sög-
unnar, aðrir kaflar eru lagðir í
munn Maupassant, Trumba og
herra Gottskálki, en bréfin tvö
sem fyrr voru nefnd stílar
systir hans, María nokkur
Þórisdóttir. Það eina skrýtna
við þennan frásagnarmáta er að
allir hafa sögumenn þessir
eiginlega einn og sama rithátt
og nosturslega stílfæri og að-
hyllast sama dýrindis tepru-
skap í siðferðislegum efnum.
En hvað er þá undarlegt við
söguna? Það er ekki atburða-
rásin sjálf, út af fyrir sig, neitt
sem gerist í sögunni, öllu
heldur skilningur sem lagður
er í atburðina og lagður út af
þeim, einhvers konar táknleg
merking sem fólki og atburðum
í sögunni á að leggjast til i
meðförunum.
Ekki veit ég hvort tíðkaðist á
Gullfossi fyrrum að efna til sér-
staks gleðskapar kvöldið áður
en komið var að landi. Enda má
það einu gilda. Hvað sem því
líður er þvílíkt skemmtikvöia
aðalefni þessarar frásagnar:
„En síðasta kvöld í hafi varð
ekki einungis tilbúin dagskrá
og fyrirfram æfð heldur miklu
fremur sýning á sálum, sem
skyndilega og undirbúnings-
laust tættu af sér hverja spjör,“
segir sagan. Forustu í þessu
gamni hefur fyrrgetinn
sparisjóðsstjóri sem hennar
vegna er nefndur vökukóngur í
sögunni og fær á sig æ því
iskyggilegri mynd sem lengra
líður á hana. Kannski hann sé
fjandi sjálfur eða hans ígildi.
Það vill þá tii að annað og æðra
máttarvald á líka sinn fulltrúa
um borð þar sem er herra Gott-
skálk: „starfsmaður við tvö eða
fleiri sendiráð í Evrópu árum
saman, þá jafnframt tónlistar-
gagnrýnandi við franskt tíma-
rit, kvæntur vellauðugri aðals-
mey og á þeim tímum svo
vinsæit tónskáld að sköpunar-
verk hans klingdu hvarvetna í
eyrum....“ Nú virðist hann vera
mállaus, orðinn ekkill og hefur
fyrir nokkrum árum misst son
sinn með sorglegum hætti.
Farþegarnir tveir, sendiráðsrit-
ari og sparisjóðsstjóri, hefðar-
maður og dóni persónugera þau
meginöfl sem takast á um líf og
heill annars fólks i sögunni og
þá í fyrsta lagi námsmannanna
tveggja frá Þýskalandi, sem
báðir eiga unnustur í landi, og
svo stráksins Trumba. Prinsinn
er mesti svallari, drekkur og
duflar við drottninguna sem
fyrr var nefnd, en ljúfa Anna
leggur hug á Bel Ami. Hann vill
halda sér hreinum af kvenfóiki
uns hann finni unnustu sína
í landi og tekst það reyndar fyrir
tilverknað herra Gottskálks
auk eigin ásetnings. En sálna-
sýning sú sem áður var nefnd
kemur einkum fram í nektar-
dansi sem þær dansa stöllur
(ásamt reyndar þriðju fríð-
leikskonunni til) og gengur
prinsinn glaður og reifur til
leiks með þeim, en öðrum
verður mikið um.
Nú líður og bíður uns komið
er í land, og tekur þá ekki betra
við. Bel Ami hittir unnustu sína
ólétta eftir annan. Aftur á móti
kemur prinsinn ölmóður og
sveittur að finna sína unnustu
sem hefur beðið hans með
tryggð og hollustu, hin siðprúð-
asta mær og hreinleikinn holdi
klæddur, systurdóttir sjálfs
OLAFUR f
JÓNSSON ®
Bók
menntir
Comet P122
nýja sýningarvélin
er mjög fullkomin og í" staá þess að sýsla
með vandasamar stillingar getur þú reglu-
lega notið myndarinnar.
Það er sjálfvirk fiimuþræðing og sterk
ZOOMLINSA (18/30 mm) gefur hárná-
kvæma mynd.
I>ú getur sýnt á mismunandi hraða, (18—24
m/sek. og 6—8 m/sek.) og einnig sýnt eina
mynd í einu eins og ljósmynd, eða jafnvel
afturábak til frekari skemmtunar.
Óvenju sterkur myndlampi (12V/100W
TUNGSTEN HALOGEN) gefur kost á
geysistórri mynd og hægt er að sýna allt að
120 mtr. (ea 35 mín.) samfellda filmu,
jafnt SUPER 8 og STANDARD 8.
Electric zoom 444 de luxe
nýja kvikmyndatökuvélin þín
er mjög vandaður gripur, alsjálfvirk og jafn
einföld í notkun og venjuleg ljósmyndavél.
T.T.L. rafeindaauga stillir ljósopið sjálf-
krafa og gefur merki ef birta er ónóg til
myndatöku.
Sterk rafstýrð ZOOMLINSA (f/1.8 —
ll/38mm) gefur þ'ér kost á að taka fjarlæg
myndefni í smáatriðum.
Það eru 3 upptökuhraðar, ,,REFLEX“ sjón-
auga í gegnum linsu með stillanlegu sjón-
gleri (+ / •- 2 dióptre) og innbyggður lampi
til að kanna ástand rafhlaðna. Auk þess
fylgir linsuhlíf og lúxus taska með hálsól
BrcadarUolli 20 - Sinii 15285
KVIKMVNDASETT
Stórt kvikmyndatjald
(125x125 sm) hvítt með svörtum kanti og
strekkjara upprúllað í málm-sívalning.
Kvikmyndalampi
fýrir innimyndatöku
með 1000W HALOGEN-peru, ljósmagn
33000 lux.
Nýja kvikmyndasettið þitt
á eftir að veita þér og fjölskyldunni
ómældar ánægjustundir með litlum
kostnaði, en 15 metra kvikmynd kostar ekki'
meira en 12 litljósmyndir. Með settinu
fylgir auk þess stutt kvikmynd svo þú getur
strax prófað nýju sýningarvélin.
— GÓÐASKEMMTUN —
Við bjóðum þér þetta vandaða
kvikmyndasett ó sérlega hagstœð-
um kjörum.
ÚTBORGUN KR. 55.000 + burðargjaid OG
KR. 13.900 á mánuði í 4 mánuði.
Sendu okkur kr. 55.000 í ávísun, eða inn á
Gíróreikning 50505 og við sendum þér
settið um hæl. Ef þú ert ekki fullkomlega
ánægður með viðskiptin getur þú skilað
settinu, gegn fullri endurgreiðslu, innan 10
daga frá móttöku.
herra Gottskálks. Verður nú
eins og vonlegt er mesta agg og
vei í sögunni þegar upp kemst
hvernig í öllu liggur, og hver
missir sína unnustu og unn
usta. Lítil sem engin von til
þess að þau nái saman að lok-
um, sem þó eiga svo augljóslega
saman, Bel Ami og Áslaug,
heitkonan dygga.
Þá er að segja af Trumba.
Hann er djúpt snortinn af yndis
þokka ljúfu Önnu þótt hann um
leið skelfist áhrif hennar,
fælist móður sína og vökukóng,
sem sífellt sitja að spilum, leit-
ar halds og trausts hjá
Gottskálki eins og væri hann
faðir hans og finnur það sumar-
langt við tónlist og garðyrkju.
En viti menn, kemur ekki
vökukóngur undir haust og fer
að freista hans með stelpunni.
Af því leiðir ekkert minna en
að drengurinn deyr, dettur af
hestbaki ,,og var þegar
örendur", en því olli
vökukóngur á gulum bíl. Önnur
skýring er líka til á dauða
drengsins enhana leggur meist-
ari til, bakarameistari ofan af
Akranesi sem hætti iðn sinni til
að gerast i staðinn þjónn og
matsveinn hins tónelska sendi-
ráðsritara og hans vellauðugu
frönsku frúar. „Hann sagði:
herra lattassi missir alltaf son
sinn.“
Síðasta kvöld í hafi er með
öðrum orðum saga um sálar-
háska og enda beinan lifsháska
sem af kynhvötinni stafi — það
„ok“ og þá „þyrnikórónu" sem
á menn sé lögð með „kalli kyn-
stofnsins“. Boðskapur hennar
gengur þá út á nauðsyn skirlífis
og siðprýði eigi vel aðfarnast.
Það hefði að vísu orðið siðfræði
sögunnar til framdráttar ef
auðnast hefði að setja hana
fram í trúverðugra samhengi
fólks og atburða, með raun-
verulega virkri raunsæisaðferð-
Það skeður margt til sjós. En sá
heimur sem hér er lýst með
öllum kynórum, kynfælni sinni
virðist því miður tómur
tilbúningur, að ég segi ekki
tilgerðin sjálf.
AUKALEGA
Ef þu sendir pöntun þina fyrír 1 5. juni sendum viö þer
aö auki eina SUPER 8 litfilmu, sem er þin eign,
jafnvel þótt þú akvoöir aö skila settinu.
HUS-
byggj-
endur
Fyrirliggjandi:
Glerullar-
einangrun
Glerullar-
hólkar
Plast-
einangrun
Steinullar-
einangrun
Spóna-
plötur
Milliveggja-
plötur
Kynnið ykkur
verðið - það er
hvergi iapgra
JÓN10FTSSONHF
HrioobrauúBtieiesso