Dagblaðið - 26.09.1977, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 26. SEPTEMBER 1977.
I
15
8
íþróftir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Gef umst ekki upp þó á
móti blási
— segja Framarar, sem leika síðari leikinn
gegn Start í UEFA-keppninni á morgun
Þá eru síðari leikirnir í
Evrópumótunum þremur í fyrstu
umferðinni framundan. Fram
leikur við norska liðið Start á
Laugardalsvelli á morgun, þriðju-
dag, og hefst leikurinn kl. 5. Sá
leikur er í UEFA-keppninni.
Akurnesingar leika við Brann frá
Bergen á Akranesi á miðvikudag
í Evrópukeppni bikarhafa og
sama dag leikur Valur í Belfast
gegn Glentoran í Evrópubikarn-
um.
Akranes
— Brann
— Ég ermiög bjartsýnn á
góðan árangur hjá Akranes-
liðinu gegn Brann frá Berg-
en á miðvikudaginn, sagði
George Kirby, þjálfari
Akurnesinga, á blaðamanna-
fundi sem Akurnesingar
efndu til á föstudag.
— Ég vona að Brann leiki
varnarlelk — reyni að halda
því eins marks forskoti sem
liðið náði í fyrri leiknum í
Bergen. Ég hef ekki mikla
trú á varnarleik liðsins — og
mundi gefa Akurnesingum
tækifæri að leika þá knatt-
spyrnu, sem þeim fellur
bezt — sóknarknattspyrnu,
sagði Kirby ennfremur.
Leikur Akraness-Brann í
Evrópukeppni bikarhafa
verður á Akranesi á
miðvikudag og hefst kl.
fimm. Það er í fyrsta skipti,
sem Evrópuleikur er háður
á Akranesi — og íbúar
bæjarins verða heldur betur
með á nótunum ef marka má
Íýmsar ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið. Frí
verður gefið í verzlunum kl.
4.30 og einnig á flestum
vinnustöðum. Akurnesingar
ætla sér að mæta á völlinn
og hvetja lið sitt til sigurs.
Það er greinilegt, að
möguleikar Akurnesinga
eru miklir á heimavelli.
Brann sigraði í fyrri leikn-
um 1-0 og þann mun eru
Skagamenn ákveðnir að
jafna — og gott betur. Akra-
borg fer frá Reykjavík til
Akraness kl. 3.45 á miðviku-
dag og til baka að leik lokn-
um. Forsala á aðgöngumið-
um verður á skrifstofu
Akraborgarinnar í Reykja-
vík.
Sökum þrengsla i biaðinu
í dag verður nánar sagt frá
leiknum og undirbúningi
Akurnesinga í næstu
blöðum.
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓÍIU/Tfl
/i/allteitthvað
gott í matinn
STIGAHLIÐ 45-47 SIMI 35645
í fyrri leiknum gegn Start beið
Fram mikinn ósigur — tapaði
með 6-0 í Kristiansand. Það var
heldur óvænt og enginn reiknaði
með að sá munur væri á liðunum.
Eitthvað óeðlilegt við þetta mikla
tap. Á morgun eru Framarar
ákveðnir að rétta sinn hlut að
einhverju leyti — sigra þetta
norska lið. Samkvæmt fyrri úrslit-
um ætti það að vera erfitt — en
Framarar eru ekki á því að gefast
upp þó á móti blási. Fram verður
með alla sína beztu leikmenn í
leiknum nema Árna Stefánsson,
markvörð, sem meiddist illa í
leiknum í Noregi.
Start er nú ofarlega í 1. deild-
inni norsku og hér á eftir fara
ýmsar upplýsingar um félagið og
leikmenn þess.
Idrettsklubben ,,START“ var
stofnað 19. september 1905. í upp-
hafi hafði félagið margar íþrótta-
greinar á stefnuskrá sinni en
starfrækir nú knattspyrnudeild
og handknattleiksdeild. Félagið
hefur síðustu fimm ár keppt í
norsku fyrstu deildinni í knatt-
spyrnu, með eftirfarandi árangri:
1973: 3. sæti
1974: 7. sæti
1975: 3. sæti
1976: 4. sæti
í ár hefur félaginu vegnað vel í
deildinni og er þ'- jar þetta er
skrifað í 2.—4. sæti.
START hefur tvívegis áður
tekið þátt i UEFA-keppninni,
1974 tapaði liðið fyrir sænska
liðinu Djurgarder og 1976 tapaði
Start fyrir austurríska liðinu
Wacker frá Innsbruck.
Eftirtaldir leikmenn mynda A-
lið Start.
Markmenn:
Per Otto Larsen, 30 ára ráðgef-
andi, 78 leikir með litjinu.
Roy Ammundsen, 22 ára logsuðu-
maður, 59 leikir, 2 unglingalands-
leikir og 10 drengjalandsleikir.
Geir Jörgensen, 20 ára rafvirki, 9
leikir með liðinu.
Varnarmenn:
Trond Petersen, 26 ára banka-
starfsmaður, 261 leikur með
Start, 12 landsleikir, 18 unglinga-
landsleikir og 4 drengjalands-
leikir.
Cay Ljosdal, 27 ára skrifstofu-
maður, 214 leikir.
Svein Kaalaas, 27 ára lagerstjóri,
168 leikir.
Thorgny Svenssen, 26 ára verk-
stjóri, 152 leikir.
Helge Torjussen, 20 ára banka-
gjaldkeri, 47 leikir.
Reidar Flaa, 32 ára bílstjóri, 460
leikir.
Miðvallarleikmenn:
Yngvar Ommundsen, 24 ára
nemandi, 71 leikur.
Odd Frivold, 29 ára sölumaður,
384 leikir, 11 drengjalandsleikir.'
Stein Thunberg, 23 ára bílstjóri,
52 leikir, 14 landsleikir, 5
unglingalandsleikir, 9 drengja-
landsleikir.
Sven Otto Birkeland, 29 ára kenn-
ari, 145 leikir, 5 landsleikir, 13
unglingalandsleikir, 9 drengja-
landsleikir.
Audun Myhre, 19 ára nemandi, 1
leikur með Start.
Tor Helge Stensland, 29 ára kenn-
ari, 156 leikir, 4 unglingalands-
leikir.
Sóknarmenn:
Svein Mathisen, 25 ára kennari,
238 leikir, 2 landsleikir, 8 ung-
lingalandsleikir.
Helga Skuseth, 24 ára kennari,
122 leikir, 16 landsleikir, 10
unglingalandsleikir, 2 drengja-
landsleikir.
Helge Haugen, 20 ára, gegnir her-
þjónustu, 43 leikir.
Preben Jörgensen, 24 ára
nemandi, 31 leikur.
Odd Magne.OIsen, 24 ára bókari,
30 leikir.
Trond Pedersen, bakvörður í
Start, sem lelkið hefur 16 A-
landsleiki og 18 unglingalands-
leiki. Félagar hans kalla hann nú
sln á milli „Svíabanann og Fram-
banann".
FERflASKRIFSTOFAN SIINNA UEKJARGÖTU 2 SÍNIAR
12070
Þusundir Islendingar hafa notiö hvildar og skemmtunar i sumarsól a
Kanarieyjum, meöan skammdegi og vetrarkuldi rikir heima.
Sunna býöur upp á fjölbreyttar Kanarieyjaferöir til Gran Canary og
Tenerife. íbúöir, hótel, smáhýsi og villur í besta gæöaflokki, svo sem Kóka,
Corona Roja, Corona Blanca, Rondo, Producasa, Eguenia Victoria,
Carmen o.m. fl. (slensk skrifstofa meö þjálfuðu starfsfólki Sunnu,
veitir farþegum þjónustu og öryggi.
Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar aösóknar, biöjum við þá, hinafjölmörgu,
sem árlega fara meö okkur til Kanaríeyja, og vilja búa á „sinum staö" að
panta nú snemma.
Það lettir okkur storfm og kemur i veg fyrir þaösem okkur leiöist mest, aö
þurfa að neita föstum viöskiptavinum um óskaferðina, vegna þess aö
pöntun berst seint. Plássiö er því miöur takmarkaö, og ekki hægt aö fá
aukarými á hinum eftirsóttu gististööum.
BROTTFARARDAGAR:
Hœgt er aö velja um feröir í 1,2,3 eöa 4 vikur
16. október, 5, 26 nóvember, 10, 17, 29desember, 7,14, 28
janúar, 4,11,18,25 febrúar,4,11,18,25 marz,1, 8, 15, 29 apríl
PLAYA DEL INGLES - PUERTO RICO - LAS PALMAS - TENERIFE