Dagblaðið - 22.12.1977, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAQUR 22. DESEMBER 1977.
11
Erlendar
fréttir
i
REUTER
i
Loftið íþurr-
hreinsuninni
eitraði móður-
mjólkina
og barnið
veiktist
Sex vikna gamalt stúlkubarn í
Halifax veiktist nýlega af brjósta-
mjólk móður sinnar. Móðirin
hafði andað að sér gufu af upp-
leysiefni í þurrhreinsun, þar sem
maður hennar vinnur.
Barnið veiktist af óþekktri gulu
en náði sér aftur er það hætti á
brjósti. Þegar sýni voru tekin úr
brjóstamjólkinni mátti greina
uppleysiefni í henni.
— Jólin sprengd
inn rétt eftir komu
James Callaghans
— IRA skæruliðar sækja í sig veðrið
Irskir skæruliðar tóku
heldur betur við sér í gær-
kvöldi og sprengdu fimm
sprengjur víðs vegar um
Norður-Irland, auk þess var
sjötta sprengjan fjarlægð áður
en af henni hlauzt skaði.
Þetta varð aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að James
Callaghan forsætisráðherra
kvaddi landsmenn en hann
kom flestum til undrunar f
heimsókn þangað f gær.
Sagði hann meðal annars af
þvf tilefni, að hann teldi
ástandið á Norður-Irlandi vera
farið að skána og öryggi
fbúanna meira en áður.
Skemmdir urðu á fimm
hótelum og veitingastöðum.
Hafa yfirvöld her- og öryggis-
mála á Norður-írlandi hvatt
eigendur veitingastaða til að
leita í húsakynnum sfnum að
hugsanlegum sprengjum.
Callaghan forsætisráðherra
sagði í ræðu, sem hann hélt í
Belfast f gær, að friðarhorfur
væru betri nú en f fyrra. Ekki
hefðu nema 110 látið lífið í ár,
samanborið við 296 f fyrra.
— Við höfum ekki að fullu
sigrazt á andstæðingum okkar
en okkur gengur mun betur en
fyrir nokkrum mánuðum —
sagði forsætisráðheri ann.
Svo virðist sem skæruliðar
Irska lýðveldishersins ÍRA
hafi ákveðið að svara þessari
fullyrðingu brezka forsætisráð-
herrans og sýna mátt
hreyfingarinnarmeð sprenging-
unum fimm. Svo vel tókst til að
ekki særðist nema einn maður f
gær.
I gær sprungu tvær aðrar
sprengjur i Belfast. Sú fyrri
sprakk á skrifstofu lögregl-
unnar sem meðal annars hefur
dreift áróðri gegn skæruliðum.
Síðari sprengjan sprakk
þegar lögreglan ætlaði að hafa
afskipti af tveim unglingum
sem voru að koma út úr leigu-
bifreið. Lögðu þeir á flótta, er
þeir urðu lögreglunnar varir,
og köstuðu frá sér tveim
pinklum. Sprakk annar þeirra
en sprengjan f hinum var gerð
óvirk af sprengjusérfræðingum
hersins.
Sprengingar þessar og
aðrar undanfarna daga hafa
valdið töluverðum vonbrigðum
í Norður-Iriandi þvf margir
höfðu gert sér vonir um tiltölu-
lega friðsöm jól og áramót þar
um slóðir.
James Callaghan á tali við nokkra brezka hermenn á Norður-
trlandi. Eitt af helztu eilifðarmálum brezkra ríkisstjórna er
hvernig leysa eigi vandann á Norður-írlandi. Kaþólskir og mótmæl-
endur deila þar stöðugt þó trúmái séu að líkindum ekki aðaldeiiu-
efnið.
LEIKFANGAHUSIÐ
Skólavörðustíg 10 og Iðnaðarhúsinu v/lngólf sstræti
Traktorar, 4 tegundir—Þríhjól, 8 tegundir—Stigbílar, 10 tegundir—Brúöuvagnar,
8 tegundir—Regnhlífarkerrur, 3 tegundir—Lone Ranger—Hestar—Hesthús—
Hótel—Krambúð—Þorp—Bensínstöövar
BILLIARDBORÐ - B0BB-B0RÐ - SNJÓÞOTUR
Leikfangahúsiö
Skólavöröustíg 10,
lönaöarhúsinu v/lngólfsstræti
V,