Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 13
13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
Fjör færist í kjötútf lutning til Danmerkur:
SIS selur nú á d. kr. 9.25
kflóið og fær staðgreiðslu
— Einkaaðstaða Knudsens í Kjötbænum til innflutnings á íslenzku dilkakjöti er nú rofin
Mikið fjör er nú í sölu ís-
lenzks lambakjöts til Danmerk-
ur. Hér í blaðinu var frá því
slðhdék lammelmá
m-rámé mmsie :
■. mmmm ' itínd ■ iri :
IForsíða uppskriftabæklingsins
danska, sem er fagurlega iit-
prentaður. Neðst t.v. stendur að
Knud C. Knudsen Ködbyen sé
einkainnf lvt jandi.
skýrt á föstudaginn var að nýr
söluaðili hér á landi, Triton hf.
hefði selt 100 tonn af kjöti
fyrir 9 krónur danskar kflóið og
var þar um staðgreiðslu að
ræða, sem er nýr háttur í við-
skiptum á kjöti við Dani. Nú
hefur Dagblaðinu borizt til-
kynning frá SÍS um að Sam-
bandið hafi fyrr í þessum mán-
uði selt kjöt til Danmerkur og
einnig fengið það staðgreitt.
Verðið var 9.25 krónur nettó á
kfló, sem er 25 dönskum aurum
hærra verð en hinn nýi út-
flutningsaðili „telur sig hafa
selt á“ eins og það heitir í til-
kynningu SÍS.
t tilkynningunni segir að DB
hafi mjö'g hallað réttu máli í
frásögn sinni sl. föstudag. Er
þess óskað að eftirfarandi verði
birt í DB.
„í' sambandi við þær fullyrð-
ingar, að hinn nýi útflutnings-
aðili, sem nefndur er í grein-
inni, hafi fengið mun hærra
verð fyrir fsl. dilkakjöi f Dan-
mörku en aðrir aðilar (þ.e.
Sambandið) þá er sá saman-
burður óraunhæfur. Þar er og
með röngum tölum borið saman
verð frá sl. vori, þ.e. þeim árs-
tíma þegar verðið er lægst, við
það verð sem nú fæst, en kjöt-
verð hefur hækkað allnokkuð á
þessu tímabili, svo sem sölur á
dilkakjöti í haust til Noregs,
Svfþjóðar og Færeyja bera
skýran vott um. t Danmörku
hefur verðið einnig hækkað
verulega.
Lfka er ástæða að geta þess,
að það er ekki f skjóli neinnar
einokunar, að Sambandið hefur
um langt skeið verið eini út-
flutningsaðili landsins á dilka-
kjöti, þvf að það eru til slátur-
hús utan Sambandskaupfélag-
anna, sem eru viðurkennd sem
útflutningssláturhús. Það
hefur hins vegar ávallt verið
sterk samstaða um dilkakjöts-
útflutninginn, sem og um út-
flutning á tilfallandi innyflum
hjá sláturhúsunum, jafnt þeim
sem eru á vegum samvinnu-
félaganna og þeim sem eru á
vegum einkaaðila. Er ástæðan
án efa fyrst og fremst sú, að
útflutningurinn hefur lengst af
verið sveiflukenndur, enda
framleiðslutfminn bundinn við
aðeins 5—6 vikur á hverju ári.
Varðandi kjötsölur til Dan-
merkur er það einnig að segja,
að þar er lélegastur markaður á
öllum Norðurlöndunum, enda
er þar 20% innflutningstollur á
sama hátt og í hinum Efnahags-
bandalagslöndunum. Þó er
markaður í Danmörku mun
betri en f Bretlandi, en fslenzka
dilkakjötið hefur um áratuga-
skeið verið á boðstólum í Dan-
mörku og naut þar tollfríðinda
áður en Danir gengu í Efna-
hagsbandalagið.
Vegna stórvaxandi útflutn-
ings á dilkakjöti hin sfðari ár
hefur þurft að flytja út til Dan-
merkur mjög aukið magn, eða
nálega 600 lestir á ári sl. tvö ár
á móti 60—70 lestum árlega
fyrir 12—15 árum, þannig að
magnið hefur um það bil tífald-
azt. Til þess að gera þessa aukn-
ingu mögulega hefur orðið að
auglýsa dilkakjötið mjög mikið
á vörusýningum, f fjölmiðlum
og með útgáfu á alls konar
kynningarbæklingum, sem
hefur verið ali kostnaðarsamt,
en kemur öllu fslenzku sölu-
starfi til góða.
Þess má einnig geta, að um-
boðsfyrirtæki Búvörudeildar
Sambandsins í Kjöthöllinni f
Kaupmannahöfn selur aðeins
íslenzkt dilkakjöt og hefur auk
þess mjög góða aðstöðu á
staðnum til að afgreiða kjötið f
hverju þvf formi, sem við-
skiptavinirnir óska eftir.“
I tilkynningunni segir ekkert
um kjötmagn það sem StS seldi
síðast til Danmerkur á 9.25 kr.
danskar. Gunnlaugur Björns-
son hjá Búvörudeild SlS upp-
lýsti hins vegar að um 25 tonn
hefði verið að ræða.
Staðreynd er að kjötsölur til
Danmerkur hafa ekki fyrr en
nú farið fram gegn stað-
greiðslu, en hún tryggir hent-
ugri greiðslu og bindur enda á
þá viðskiptahætti að tollar, upp-
skipunargjöld og fleiri liðir
komi til frádráttar og sé
reiknaður íslenzkum söluaðil-
um til gjalda en sá háttur hefur
verið tíðkaður f viðskiptum við
Dani samkvæmt upplýsingum
Sveins Tryggvasonar fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs.
StS vildi ekki láta hinn nýja
söluaðila hafa kjöt til útflutn-
ings en Sláturfélag Suðurlands
varð við ítrekuðum óskum hans
þar um.
Tilkynningu StS til DB
fylgdi litprentaður bæklingur
með 24 uppskriftum lamba-
kjötsrétta. Á forsfðu hans
kemur fram að Knud C Knud-
sen í Ködbyen sé einkainnflytj-
andi íslenzks lambakjöts f Dan-
mörku.
- A.St.
J0LAGJAFIR
URVALI
TJÖLD — SVEFNP0KAR
VtÐLEGUBÚNAÐUR
TJALDDÝNUR — VINDSÆNGUR
BJÖRGUNARVESTI
REIÐTYGIÍ ÚRVALI
BARNA- 0G UNGLINGAÚLPUR í ÚRVALI
BARNAHJÓL 0G -BÍLAR í ÚRVALI
SPORTanagasiniö
GOÐABOBG
Grensásveq 22 - Símar 81617-82125
DARTSPIL
B0BSPIL
FÓTBOLTASPIL
KR0KKETSPIL
SKAUTAR
FÓTB0LTAR
HANDB0LTAR
KÖRFUB0LTAR
PLASTB0LTAR
JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS
VEIÐISTÍGVÉL — VÖÐLUR
VEIÐISTENGUR — VEIÐIHJÓL
VEIÐITÖSKUR — REGNGALLAR
BYSSUP0KAR — SK0TABELTI
RIFFILSJÓNAUKAR — BYSSUREKKAR
HAGLABYSSUR — RIFFLAR
NÝK0MNIR FLUGELDAR
í HAGLABYSSUR
Allt fyrirsport- og veiðimenn