Dagblaðið - 10.02.1978, Síða 5

Dagblaðið - 10.02.1978, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. FEBRUAR 1978. 5 Voulgaris: „íslenzkir kvik- myndatökumenn frábærir en þurfa fjárstyrk” Pendelis Voujgaris. DB-mynd RagnarTh. íslenzkar kvikmyndir bera það glöggt með sér að íslenzkir kvik- mvndatökumenn eru á heims- mælikvarða hvað tækni snertir. Ef þeir fá aðstoð í formi fjár geta þeir orðið rödd í heiminum sem hlustað er á. Eitthvað á þessa leið fórust Pandelis Voulgaris orð á blaðamannafundi i gær. Voulgaris er hingað kominn sem annar gestur á kvikmynda- hátíðina. Hingað flutti hann mynd sína Ánægjudag sem er ádeila á meðferð á pólitískum föngum í Grikklandi. Myndin verður sýnd í kvöld. Eini gallinn er sá að eintakið sem hingað barst er nærri ónýtt af sliti og stenzt Voulgaris ekki reiðari ef minnzt er á það. Hlutu þeir sem ábyrgð báru á þessu óbótaskammir því ferðin hingað og samskipti við tslendinga eru honum mikils virði. t rauninni sagði Voulgaris að sér fyndist ekki -hann hafa farið neitt. Hér á lamdi væri allt eins og heima i Grikklandi þegar bezt léti. Þjóðirnar væru ótrúlega lík- ar. Voulgaris var mjög tíðrætt um ástandið í kvikmyndagerð í Grikk- landi. Þær kvikmyndir sem þar hafa verið gerðar fram á síðustu ár eru mjög lélegar og lítill sem enginn vilji er til þess að bæta þar nokkuð um. Enda sagði siðasti menntamálaráðherra það opin- skátt að enginn af þessum ungu kvikmyndagerðarmönnum sem ruðst hafa fram af lómri þrjózku á síðustu árum væri hægrisinn- aður og hvers vegna í ósköpunum ættu stjórnvöld að styrkja það sem væri í beinni andstöðu við þau sjálf? Kvikmyndagerðarmenn þar eiga margt sameiginlegt með mönnum hér. Þeir fá enga fasta styrki en þurfa þvert á móti að borga mjög háa tolla og skatta af því efni sem þeir nota. Munurinn er hins vegar sá að þar eru fáir meðal eldri kynslóðarinnar sem hafa áhuga á að sjá góðar myndir og koma á sýningar ungu mann- anna. Síðan sjónvarpið var sett þar á laggirnar hefur orðið að loka nokkuð mörgum kvikmynda- húsum þvi eins og Voulgaris orðaði það að nú fá menn ruslið sem þeir sáu áður þar inn á stofu- gólf hjá sér. Þessu er hann sjálfur að reyna að breyta með því að gera fram- haldsmyndaflokk fyrir sjónvarp- ið. Er hann byggður á skáldsögu eftir Polistis. Þetta er fyrsta stóra verkefnið sem Voulgaris er falið af vfirvöldum þrátt fyrir mikið lof erlendis. Voulgaris sagðist mjög ánægð- ur með hvernig valið hefði verið á hátíðina hér en teldi bannið á japönsku myndinni fyrir neðan allar hellur. Myndin væri eitt bezta kvikmyndalistaverk sem hann hefði á ævi sinni séð og væri þá mikið sagt. Kngin þjóð í heim- inum sem hann vissi um hefði látið sér detta þetta í hug, ekki einu sinni Grtkkir. - DS Thor Vilhjálmsson vill sýna Veldi tilfinninganna „Við érum hlægilegir meðal þjóða fyrir þröngsýni” ,,Ég hef lagt til í listahátiðar- nefnd að myndin Veldi til- finninganna verði sýnd hér og látið reyna á það hvort dómstól- arnir dæma hana klám eða list,“ sagði Thor Vilhjálmsson við blaðamenn í gær. Thor sagðist telja að saksókn- ari og aðrir þetr menn, sem samkvæmt þessum úrskurði hlytu að teljas, sérfræðingar í klámi, þrátt fyrir það að þeir treystu sér ekki til þess að skil- greina hugtakið, væru ekki réttu mennirnir til þess að dæma um það hvað sýna mætti á kvikmyndahátíð. Myndin væri listaverk og það gætu sér- fræðingar í listum dæmt um. Dómstólarnir væru eini aðilinn sem skera ætti úr um það hvort atriðið vægi þyngra á metun- um, klámið eða listin. Auk þess sagði Thor að þegar væru íslenzk yfirvöld orðin hlægileg erlendis fyrir ein- dæma þröngsýni i þessum efn- um þar sem jafnvel i þeim ströngu stjórnkerfum sem viða séu við lýði, til dæmis í Grikk- landi, væri þessi mynd sýnd og alls staðar lofuð. Hún kæmi hingað frá Frakklandi fyrir ein- skæran velvilja franska sendi- herrans og franska mennta- málaráðuneytisins og ef lista- hátíðarnefnd þætti klúr fyrir að velja þessa mynd, hvað mætti þá segjá um Frakka? Thor hlaut að sögn mjög dræmar undirtektir við þessari tillögu en hann sagðist ætla að halda henni á lofti áfram. Þess má geta að Fjalakötturinn hyggst sýna myndina og jafnvel hefur sérsýning fyrir blaða- menn verið höfð á orði. - DS TORGSINS flðnaðarhusinu, Hallveigarstig 1 Næst síðasti dagur! Kr. 1.980.- Kr. 3.500.- Skyrturfrá kr. 1.250.- Kr. 600.- Mikið úrval frá öllum deildum T0RGSINS Opið til hádegis á morgun Austurstræti simi: 27211

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.