Dagblaðið - 03.04.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 3. APRlL 1978.
...
Sex tfu þúsund grafir f
kirkjugaröinum f Gufunesi
Síðustu þúsund grafreitirnir í Fossvogi í undirbúningi
og þeir duga í næstu tvö ár
öll kjósum við helzt að vera sólar-
megin i lífinu og svo undarlegt sem
það kann að virðast viljum við líka
vera sólarmegin þegar við leggjumst til
hinztu hvildar. Reykvíkingar mega vel
við una hvað þetta snertir, því
kirkjugarðar Reykjavíkur eru sólar-
megin — garðurinn í Fossvogi sem nú
er senn fullnýttur er á einhverjum feg-
ursta og sólríkasta staðnum í borgar-
landinu — sunnan í öskjuhlíðinni.
Nýi kirkjugarðurinn i Gufunesi er
ekki siður á sólríkum stað og þaðan er
útsýni einnig eitt hið allra fegursta
sem nægt er að hugsa sér frá
höfuðbcrgarsvæðinu.
Það eru ekki nema um tvö ár
þangað til byrjað verður að jarðsetja í
Gufunesi en nú er unnið af fullum
krafti við aö ræsa landið fram. Einnig
er verið að ræsa fram um eins hektara
svæði neðst i Fossvogsgarðinum þar
sem gert er ráð fyrir um þúsund
gröfum.
Kirkjugarðar Reykjavíkur sáu um
651 athöfn á árinu 1976 en það eru
nýjustu tölur sem til eru en verið er að
vinna skýrsluna fyrir 77. Aðrir aðilar
sáu um 261 athöfn þannig að þær
voru 912 á árinu. í Fossvogs-
kirkjugarði voru teknar 567 grafir eða
grafreitir, en fólk árétt á að taka frá
tvær til þrjár grafir, þannig að þær
bindast um leið og einn er grafinn.
Gömul verðskrá er fyrir slikar.
fráteknar grafir og eru legkaup 40
krónur og gildir fyrir tvær grafir. I
Suðurgötugarðinum voru teknar 29
grafir á árinu 1976, sem eru löngu
fráteknir grafreitir.
A sl. ári var um helmingur nýja
kirkjugarðsins i Gufunesi girtur og er
stefnt að þvi að ljúka girðingu
svæðisins sem er 53 hektarar að stærð
með vorinu. í Gufunesi er ráðgert að
verði um 60 þúsund grafir og er
áætlað að sá garður dugi í 50 ár. Einar
Sæmundsen landslagsarkitekt hefur
séð um skipulagningu svæðisins en
Guðmundur Kr. Guðmundsson og
Ólafur Sigurðsson arkitektar hafa séð
um skipulagningu á aðstöðu og húsum
á svæðinu.
Reykjavíkurborg sér um framræslu
á nýja svæðinu í Gufunesi og einnig
að gera akfært að garðinum. Fram-
kvæmdaaðilar að Kirkjugörðum
Reykjavikur eru söfnuðirnir i Reykja-
víkurprófastdæmi, það eru í Reykja-
vík, Kópavogi og Seltjarnarnesi. —
Forstjóri kirkjugarðanna er Friðrik
Vigfússon.
A.Bj.
Lækjartorg: Engar fleiri skemmtanir
eða stórir fundir þegar Torgið hefur
verið „lokað inni”?
DB-mynd: Ragnar Th. Sig.
◄c
ER BÚIÐ AÐ
KOMA
ÍVEGFYRIR
ÖLL
STÆRRI
MANNAMÓT
Á LÆKJAR-
TORGI?
SNJÓLFUR
íslenzkur vélsleði sem hafin
erframleiðslaá
„Við erum byrjaðir að framleiða
þennan sleða og köllum hann Snjólf i
höfuðið á fyrirtækinu,” sagði Ágúst
Hálfdánarson í viðtali við Dagblaðið,
en hann og nokkrir félagar hans hafa
nú hafið framleiðslu á vélsleðum.
Ljósmyndari okkar Ragnar Th.
Sigurðsson rakst á Ágúst þar sem
hann var að reynsluaka sleðanum
Snjólfi uppi í Bláfjöllum í gær.
Þetta er árangur þriggja ára
tilraunasmíða,” sagði Ágúst enn-
fremur. „Við reynum að smiða sem
flest i sleðann sjálfir, smíðum t.d. öll
hjól og annað, en vélina, sem er
bandarísk og 42ja hestafla, og beltið,
sem er sænskt og 60 cm breitt verðum
við að flytja inn."
Fyrir þá sem ófróðir eru um
vélsleða má geta að snjósleðar þeir
sem hér eru á markaði og innfluttir
eru yfirleitt með belti á milli 38 til 45
cm að breidd en aukin breidd á
beltunum þykir vera kostur.
Þá er sleði þeirra félaga fyrst og
fremst hugsaður sem dráttarsleði,
enda stór og kraftmikill. „Þetta er
tilvalinn sleði fyrir bændur og
björgunarsveitir en undir haustið
ætlum við að frámleiða það sem kallað
eru „Bláfjallasleðar,” sagði Ágúst.
„Þeir verða léttari og minni en
Snjólfur sem er 2Ó5 kíló að þyngd.”
Tollar á vélsleðum hafa verið
hækkaðir til muna á undanförnum
mánuðum og má geta þess, að
Snjólfur, sem á að kosta rúmlega níu
hundruð þúsund krónur, er eitthvað
undir þvi verði sem krafizt er fyrir inn-
flutta sleða af sömu stærð.
HP.
Ágúst Hálfdánarson reynsluekur
Snjólfl i Bláfjöllum.
- DB-mynd RTHS.
....* •
</
Útlit er fyrir að ekki verði i fram-
tíðinni hægt að halda fjölmennar sam-
komur á Lækjartorgi þar sem hægt
væri að nota,,Þjóðhátíðarvagninn”góða
fyrir svið. Þessa dagana er verið að
koma gamla söluturninum af Arnarhóli
fyrir á Torginu og norðan i þvi er verið
að reisa þriggja hæða hús. Þegar hefur
það hús komið í veg fyrir að hægt sé að
draga vagninn fyrrnefnda inn á Lækjar-
torg, en til þess þarf stóra flutningabíla
— eða risaþyrlu frá bandaríska hernum
í Keflavik!
Þjóðhátíðarvagninn hefur oft verið
notaður á fundum og hljómleikum á
Lækjartorgi, enda var til skamms tima
tiltölulega auðvelt að koma honum inn á
Torgið milli Útvegsbankahússins og
biðskýlis SVR, sem nú hefur verið fært
nærbankahúsinu.
Fréttamaður blaðsins leitaði i gær til
nokkurra embættismanna borgarinnar
sem hafa haft með skipulagsfram-
kvæmdir á Lækjartorgi að gera en þeir
kváðust ekki af þessu vita. „Ja, þú segir
nokkuð!" sagði Aðalsteinn Richter,
skipulagsstjóri borgarinnar. Vísaði hann
á yfirverkfræðing gatnamálastjóra en i
hann náðist ekki.
Enn er hægt að flytja til söluturninn,
þótt það breytti ekki þessari stöðu.
Erfiðara væri að flytja verzlunarhúsið
stóra, sem þegar er búið að steypa upp
aðeinum þriðja.
-ÓV.