Dagblaðið - 03.04.1978, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 3. APRlL 1978.
6
ÚRVflL/ HJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
/4/allteitthvaö
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45747 SÍMI 35645
Aprflgabb Dagblaðsins:
EINN YFIRMANNA SÍMANS
KOM AÐ FÁ SÉR NÝJAN SÍMA
— fólk hríngdi eða kom með síma sína
„Það er kannski ekkert gaman að
segja frá því, en einn yfirmanna Lands-.
símans kom hingað og vildi fá sér nýjan
síma,” sagði einn starfsmanna
viðgerðardeildarinnar í viðtali við Dag-
blaðið, en svo virðist sem áhugi fyrir
„skrautsimum og takkasímum” sé mikill
ef marka má viðbrögð við „frétt”
blaðsins um afhendingu nýrra síma
þann ágæta dag 1. apríl.
„Fólk byrjaði að hringja hingað strax
eftir að blaðið kom út og það er ennþá
að núna á sunnudegi,” sagði starfs-
maðurinn ennfremur.
Þeir á Simanum tóku þessu aprílgabbi
DB vel og af kímni því meirihlutinn af á-
troðningnum lenti á okkur sjálfum.
vonar að kímnigáfan sé i lagi þrátt fyrir
allt.
Til upplýsinga fyrir fólk er rétt að geta
þess, að takkasíma er hægt að fá, en þeir
eru rándýrir.
Enn einu sinni — fyrirgefið þið, en
það var nú 1. apríl. -HP.
Bladburðarböm óskast:
BERGÞÓRUGÖTU,
KÓPAVOGAUSTURBÆ,
HJALLA
Uppl. í síma27022.
j BIAÐIB
Nýr umboósmadur okkar á
Bakkafirðier
Freydís Magnúsdóttir,
Lindarbrekku
—Sími um miðstöö
BMBBIABIB
Vegna mikilla anna
getum við bætt við
okkur nokkrum bílum.
Og hér er einn hinna ákveðnu — hann lét
ekkert aftra sér frá þvi að fá „takka- eða
skrautsima” og var kominn alla leið upp
á afgreiðslu Dagblaðsins með simann
sinn þegar rann upp fyrir honum Ijós.
Trausti Haraldsson einn viðgerðarmanna Lanassimans natoi nog ao gera vio ao svara
simanum allan laugardagsmorguninn og fólk hélt áfram að hringja i gær — sunnudag.
DB-myndir Ragnar Th.
Starfsmenn Símans gerðu sér litið fyrir
og settu upp auglýsingu i anddyri af-
greiðslu Landssimans þar sem fólki i leit
að takka- og skrautsímum var bent á að
snúa sér til Dagblaðsins. Þverholti 2 og
síminn okkar var einnig gefinn upp.
27022. Áttu símastúlkur okkar annríkan
dag, þvi mikið var hringt og einnig kom
fólk þangað uppeftir með síma sína og.
vildi skipta.
Dagblaðið biður að vonum forláts á
því að gabba fólk um allar jarðir, en
Starfsmenn Landssímans tóku gamni
okkar með kimni og beindu straumi
fólks f okkar herbúðir með litilli aug-
týsingu á dyrum afgreiðslunnar á Lands-
sfmahúsinu.
Sími41846 eða42222.
Sendibílastöð Kópavogs
Hárgreiðslustofan
Pirola
Njélsgötu 49. Sími 14787.
Höfum opið alla
sunnudagaá
meðan fermingar
yfir
Opiðsumar■
ðaginn fyrsta
Konuraar gáfu undan-
þáguna í Eyjum
— og „ýsuskotið" bjargaðist í vinnslu
„Það stóð ekkert á undanþágunni
hjá Snótarkonunum og nú er verið að
Ijúka við að vinna ýsuskotið sem kom
þarna,” sagði Hjörtur Hermannsson
verkstjóri hjá Fiskiðjunni í Vest-
mannaeyjum í samtali við DB i gær.
Allir netabátarnir voru i landi í Eyj-
um í gær en trollbátarnir komu ekki
að landi. Útlit er fyrir að þessi ýsu-
hrota sem kom fyrir helgina sé nú bú-
in.
Heimaey tók 60—70 tonn af ýsu á
föstudaginn og sigldi með til Hull.
Löndun er ráðgerð á miðvikudag ef
vel gengur, sagði Hjörtur.
Ekki var unnið hjá ísfélagi Vest-
mannaeyja i gær. „Það var unnið hjá
okkur til klukkan 10 öll kvöld
vikunnar þannig að við töldum ekki
þörf á að láta vinna i dag,” sagði
Kristján Guðmundsson verkstjóri hjá
ísfélaginu i samtali við DB.
A.Bj.
AUKA MÁ SÍLDARAFLANN
UM10 ÞÚSUND TONN í ÁR
Nú hefur sjávarútvegsráðuneytið
að tillögu Hafrannsóknastofnunar-
innar ákveðið að leyfa veiðar á 35
þúsund tonnum af síld í haust, sem er
aukning um 10 þús. tonn frá síðasta
ári og aukning um 25 þús. tonn frá
1975, er þessar veiðar voru leyfðar
aftur eftir langt hlé í kjölfar hruns
stofnsins.
Reknetaveiðarnar verða háðar
leyfum sem fyrr. I fyrra stundaði 51
bátur reknetaveiðarnar en 77 bátar
hringnótaveiðarnar.
Reglur fyrir hringnótaleyfi banna
bátum undir 105 tonnum og yfir 350
tonnum veiðar og jafnframt fá bátar
sem stunda ætla humarveiðar i sumar
ekki síldveiöileyfi. Þá fær enginn
bátur bæði hringnótar- og reknetaleyfi
i senn.
G.S.