Dagblaðið - 03.04.1978, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1978.
Þessar stöllur eru útnefndar tíl Öskarsverðlauna í ár. Frá vinstri Vanessa Red-
grave fyrir leik i aukahlutverki i myndinni Julia, og Jane Fonda fyrir aðalhlutverk
i sömu mynd.
jazzBaLLedCsKóLí bópu,
Athugið!
Nýtt námskeið
hefst 10. apríl
IflMMI/Mthft
* Likamsrækt og mcgrun fyrir dömur á öllum aldri.
* Morgun-, dag- og kvöldtímar.
* Timar tvisvar og fjórum sinnum i viku.
* Sérstakur flokkur fyrir þær sem vilja rólega og létta leikfimi. >
* Sérstakur matarkúr fyrir þær sem cru í megrun. I
* Vaktavinnufólk ath. lausu timana hjó okkur. (
* Sturtur—sauna—tæki—Ijós. /
* Munið okkar vinsæla Solarium. :
* Hjá okkur skin sólin allan daginn alla daga.
* Innritun og upplýsingar i sima 83730. (
jazzt3aLLedd8KóLi Bóru
NILFISK
sterka rvksusan... #
Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga,
stillanlega og sparneytna
mótors, staðsetning
hans oghámarks
orkunýting, vegna
lágmarks loft-
mótstöðu í
stóru ryksíunni,
stóra. ódýra
pappírspokanum
og nýju kónísku
slöngunni,
afbragðs sog-
stykki og varan-
legt efni, ál og
stál. Svona er
NILFISK:
Vönduð og
tæknilega ósvik-
in, gerð til að
vinna sitt verk
fljótt og vel, ár
cftir ár. með lág-
marks truflunum
og tilkostnaði
Varanleg: til lengdar
ódvrust.
Nýr hljóð-
deyfir:
Hljóðlótasta
ryksugan.
Afborgunarskilmólar
HÁTÚN 6A
lUlllA SÍMI 24420
Raftækjaúrval — Næg bflastæði
Gyðingar hóta óeiró-
um v«ð Óskarsverö-
launaathöfn
Óttazt er að til óeirða muni koma
viö afhendingu þekktustu kvikmynda-
verðlauna heims í kvöld vegna mót-
mæla Gyðinga og andmæla Araba við
þeim.
Verðlaun verða afhent í Los
Angeles að venju en mótmæli Gyð-
inga munu stafa af því að leikkonan
Vanessa Redgrave hefur verið tilnefnd
til verðlauna fyrir aukahlutverk i kvik-
myndinni Julia.
Þar leikur hún konu sem vinnur við
að smygla Gyðingum frá Þýzkalandi á
valdatíma nasista.
Hún hefur einnig stjórnað upplýs-
ingamynd um Palestínumenn og
vegna þess er óttast að Gyðingar.
hefji öeirðir við verðlaunaafhending-
una. Arabar munu aftur á móti ætla
að hylla leikkonuna.
Athygli manna við þessa verðlauna-
veitingu mun einnig mjög beinast að
leikaranum Richard Burton. Hann
hefur verið tilnefndur til Oscarsverð-
launa fyrir hlutverk sitt í Equus og er
það í sjöunda sinn á síðustu tuttugu og
tveim árum sem hann er tilnefndur.
Hann hefur þó aldrei hlotið sjálf verð- .
launin.
Aðrir karlleikarar sem tilnefndir
hafa verið eru Richard Dreyfuss fyrir
hlutverk sitt í myndinni Goddbye girl,
Woody Allen (Annie Hall), Marcello »
Mastroianni (A Special Day), John
Travolta (Saturday Night Fever).
Af leikkonum hafa verið tilnefndar
Diane Keaton (Annie Hall), Marsha
Mason (The Goodbye Girl), Jane
Fonda (Julia), Shirley Mac Laine og
Anne Bancroft (The Turning Point).
Ermarsundsgöng aftur
komin á dagskrá
Brezk og frönsk járnbrautayfirvöld
hyggjast láta verða af því að grafa göng
undir Ermarsund þar sem það aðskilur
Frakkland og England. Virðist þar með
vera búið að endurvekja hugmyndina
sem brezk stjórnvöld sögðust hafa
hafnað endanlega fyrir þremur árum.
Að þessu sinni er aðeins ætlunin að
hafa göngin einföld, það er að segja að
aðeins verði leyfð umferð frá öðrum
enda gangnanna i einu og einnig er ætl-
Peninga-
falsarar
gripnir
unin að eingöngu járnbrautarlestir noti
göngin.
Fyrri hugmynd gerði ráð fyrir bæði
járnbrautarlestum og bifreiðum.
Kostnaðaráætlanir gera ráð fyrir að
Erlendar
fréttir
kostnaður við gerð ganganna muni
verða nálægt jafnvirði 255 milljarða ís-
lenzkra króna, sem ekki er nema fjórð-
ungur af því sem gert var ráð fyrir að
göngin sem hætt var við fyrir þrem ár-
um ættu að kosta.
Fregnir af þessum nýju hugmyndum
birtust í dagblaðinu The Times í morgun
en brezk stjórnvöld eða stjóm brezku
járnbrautanna hafa ekki viljað segja
neitt um málið ennþá.
Talið er að um það bil 120 járn-
brautarlestir gætu farið um jarðgöngin
undir Ermarsund á degi hverjum.
Ferð milli Parísar og London mun
taka um það bil fjórar klukkustundir,
þar af tæki fjörutíu minútur að fara um
göngin.
Er það nokkru lengri tími en tekur að
fara yfir sundið með loftpúðaskipi en
mun styttri tími en sigling með ferju á
milli brezkra og belgiskra hafna tekur í
dag.
The Times segir ástæðuna fyrir því að
gangahugmyndin sé nú tekin upp aftur
vera inngöngu Breta í Efnahagsbanda-
lagið og aukinn áhuga bandalagsþjóða á
nánara sambandi við Bretland.
Hraðnámskeið:
ÍTALSKA
fyrir byrjendur
hefst miðvikud. 5. apríl kl. 9 e.h. í
stofu 14 Miðbæjarskólanum. Æf-
ingar 2svar í viku, 2 kennslustund-
ir í senn. Alls 20 kennslustundir
6000 kr. sem greiðist við innritun
kl. 8—9 sama kvöld, sama stað.
r
Meðal þeirra þjóða sem leggja
gæzlusveitum Sameinuðu þjóð-
anna lið tíi að halda uppi friði i
Suður Líbanon eru Norðmcnn.
Fyrstu sveitir þeirra eru komnar
suður þangað Á myndinni sést einn
norsku hermannanna sýna forvitn-
um börnum hvar Noregur er á
landakortinu.
Hollenzku og vestur-þýzku lögregl-
unni hefur tekizt að hafa hendur í hári
hóps falsara, sem framleitt höfðu sex
milljónir falskra gyllina.
1 lok siðustu viku voru tveir menn
gripnir við iðju sína í leynilegri prent-
smiðju rétt við landamæri Hollands.
Að sögn lögreglunnar hefur mikið af
100 gyllina seðlum borizt til vestur-
þýzkra banka síðustu mánuði.