Dagblaðið - 03.04.1978, Síða 32
STAL SKARTGRIPUM
— OG SKILADIAFTUR
Aðfaranótt laugardags sl. var inn- Á laugardagsmorgun var innbrot þýfinu. Verzlunareigandi varðsvofeg- manninn og málið er enn í gangi þó
brot framið i skartgripaverzlunina þetta tilkynnt og rannsóknarlögregla inn að ekki var spurzt fyrir um þjófinn verzlunareigandinn sé orðinn
Láru við Austurgötu í Hafnarfirði. rikisins rannsakaði vegsummerki. neitt nánar og ekki eftir honum tekið ánægður með sinn hlut.
Þar var stolið skiptimynt og miklu af Nokkru síðar á laugardagsmorgun svo að hann finnist auðveldlega. Samt . ^St.
alls kyns armböndum og skartgripum. kom innbrotsþjófurinn og skilaði öllu mun lögreglan hafa hug á að finna I
Þó aö fararskjótinn sé ekki stór verður hann aö vera við öllu búinn, Uka vorinu. Jói litli tók þvi fram tvist og bón og fægði sitt
hjól svo unun var á að horfa. DB-mynd JR.
Líkamsárás í nótt:
Rotaður og
nefbrotinn
— árásarmaðurinn
hljóp á brott
Enn ein líkamsárásin var framin í
Reykjavik I nótt. Maður sem var einn á
ferð um klukkan eitt varð fyrir árás á
mótum Reynimels og Hofsvallagötu.
Árásarmaðurinn sem ennþá er óþekktur
réðst að manninum og barði hann niður.
Að svo búnu hljóp árásarmaðurinn á
brott. Sá sem ráðizt var á reyndist nef-
brotinn er skoðun hafði farið fram í
slysadeildinni. ASt.
LeoVE strandar
á Þykkvabæjarfjöru:
SIGLDI
MEÐ
TROLLIÐ
ÚTIUPP
ÁLAND
— sjór er kominní
skipið
Einhver sjór er nú kominn i togbátinn
Leo VE á strandstaðnum á Þykkva-
bæjarfjöru og yfirgaf áhöfnin bátinn í
gærkvöldi. Var hægt um vik fyrir menn-
ina fimm að komast í land á'fjörunni þar
sem báturinn er nánast á þurru. Leo er
um 100 tonn að stærð stálbátur
smíðaður i A-Þýzkalandi 1959.
Það var i gærmorgun að báturinn
sigldi upp i fjöruna i bliðskaparveðri og
björtu. Var hann meðtrollið úti en tog-
bátum er heimilt að veiða alveg upp að
landi á þessu svæði vissa tíma árs.
1 gær gerði varðskip tilraunir til að
draga Leo út en án árangurs. Verður
það sennilega reynt aftur á flóðinu i dag.
Slysavarnarfélagsmenn hafa staðið vakt
við bátinn en skipverjar hafa aldrei verið
í neinni hættu þar sem blíðuveður hefur
verið á strandstað.
Enn er óljóst hvernig þetta furðulega
strand bar að höndum en sjópróf verða
síðar i vikunni. b.!>.
Óvenjuleg endalok
íakstri:
Hafnaðiinnií
bílskúr hjá yfir-
lögregluþjóninum
Ökuferð manns í Keflavík á laugar-
daginn lauk inni í bilskúr yfirlögreglu-
þjónsins í kaupstaðnum. Það telst til
tíðinda vegna þess að bilskúrshurðin var
lokuð og læst og ökumaðurinn ætlaði
sér alls ekki að heimsækja yfirlögreglu-
þjóninn.
Svo hagar til að yfirlögregluþjónninn
býr innst við botnlangagötu en stein-
veggur er í beinu framhaldi götunnar. Er
ökumaðurinn gat ekki hemlað hugðist
hann draga úr hraða með því að sveigja
að bílskúrnum. Hraðinn var of mikill og
billinn fór i gegnum hurðina og inn á
bílskúrsgólfið. Einhver grunur var um
ölvun ökumanns sem ekki var þó
áberandi. ASt.
Vorið er á næsta leiti, það fer ekki milli
mála. Gömlu mennirnir segja að visu að
páskahretið gæti verið eftir en við von-
um ekki. í morgun þegar augu manna
opnuðust fyrir hversdagsleikanum aftur
var gott að finna hlýjuna og vorilminn i
loftinu. Hiti var um allt land, að vísu
misjafnlega mikill, en hiti þó. Heitast
var á Galtarvita, 7 stig, en kaldast á
Dalatanga, aðeins eitt stig. í Reykjavík
voru stigin fimm. Og hiti á að breytast
lítið að sögn veðurfræðinga. Það er því
ekki seinna vænna að fara að búa allt
undir sumarkomuna.
• DS
Galdra-Baldur lætur til skarar skríða:
Ætlar að „skera”
i sjónvarpsþættinum
á laugardagskvöldid
Baldur Brjánsson sjónhverfinga-
maður, sem fullyrti i sjónvarpsþættin-
um Kastljósi á föstudagskvöldið að
hann gæti ekki siður en filippínskir
andalæknar gert skurðaðgerðir með
berum höndunum hefur ákveðið að
láta til skarar skríða. I sjónvarpsþætti
næstkomandi laugardagskvöld ætlar
Baldur að skera mann nokkurn hol-
skurð og taka úr honum sýkta vefi og
æxli.
Baldur Brjánsson telur að þær kvik-
myndir sem sjónvarpið hefur sýnt af
filippinsku andalæknunum í starfi sýni
ekkert annað en duglega sjónhverf-
ingamenn. 1 viðtali við Ómar Ragnars-
son i Kastljósi á föstudaginn sagðist
Baldur hiklaust geta gert slíkar „að-
gerðir” sjálfur.
Þegar leið á helgina höfðu um 80%
félaga i íslenzkum andatrúarfélögum
haft samband við Baldur vegna þess-
ara ummæla hans og látið I Ijós von-
brigði sín vegna þeirra — heiðarlegir
piltar ættu ekki að slá svona nokkru
fram fyrir alþjóð — það væri
ábyrgðarleysi á hæsta stigi.
Baldur tók þá ákvörðun að sýna al-
þjóð fram á loddarabrögð filippínsku
andalæknanna og mun, eins og áður .er óákveðið hver verður ristur á hol
segir, gera það i nýjum fjölskylduþætti með töfrahöndum Baldurs.
sjónvarpsins á laugardagskvöldið. Enn • ÓV
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1978.
Leikhús áhugamanna
gerirþað gott:
Miðarnir
seljast upp á
fimm mínútum
Suðurnesjamenn þurfa ekki þessa
dagana að leita langt yfir skammt til að
fara í leikhús. Sandgerðingar frumsýndu
„Skírn” eftir Guðmund Steinsson á
annan páskadag við húsfylli . Siðan hafa
verið þrjár sýningar og aðgöngumið-
arnir hafa selzt upp á fimm mínútum,
enda þykir sýningin hafa heppnazt mjög
vel, að kunnugra sögn. Næsta sýning
verður á fimmtudag en degi síðar frum-
sýna Grindvíkingar sitt annað verkefni
á leikárinu, „Seðlaskipti og ást”, eftir
Loft Guðmundsson undir leikstjórn
Guðveigar Sigurðardóttur, Þetta er
hennar fyrsta leikstjórnarverk, en hún er
form. L. G.
íslenzku höfundarnir þurfa ekki að
kvarta um áhugaleysi fyrir verkum
þeirra á Suðurnesjum. Leikfélag Kefla-
vikur frumsýnir í Stapa hinn 10. apríl
„Herbergi 213” eftir Jökul Jakobsson.
Þórunn Sigurðardóttir er leikstjóri hjá
þeim Keflvíkingum. Sjaldan hefur L.K.
átt léttari daga í sambandi við leiksviðs-
búnað. Duusverzlunin í Keflavík lánar
þeim öll húsgögnin í ríkmannlega stof-
una en sliks munu fá dæmi að verzlanir
sýni þann skilning á leiklistinni, a.m.k.
hjá áhugamannafélögum.
Á laugardagskvöldið efndu leikfélögin
fjögur á Suðurnesjum til sameiginlegrar
árshátiðar i Stapa og var þar þröng á
þingi, við söng, glens, gaman og dans.
emm.
Forvali lokið
íBorgarnesi
Alþýðubandalagsmenn I Borgarnesi
efndu til bindandi forvals um tvo efstu
menn á lista til sveitarstjórnarkosninga
þar núna I vor.
í fyrri umferð voru einungis félags-
menn þátttakendur en i siðari umferð
var kjörgögnum ennfremur dreift til
yfirlýstra stuðningsmanna Alþýðu-
bandalagsins.
137 skiluðu kjörgögnum en þar af var
einn seðill auður.
Niðurstöður urðu þær að Halldór
Brynjólfsson, sem verið hefur hrepps-
nefndarmaður Alþbl., hlaut 69 atkvæði
og Jenni Ólason skrifstofumaður varð
annar með 84 atkvæði i fyrsta og annað
sæti. -HP
Sælistofnar
veitingahús
Sigursæll Magnússon aðaleigandi
Tjarnarbúðar og Sæla Cafés hyggur nú
á stofnun kaffiteríu sem jafnframt gæti
þjónað sem skemmtistaður. Málið er
ennþá á umræðustigi og vildi Sigursæll
ekki láta uppi hvar hinn nýi skemmti-
staður yrði staðsettur nema það eitt, að
hann yrði ekki i Breiðholtinu. Þess má
geta, að eins og liklega flestir vita, þá er
enginn skemmtistaður' í þvi ágæta
hverfi, sem einnig er nefnt Gólanhæðir,
ekkert bíó og engin kirkja. Samt búa þar
um eða yfir 20 þúsund manns. - DS
Litlafellið sigldiá
Bark-bryggju
Olíuskipið Litlafell rakst utan í gamla
hafskipabryggju á Reyðarfirði sl. laugar-
dag og skemmdi hana verulega, braut og
skekkti. Bryggjan er þó vel viðgerðar-
hæf.
Hér er um að ræða bryggju sem
heimamenn kalla „Bark”, enda er hún
byggð úr gömlu barkskipi. Um langt
skeið var þetta eina hafskipabryggjan á
Reyðarfirði en er nú notuð til fisklönd-
unar. ÓV/VÓ, Reyðarfiröi. ig