Dagblaðið - 05.06.1978, Page 3

Dagblaðið - 05.06.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNl 1978 Spurning dagsins 3 ER ANDARNEFJAN ÚTDAUÐ? Rósa B. Blöndals skrifar: Dr. Helgi Pjeturss segir i Grænlandsför sinni 1897 um hvali og hvalfangara: „Hvali sáum við nokkrum sinnum (á leiðinni til Grænlands), en það var þó miklu sjaldnar en ég hafði búizt við á svo löngum tíma. Hvaladráps- mennirnir hafa gengið alltof vel fram í Norðurhöfunum. eins og annars staðar. Það prýddi ekki lítið útsjónina, þegar gljásvört bökin á þessum risa- dýrum hvelfdust upp úr sjónum og hvítir strókarnir gusu upp með drynjandi blæstri. Það voru helzt and- arnefjur, sem sáust. Það er sorglegt að vita, hve oft menn hafa drepið þessi einkennilegu og skemmtilegu dýr hugsunarlaust og að þarflausu. Skipstjórinn á Perú sagði mér frá því, að skipverji hjá honum hefði einu sinni skotið á hval, sem kom upp rétt hjá borðstokknum. Lét hann mikið yfir því, hve gaman það hefði verið að sjá, hvernig dýrinu brá og hvernig það þeytti blóðinu upp í háaloft. Það var þó ekki erfitt að fá skipstjórann, sem var góðmenni, ofan af þeirri skoðun, að það væri góð skemmtun að kvelja skepnur sem hefðu taugar og gætu fundið til. Og það mun lika oftar vera af hugsunar- leysi og heimsku en eiginlegri mannvonzku, þegar menn hafa gaman af sliku.” Á þessum orðum sést, að dr. Helgi Pjeturss náttúrufræðingur, spekingur og spámaður um margt, er síðar hefur komið fram, hefur þegar um aldamót séð hvert stefndi í hval- drápunum. Á þessum tímum var ísland hval-auðugt land og hvalvöður tíðar inn á firði landsins. Nú er þeirri auðlegð lokið. Og hvalveiðarnar fara allar fram á þeim slóðum eða þar i grennd, sem dr. Helgi Pjeturss taldi rétt fyrir aldamót, að hvölum hefði ískyggilega fækkað fyrir ofveiði. Er andarnefjan útdauð? — Vilja þeir vísindamenn, sem mæla með hvalveiðum, upplýsa það? Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI Borvél og fleygur, sérlega hentug fyrir rafvirkja, pípulagningamenn og byggingameistara. Tekur bora upp í 32 mm og hulsubora upp í 50 mm. Slær 2400 högg/mín. og snýst 250 sn/mín. Mótor 680 wött. Þetta er hin heimsfræga Skil-sög, hjólsög sem viðbrugðið hefur verið fyrir gæði, um allan heim í áratugi. Þvermál sagarblaðs: 7'A". Skuröardýpt: beint 59 mm, við 45° 48 mm. Hraði: 4,400 sn/mín. Mótor: 1.380 wött. Fullkomin iðnaðarborvél með tveimur föstum hraðastillingum, stiglausum hraðabreyti í rofa, og afturábak' og áfram stillingu. Patróna: 13 mm. Hraðastillingar: 0-750 og 0-1500 sn/mín. Mótor: 420 wött Létt og lipur stingsög með stiglausri hraðabreytingu í rofa. Hraöi: 0-3500 sn/mín. Mótnr: 350 wött. öflug beltaslípivél með 4" beltisbreidd. Hraði: 410 sn/mín. Mótor: 940 wött. Mjög kraftmikill og nákvæmurfræsari. Hraði: 23000 sn/mín. Mótor: 750 wött. Stórviðarsögin með bensínmótor. Blaðlengd 410 mm og sjálfvirk keðju- smurning. Vinkilslípivél til iðnaðarnota. Þvermál skífu 7”. Hraði: 8000 sn/mín. Mótor: 2000 wött. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboð á íslandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Óviðjafnanlegur hefill með nákvæmri dýptarstillingu. Breidd tannar:3”. Dýptarstilling: 0-3.1 mm. Hraði: 13.500 sn/mín. Mótor: 940 wött. Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri gerðir og stærðir af Skil rafmagns- handverkfærum, en hér eru sýndar, ásamt miklu úrvali hagnýttra fylgihluta. Komið og skoðið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. Ætlarðu að horfa á kosningasjónvarp f yrir alþingiskosning- arnar? Gunnlaugur Jónsson, Hrafnistu: Ég get ekki svarað þvl núna. Ég er á móti ráðherrunum öllum. Lilja Magnúsdóttir húsmóðir: Já. ég er að hugsa um að gera það. Ég horfði á þættina fyrir borgarstjórnarkosning- arnar og mér fannst þeir alveg prýðilegir. Fjóla Kristinsdóttir matráðskona: Já. það ætla ég að gera. Ég vonast til þess að þeir verði eins góðir og borgarstjórnar- þættirnir. Magnús Hauksson: Já. ég reikna með þvi. Ég horfði á þættina sem voru fyrir borgarstjórnarkosningarnar og fannst þeir al^veg þokkalegir. Mér finnst þeir alveg tvimælalaust eiga rétt á sér. Friðgeir Baldursson rennismiðun Alveg áreiðanlega. Þættimir sem voru fyrir borgarstjórnarkosningarnar voru alveg stórkostlegir. Mér finnst slikir þættir alveg fyllilega eiga rétt á sér til þess eins að leyfa fóki að fylgjast með. Karl Guðlaugsson, vinnur hjá Reykja- víkurborg: Ég held að það sé alvcg öruggt. Mér fannst til dæmis þættirnir fyrir borgarstjórnarkosningarnar alveg ágætar og ég held að þeir eigi eindregið rétt á sér

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.