Dagblaðið - 05.06.1978, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNt 1978
8
Sautján létustí
brfreiðaslysi
Sautján manns létust í árekstri
tveggja fólksflutningabifreiða, sem
varö í Tyrklandi á laugardaginn.
Auk þess munu tíu farþeganna
hafaslasaztalvarlega.
Pólverjar taka
vestur-þýzkan
bát í landhelgi
Vestur þýzkur fiskibátur var í
gær tekinn við meintar ólöglegar
veiðar innan pólskrar fiskveiði-
landhelgi á Eystrasalti. Að sögn
vestur-þýzkra yfirvalda var farið
með bátinn til hafnar í Póllandi.
Báturinn sem er 194 tonn og með
þriggja manna áhöfn var að sögn
að veiðum ásamt tuttugu dönskum
fiskibátum 42 milur undan pólskri
strönd er þarlendir landhelgis-
gæzlumenn komu á vettvang og
tóku vestur-þýzka bátinn en létu
hinadönskuóáreitta.
Hundruð þús-
unda þjást af
hungri í Eþíópíu
Hundruð þúsunda í Eþiópiu
þjást af hungri og þorsta sem
stafar af langvarandi þurrki, sein
verið hefur i héruðum norðaustur
af Addis Ababa, höfuðborg
landsins. Að sögn útvarpsins i
höfuðborginni hafa ntargir látízt
nú þegar af völdum eitrunar i
gróðri, sem fólk hefur lagt sér til
munns. Þrátt fyrir þessar fregnir er
talið hjá Efnahagsbandalaginu i
Brussel að ástandið ís Eþíópiu sé
mun betra en fyrir nokkrum árum.
Hafi orðið þar byltingarkenndar
breytingar siðan Haile Selassie
keisara var steypt af stóli árið
1974.
Asni ákærður
fyrir morð
Asni hefur verið ákærður fyrir
morð á eiganda sínum. Gerðist
þetta í Pakistan og er dýrið talið
hafa bitið eigandann i hnakkann
er hann var að gefa því að éta.
Vitni upplýsir að rétt áður hafi
eigandinn lamið asnann til að
hann færi á siallinn en það hafi
greinilega verið asnanum mjög á
móti skapi.
Matargestirnir
fá arðinn
Vietnamskur veitingamaður i
borginni Pontiac i Michigan í
Bandarikjunum ætlar að láta við-
skiptavinina njóta góðs af hagnaði
sínum af matstaðnum, sem hann
rekur. Á síðasta ári segist hann
hafa hagnazt um tiu þúsund doll
ara eða jafnvirði 2,6 milljóna
króna og á það að skiptast á milli
hinna fimmtán hundruð föstu við-
skiptavina eftir viðskiptum þeirra.
Með þessu vill hinn fjörutíu og
tveggja ára Vietnami endurgjalda
þá aðstoð, sem hann segist hafa
fengið, er hann kom snauður
flóttamaður lil Bandaríkjanna að
loknu striðinu í Vietnam.
Fjórir farast í
kolanámueldi
Vitað er að i það minnsta fjórir
menn hafa látizt i miklum eldi sem
geisaði i kolanámum við borgina
IBytom í Póllandi um helgina.
Eldurinn varð af bilun í rafkerfi
tengdu loftræstikerfi námanna.
Mennirnir sem létust munu hafa
orðið fyrir sprengingu er
myndaðist af gasi og ryki sem
safnaðisf i eina álmu námanna.
Ávísunin þús-
undfaldaöist hjá
þeim atvinnu-
lausa
Atvinnulaus hljómlistamaður í
Los Angeles hélt að hann hefði
gripið gullgæsina. þegar hann
komst að raun um að sex hundruð
dollara ávisunin, sem hann ætlaði'
að skipta i banka átti að grciðast
með 600.000 dollurum. Fékk hann
16.000 dollara í reiöufé en afgang-
inn 584.000 í strikuðum tékka og
hélt síðan hinn ánægðasti á braut.
Er mistökin voru uppgötvuð
komst lögreglan í spilið. Náð var í
nýríka hljómlistamanninn. Allt
féll þó í Ijúfa löð, hann greiddi til
baka alla peningana nema 600
dollarana og bankinn kenndi tölv-
unni um allt saman.
Sérfræðingur í
brjóstsykurs-
verði
Chang Ping-Kuei er brjóst-
sykursali, sem aðrir slikir eiga að
taka sér til fyrirmyndar að áliti
kinverskra yfirvalda. Hann þekkir
verðið á áttatíu brjóstsykursteg-
undum og ekki nóg með það held-
ur er alveg sama hve marga brjóst-
sykra beðið er um, Chang veit
verðið. Hann starfar í sælgætis-
deild stórverzlunar einnar i Peking
og hefur kinverska fréttastofan
Hsinhus vakið athygli á þessum
sextuga afgreiðslumanni öðrum til
eftirbreytni.
Sextíu hvítir
gíslar drepnir
Innrásarliðiö í Shabahéraði
Zaire lét drepa sextíu hvita gisla
hinn 27. maí siðastliðinn að sögn
dagblaðsins Eli Elima i Kinshasa i
gær. Gíslamir voru teknir er her-
liðið flúði frá Kolwezi rétt áður en
franskir fallhlífahermenn náðu
borginni á sitt vald. Að sögn
blaðsins skipaði foringi innrásar-
liðsins fyrir um aftöku gislanna
eftir að hann hafði sjálfur særzt
alvarlcga og auk þess voru ekki til
nægar birgðir matar fyrir herliðið
og gíslana.
Jackie Gleason
á sjúkrahús
Gamanleikarinn frægi Jackie
Gleason gekk undir hjartaupp-
skurð síðastliðinn laugardag.
Læknar á sjúkrahúsinu í Chicago
þar sem aðgerðin fór fram sögðu
leikarann, sem er 62 ára
gamall, vera við bærilega heilsu
eftir uppskurðinn sem tók fimm
.klukkutima.
Ætluðu að
hækka úraníum-
verðið ólöglega
Gulf oliufyrirtækið bandariska
var á föstudaginn sektað um
40.000 dollara fyrir að hafa gert
tilraun til þess fyrir nokkrum árum
að hækka verð á úraníum með
ólöglegum aðgerðum. Ekki var
getið um santstarfsaðila Gulf fyrir-
tækisins. Á tímabilinu frá 1972
til 1974 hækkaði verð á hrá-
úraníum úr sex dollurum pundið
upp í meira en fjörutíu dollara.
Kína skammar
Sovét fyrír
Shabastríðiö
— bandarískarflugvélarflytja Marokkóhermenn tilZaire
Huang Hua utanríkisráðherra, sem
er í opinberri heimsókn i Zaire, réðst
harkalega á Sovétríkin í gærkvöldi
fyrir að vilja reyna að ná áhrifum þar.
Einnig skammaði hann Kúbu og
Sovétrikin fyrir þátt þeirra í innrásinni
í Shabahérað í fyrra mánuði.
„í stórveldakeppninni vilja sovézkir
heimsvaldasinnar ná völdum i Zaire,”
sagði utanríkisráðherrann. „Innrásin í
Shabahérað er ekki einangrað atvik
heldur aðeins einn þáttur í áætlun um
yfirráð alls heimsins,” sagði hann enn-
fremur.
Nokkur vestræn riki, sem hags-
muna hafa að gæta i Zaire, þinga nú í
París um aðgerðir til að tryggja Zaire-
stjórn Mobutos í sessi.
Bandarískar flutningaflugvélar
vinna að þvi að flytja marokkanska
hermenn til Zaire en þeir eiga að taka
við af frönsku útlendingahersveitinni
þar. Fimm riki, fyrrum nýlendur
Frakka, eru talin likleg til að leggja til
hermenn i sameiginlegar afrikanskar
hersveitir, sem eiga að starfa sem
nokkurs konar friðarsveitir þar um
slóðir.
Sovétmenn eru að sjálfsögðu heldur
óhressir yfir framtaki vestrænna ríkja
og fylgifiska þeirra i Zaire og hafa
kallað það nýja tegund af sameigin-
legri heimsveldastefnu, sem sýni Ijós-
lega að gömlu nýlenduveldin ætli ekki
að sleppa tökunum á rikjum Afríku.
Charles Bretaprins var á ferð fyrir helgina I Newcastle og þó íbúar þar fögnuðu honum flestir bærilega þá var einn þeirra þó
ekki hrifnari en að hann hljóp til er bifreið prinsins fór framhjá og kastaði gosdrykkjaflösku i rúðu hennar svo hún sprakk.
Ekki varð Charles þó meint af og gat brosað framan i fólk eftir sem áður. Lögreglan tók tilræðismanninn en honum er lýst
sem hávöxnum, kraftalegum og með dökkt alskegg.
Frjálsir demó-
kratar tapa
fyrir umhverf-
ismönnum
Frjálsir demókratar töpuðu miklu
fylgi í héraðskosningum i Neðra-Sax-
landi og Hamborg um helgina. Náði
flokkurinn ekki tilskildum 5% at-
kvæða til að fá þingmenn kjörna.
Vaniaði 0,2% uppá i Neðra-Saxlandi
og 0.8% í Hamborg. Ástæðan fyrir
fylgistapi flokksins er talin sú að um-
hverfisverndarmenn fengu 4.5% at-
kvæða i Neðra-Saxlandi og 3,9% i
Hamborg. Hefur þeirn mjög vaxið
fiskur um hrygg vegna mikilla deilna
um hvort leyfa eigi byggingu kjarn-
orkuvera.
Stóru flokkarnir kristilegir demó-
kratar og sósíalistar hlutu svipað fylgi
og i síðustu kosningum munu hinir
siðarnefndu stjórna áfram í Hamborg
en kristilegir demókratar i Neðra-Sax-
landi. Þó geta þessi úrslit valdið erfið-
leikum fyrir samsteypustjórn sósialista
og frjálsra demókrata því hinir siðar-
nefndu munu missa þingmenn í efri
deild þingsins í Bonn vegna taps sins.
Thailand:
Aukið eftirlit
meðættleiðingum
ogútflutningi
smábarna
Stjórnvöld i Thailandi hafa ákveðið
að strangari reglur og meira eftirlit
verði hér eftir haft með ættleiðingum
thailenzkra barna en verið hefur hing-
að til. Eru þessar ráðstafanir gerðar i
framhaldi af þvi að upp komst um
.glæpasamtök sem önnuðust viðskipti
með börn frá Thailandi sem seld eru til
annarra landa.
Nýju reglurnar eiga að koma i veg
fyrir ólöglegar ættleiðingar og að börn
séu flutt úr landi á ólöglegan hátt.
Einnig voru sett ákvæði sem stemma
eiga stigu við að thailenzkar konur
flytji til útlanda og gcrisi þar
gleðikonur.
REUTER