Dagblaðið - 05.06.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ1978
Kína dregur úr
aðstoð við Viet
nam
Kina hefur dregið mjög úr
aðstoð sinni við Vietnam og að
sögn japanskrar fréttastofu nemur
hún aðeins rúmlega tíunda hluta
þess sem aðstoðin var áður.
Aðgerðir kinversku stjórnarinnar
eru afleiðingar deilna rikjanna
vegna brottflutnings um það bil
eitt hundrað þúsund Kínverja frá
Vietnam á síðustu vikum. Kinverj-
ar hafa sakað Vietnam um að hafa
ofsótt, skotið á og jafnvel rænt
flóttamennina. Fregnir hafa borizt
af ofbeldi gagnvart Kinverjum,
sem starfað hafa við hrísgrjóna-
rækt innan landamæra Vietnam.
Talið er að flest fólksins sem er af
kínversku bergi brotið og snúið
hefur aftur á heimaslóðir hafi
stundað verzlun i Vietnam.
9
Erlendar
fréttir
Skæruliðar
sprengdu vöru-
geymslu
Skæruliðar írska lýðveldishers-
ins kveiktu í stórri vörugeymslu á
föstudaginn og mun tjónið nema
jafnvirði 2,5 milljarða íslenzkra
króna. Þrem sprengjum var komið
fyrir á ýmsum stöðum í húsinu og
tók það slökkviliðið meira en fimm
klukkustundir að ná tökum á
eldinum. Þá höfðu gámar, lyftarar
og hundruð tonna af vörum eyði-
lagzt.
Bundinn og
skotinn til bana
Tvitugur maður fannst skotinn
með hendur bundnar á bak aftur á
vegarkanti um það bil 75 kiló-
metra suðvestur af Belfast i
írlandi á föstudaginn. Ekki var
vitað um nafn mannsins né hverjir
höfðu skotið hann.
Fimm hæða skrifstofubygging
norður-irska gasfyrirtækisins i
Belfast var gjöreyðilögð á föstu-
daginn er fimm sprengjur sprungu
i henni.
Tvenn göng úr
spænsku fang-
elsi
Fangelsisyfirvöld i Barcelona
fundu í gær önnur göng sem fang-
ar í Modelo fangelsinu þar höfðu
grafið samhliða göngum, sem
fjörutíu og fimm þeirra flúðu um á
föstudaginn. Komust þeir út í
skolpræsi og þaðan upp á götuna
utan við fangelsið. Sumir þeirra
sem flúðu eru sagðir hættulegir og
hafa setið í fangelsi fyrir vopnuð
rán.
Gyðingamorð-
inginn mátti
ekki vera að
því að borða
Nastistaforinginn Gustav Franz
Wagner var forðum svo áhuga-
samur við starf sitt í útrýmingar-
búðum fyrir Gyðinga að hann gaf
sér tæpast tima til að matast. Kom
þetta fram í vitnisburði eins
fyrrum fanga i búðum þeim sem
Wagner var foringi i. Hann er
sakaður um að bera ábyrgð á drápi
150.000 Gyðinga í Sobidor búðun-
um í Póllandi á timum siðari
heimsstyrjaldarinnar og er nú i
gæzlu yfírvalda i Brasilíu.
Baskar særa
hermann
Skotið var á bækistöðvar her-
flokks á Norður-Spáni á laugar-
daginn. Einn maður særðist. Talið
er að þar hafi skæruliðar Baska
verið á ferðinni. Er þetta önnur
árásin af þesssu tagi siðustu vik-
urnar en ábyrgð á hinni fyrri lýstu
Baskaskæruliðará hendur sér.
8
REUTER
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
Kosningagetraun Rauða krossins er einföld. Leikurinn erfólginn í því að giska
á hvað flokkarnir fái marga þingmenn í komandi alþingiskosningum.
Miðinn kostar 500 krónur og fara
20% af andvirði seldra miða.í vinn-
inga þannig að seljist 50 þúsund
miðar verður potturinn 5 milljónir
króna, sem þeir getspöku skipta á
milli sín. Seljist 100 þúsund miðar
verður potturinn 10 milljónir, o.s.frv.
Allir skilmálar eru á miðanum.
Gottmálefhi
Félaginu er nauðsyn að efla hjálpar-
sjóð sinn til mikilla muna svo hægt
sé að bregðast við hjálparbeiðnum í
skyndi innlendum og erlendum.
Allar tekjur af getrauninni fara til
þess að efla hjálparsjóðinn.
I öllum kosningum getur hvert
atkvæði vegið þungt - í kosninga-
getrauninni vegur hver getrauna-
seðill þungt fyrir Rauða krossinn -
og hann getur líka fært getspökum
eiganda drjúgan vinning.
Sölukerfí /Sölustaðir
Félagar í Rauða kross deildum um
land allt munu sjá um sölu miðanna
alveg til kl. 18 á kjördag. Deildirnar
auglýsa aðra sölustaði. Félagar
verða á ferðinni um borg og bí, á
mannamótum, við verslunarmið-
stöðvar og víðar. í flestum apótek-
um og víðar verða Rauða kross
stampar til þess að skila getrauna-
seðlum í.
Hverju spáir þú um kosningarnar? Það er spurningin.
Við spáum því að potturinn verði stór.