Dagblaðið - 05.06.1978, Side 15

Dagblaðið - 05.06.1978, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNl 1978 að skrifa bréf til skóla í Flórens og lýsnar duttu úr höfðinu á mér og marseruðu yfir pappírinn. Það var vinur minn Jón Sen sem bjargaði mér og ég vann hjá honum við rafmagns- tækjabúnað — maskínurnar aftur...” A.Ij „Nú hafa mósaíkmyndir þínar frá Ravenna, frá 1953—4, ávallt komið mér einkennilega fyrir sjónir — gjörólíkar öllu sem þú hefur gert. Hvað lá að baki þeim?” Erró: „Þú mátt ekki gleyma að ég vann við viðgerðir á mósaík i kirkjum I Ravenna, t.d. að loftinu I hinni frægu San Vitale. En mínar myndir voru fyrst og fremst söluvara, lifibrauð. Og þær seldust stórkostlega vel og björg- uðu mér fjárhagslega um tíma. En þær hafa örugglega þroskað litaskyn hjá mér — þarna þurfti maður að raða saman öllum litatónum sama litar, til dæmis. En dvölin í Flórens markar að mörgu leyti tímamót í minu starfi. Þar kynntist ég Jean Jacques Lebel, syni frægs listfræðings, og karlar eins og Duchamp og Max Ernst höfðu bók- staflega dillað Jean á hné sér sem barni. Hann var sneisafullur af nýjum hugmyndum, vissi mikið og sýndi mér myndir af verkum súrrealista og dada- ista. Hann hjálpaði mér einnig mjög þegar til Parisar kom við að koma mér inn i listaheiminn þar. Nú, svo bjó ég með Fernando Botero (þekktur málari frá Kólumbiu) og kynntist hressum listamönnum frá Suður-Ameríku sem margir standa nú framarlega. Þetta hleypti kappi i kinn.” A.I.: „í myndum þínum frá þessum árum í Flórens sýnist mér móta fyrir þroskuðum stíl hjá þér. Maður sér vél- menni ýmiss konár, alls kyns óhugnanlegar verur og mikið er um umbrot og átök í myndunum.” Erró: „Jú, en þú manst að í Flórens er merkilegt safn af herklæðum, brynj- um og vopnum. Þarna teiknaði ég og þaðan eru einhver áhrif komin. Svo kóperaði ég anatómískar teikningar Leonardos og skoðaði allar kirkjur i bænum. Þar rissaði ég stellingar i freskum, gerði athugasemdir við fas ákveðins fólks i myndunum o.s.frv. Þetta var skemmtilegur timi. Þá voru allir á vespum og á þeim brunuðum við um allt, jafnvel til Sienna til að kaupa litaduft til að búa til eigin liti. Eins og þú veist koma þaðan sérstakir litir. t.d. „burnt Sienna”. Og mikill glaumur og gleði var i kringum Suður- Amerikumennina. Skólinn sjálfur var i gömlu klausri nálægt San Lorenzo en þar i kjallara var einnig prentsmiðja og róttækir kunningjar Lebels vinar míns komu þarigað frá París til að láta prenta alls konar súbversífa texta sem ekki fengust prentaðir i Frakklandi — en þar ríkti mikil móðursýki vegna Alsirmálsins. Við gerðum þá gjarnan myndir eða kápur við þau rit.” A.I.: „Hvaða listamenn heldurðu að hafi helst höfðað til þín þá?” Erró: „Nú, ég var rétt að kynnast nýj- um listamönnum. Ég hafði verið sodd- an sakleysingi — þekkti Píkassó, Braque, Matiesse — en Lebel kynnti mig fyrir súrrealistum og ég fann að þeir höfðuðu til mín á einhvern óút- skýranlegan hátt. Síðan hef ég verið alæta á allt slikt, skoðað allt.” Hjartanlega sama um túlkun fólks A.Iu „Árið 1956 ert þú giftur Myriam Bat-Yosef og dvelur i Jaffa. Þar gerir þú m.a. klippimyndir sem nú mundu kallaðar „popp” og þeirri iðju heldur þú áfram i Paris 1958. Hafðir þú kynnst þessum frurri-hugmyndum breskra poppara?” Erró: „Nei, ég vissi ekkert um þá. Þá voru þeir að byrja, var það ekki? Þó gerði Paolozzi klippimyndir um 1950, að ég held. Nei, þetta voru mest- megnis persónulegar hugmyndir. Síðar kynntist ég verkum Heartfield, þýska dadaistans sem var frumkvöðull i „photomontage” og hann hreif mig.” A.I.: „Inntak þessara mynda er greini- lega gagnrýnið — á hernað, sprengj- una, og auglýsingaiðnaðinn.” Erró: „Jú. Þá var uggur i mönnum vegna sprengjunnar. Menn fóru í miklar kröfugöngur til að mótmæla henni. Þetta var í loftinu.” A.I.: „Hefur ekki ádeila verið ríkur þáttur af verkum þínum siðan? Ég minnist t.d. myndarinnar sem þú gerðir eftir Sharpeville-morðin i S- Afríkuárið 1961.” Erró: „Jú — en það er kannski nær að kalla það viðbrögð fremur en ádeilu. Adeila felur í sér hvatningu eða ósk um breytingu. Bækur geta breytt heiminum en málverk varla. Þau eru máluð eftir að hlutirnir gerast. Mínar myndir eru margar afleiðingar af bein- um tilfinningalegum viðbrögðum mínum við einhverju sem gerist. Nú, svo verða sumar af mínum pólitisku myndum til fyrir tilstilli annarra sem panta slíkar myndir. Myndin af Toppino og Allende er þannig til- komin. En að myndunum loknum er mér raunar hjartanlega sama hvernig fólk túlkar þær. Myndinni er lokið og þá er hún eign heimsins. Ég veit oft ekki hvað ég hef sjálfur verið að segja i þeim og þá vil ég gjarnan fá vini mína, sem eru bókmenntasinnaðir, til að spá í myndirnar. Menn eins og rithöfund- inn Robbe-Grillet og gagnrýnandann Alan Jouffroy.” A.I.: „Varstu fljótur að kynnast fólki þegar þú settist að í París 1958?” Erró: „Já, já, ég hef ávallt átt gott með það. Lebel hafði þarna mikið að segja, Jouffroy sömuleiðis. Þeir kynntu mig fyrir málurum sem áttu við svipuð myndræn vandamál að stríða og ég.” A.I.: „Hvernig var að byrja í París á þeim tíma?” Erró: „Það var rosalegt. Buffet var i tísku og allir máluðu I grámuskulegum litum. Kannski þess vegna sem mörg málverk mín frá þessum tima eru í gráu. Einhvern veginn varð maður að lifa. Ég hafði unnið mér fyrir pening- um með vinnu i Jaffa, fyrir appelsínu- kompani auðvitað (hlær), og þeir nægðu til að leigja vinnustofu. Myriam stóð sig afar vel, það verð ég að segja. Hún gerði það sem ég hefði aldrei haft geð í mér til að gera — hún arkaði milli gallería og sýndi þeim myndir mínar og það nægði til að byrja með. Stuttu síðar komu ítalskir safnarar til sögunnar og þeir björguðu méralveg.” A.I.: „í Paris fer að bera á áhrifum frá súrrealistum, eins og Matta?” Erró: „Mikil ósköp, já. Lebel kynnti mig fyrir Matta og hann bauð mér að vinna með sér á föstudögum. Við unn- um svo saman heilan vetur. Ég hafði mikinn áhuga á Matta, hann málaði á stór léreft og hann vann með fígúrur sem hreyfðust á alía vegu. Nú, sam- vinna okkar gekk þannig fyrir sig að hann málaði bakgrunn og ég bætti fig- úrum inn á og siðan skiptum við um — ég málaði bakgrunninn og hann fíg- úrurnar. Þetta var mér afar lærdóms- ríkt og ég held satt að segja að Matta hafi einnig haft gott af þessu. Nú, Lebel kynnti mig einnig fyrir læri- föður Matta, Duchamp. Með honum borðaði ég oft, hann var yndislegur karl með skemmtilega kímnigáfu. Man Ray hitti ég einnig oft.” A.I.: „Má ekki finna hugarfar Duchamps í klippimyndum þínum frá þessum tíma, þær eru meinhæðnar og gera gys að öllu mögulegu, páfanum, háttsettu fólki o.s.frv.?” Erró: „Þetta var kannski ekki bitur satíra heldur ærsl, kátina. Þegar ég gerði gys að listheiminum, gagnrýn- endum, listasöfnurum o.fl. þá tók þetta enginn reglulega alvarlega. Þetta var útrás, sprell. I framhaldi af þvi efndum við einnig til uppákoma þar sem alls kyns furðulegir hlutir gerðust.” A.I.: „Var þá engin alvara á bak við árásirá listheiminn?” Erró: „Æ, ég held að okkur hafi ekki fundist taka því að taka þá alvarlega sem þar voru.” (Síðari hluti viðtalsins birtist á morg- un). Myndlist ! -! ^ 1 •% '&iij : f ir |ll> ú -.1 ‘ 1 1 ■fafc. - *§fsi|£ ca. kr. 3.450.000- ALLT ÞETTA ER INNIFALIÐ I VERÐI: Upphituð afturrúða, tauáklæði, bólstrað stýri, höfuðpúðar, 5 gírar, öryggisstýri stillanlegt, tveggja hraða þurrkur teppi, klukka, snúningshraðamælir, þjófalás á stýri, stillanleg bök á framsætum, olíuþrýstimælir, hitastokkar afturí, fjögur Halogenljós. tvöfaldir hurðaþéttilistar. Fullkomin ryðvörn, skrásetning og fullur af bensíni. LANCIA BETA erframhjóladrifinn. Diskabremsur á öllum hjólum. 4ra dyra, rúmgóður 5 manna bíll. LANCIA BETA BÝÐUR AÐEINS ÞAÐ BESTA: Orku, þægindi, öryggi og lágan rekstrarkostnað. LANCIA BETA er því sannarlega boðlegur þeim sem gera kröfur. Hljóð- og hitaeinangrun er milli vélar og farþegarýmis, því er bíllinn sérlega hljóður í keyrslu. Ný gerð mæla og mattsvart mælaborð. Árangur LANCIA í Rall keppnum er í sérflokki. Nú heimsmeistari í World Rally Championship, hvert árið á eftir öðru. BJORNSSON ÍLÉ2. BÍLDSHÖFÐA 16 —SIMI 81530

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.