Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNl 1978 Iþróttir Iþróttir 9 16 « Iþróttir Iþróttir Ungverjar f leikbann Aganefnd FIFA — alþjóðaknattspyrnusambandið — skýrði frá því i Buenos Aires á laugardag, að ungversku leik- mennirnir tveir, sem reknir voru af velli i leiknum við Argentínu, fengju leikbann i einn leik hvor. Það þýðir, að þeir Tibor Nyilasi, framvörður og Andras Torocsik, miðherji, geta ekki leikið í liði Ungverjalands gegn Ítalíu á þriðjudag. Hollenzkir blaðamenn aðvaraðir Hollenskir blaða- og frétta- mcnn, sem fylgjast með leikjum Hollands í heimsmeistara- keppninni, hafa fengið aðvörun frá fararstjórum hollen/.ka liðsins, um það, að hætt verði að gefa þeim upplýsingar ef þeir haldi áfram að flytja „neikvæð og ábyrgðarlaus” skrif. Það var Jacques Hogewoning, formaður nefndar, sem annast þátttöku Hollands í HM, er til- kynnti þetta til aðalstöðva hollenzku pressunnar. í hollenzkum blöðum hafði verið birt, að sumir hollenzku leikmennirnir væru að elta þjón- ustustúlkur á hótelinu, sem þeir dvelja á í Mendoz.a. Frásögnin birtist fyrst i blaði i Mendoza og var neitað af hollcnzku fararstjórninni. Ernsr Hnappel og leikmcnn hans eru furðu lostnir að hollenzkir blaða- menn skyldu senda þessa frétt hcim til Hollands. Fundi, sem átti að vera i gær með leik- mönnum og blaðamönnum, var frestað. © Argentfna nú í efsta sætinu Argentína hefur tekið efsta sætið af Brasiliu hjá flestum veðmöngurum i London eftir fyrstu umfcrðina á HM í Argentínu. Brasilia hefur þó ckki fallið mjög en það hefur Skotland hins vegar gert. Fallið úr 8—1 í 66—1. Veðmálin standa nú þannig. Argentína 11—4, Brasilia 3— I, Holland, ítalia og Vestur- Þýzkaland 7—1, Perú 12—1, Pólland 14—1, Austurriki og Sviþjóð 33—1, Frakkland og ! Spánn 50—1, Ungverjaland og Skotland 66—1, Túnis 250—1, Mexikó 2500—1 og íran 3000— I. Johan Krankl, markakóngur hvrópu á siðasta leiktimabili, skorar sigurmark Austurrlkis gegn í>pam. „Geri mér vonir um að Austur- ríki verði meðal átta beztu” sagði þjálfari Austurríkis ef tir sigurinn á Spáni 2-1 „Ég geri mér vonir um, að Austurriki verði meðal átta beztu þjóðanna á HM — og ég er mjög ánægður með sigur okkar á Spáni. Leikmenn minir léku mjög agað. Við vissum hvernig hægt var að sigra Spán og leikmenn Austurríkis fóru algjörlega eftir því, sem fyrir þá var lagt með leikinn,” sagði Helmut Senewkowitsch, þjálfari Austurríkis eftir að lið hans hafði unnið Spán mjög óvænt 2—1 í Buenos Aires á laugardag. Það var afrek hjá Austurríkismönnum þvi það var ekki aðeins við Spán aó eiga. Nær allir áhorfendur á Velez-leikvellin- um voru á bandi Spánverja. Þjálfari Spánvcrja, hinn frægi Ladislao Kubala, var skiljanlega ekki ánægður. Hann sagði. „Við eigum við vandamál að stríða. Það er ekki nóg að hafa tæknina í lagi, þegar úthald brestur og þrek leikmanna er of litið. Spánn réð gangi leiksins en tvcnn hroðaleg varnar- mistök kostuðu okkur sigurinn, auk þess, sem illa var farið með nokkur færi.” Lið Austurríkis getur orðið það liðið á HM. sem mest kemur á óvart, sagði einn affréttamönnum BBC. Fréttamaður Reuters, Terry Williams, var á annarri skoðun. Hann sagði: „Eftir það, sem Austurríki sýndi i dag eru litlar likur á að liðið komist áfram — og möguleikar Spánar til að komast i milliriðil eru enn minni." Leikurinn í heild var slakur. Vörn Austurríkis opnaðist oft þrátl fyrir góðan leik Bruno Pezzey, sem Austur- ríkismenn kalla hinn nýja Beckenbauer. Þá var markvörður liðsins. Friedrich, Koncilla, allt annað en öruggur. En það kom ekki að sök þar sem framherjar Spánar fóru illa að ráði sínu í leiknum. Mestan hluta leiksins var knötturinn á vallarhelmingi Austurríkis — og varnarmenn Spánar, Pirri og Juan Asensi, stóðu langtímum saman á miðju vallarins. En skyndisóknir Austurrikis- manna voru hættulegar — langspyrnur fram völlinn, sem á stundum komu Spánverjum í opna spjöldu. Miðherjinn Johann Krankl skapaði mikinn óróa hjá Spánverjum — i vörn þeirra, sem fyrir HM var sögðsústerkasta í heimi. Austurriki náði forustu i leiknum á 9. mín. Skyndisókn. Walter Schachner náði sendingu frá eigin vallarhelmingi. Lék á varnarmann og þá var leiðin greið að markinu. Skoraði hjá Miguel Angel af stuttu færi — og það var ekki að sjá, að Schachner er leikmaður i 2. deild í Austurriki. Nýtti færi sitt mjög vel. Tíu mín. síðar munaði litlu, að Austurriki kæmist í 2—0. Angel varði þá snilldar- leg frá Kreuz. - Spánn jafnaði á 21. mín. Löng sending fór yfir austurrisku vamar- mennina til Dani, sem sendi knöttinn með hörkuskoti i markið. Spenna var talsverð. Pezzey skalíaði frá á marklinu Austurrikis — Miguel Angel varði snilldarlega frá Krankl — og Kano hjá á laugardag Spáni hitti knöttinn illa með austurriska markið opið fyrir framan sig. í síðari hálfleiknum náðu Austurríkis- menn betri tökum á leiknum — og notuð enn meir langspyrnur en áður. Það kom ekki á óvart, þegar Krankl skoraði sigurmarkið á 76. min. — og það þótt hann væri með tvo héra á sér nær allan leikinn. Það gaf öðrum meira rúm og eftir að spánska vömin hafði hálf- stöðvað hörkuskot rann knötturinn milli fóta varnarmanna til Krankl, sem spyrnti knettinum efst í markið. Liðin voru þannig skipuð. Austurríki. Koncilla, Breitenberg, Pezzey, Ober- mayer, Sara Jara, Hickersberger (Weber 67 mín.), Kreuz, Prohaska, Krankl, Schachner (Pirkner 88 min.l, Spánn. Angel, Marcellino, Miguelli, Pirri. San Jose, de la Zruz, Asensi, Cardenosa (Leal 46 min.), Dani. Cano, Rexach (Quini 60 min.). Dómari Karoly Palotai, Ungverjalandi. Tvö núll af stærstu gerð — þegar Kef lavík og Þróttur gerðu jaf ntef li Íslandsm6liA i 1 -deild Kcftavikunöllur, IHK l’nillm 0—0 Langt er síðan jafn leiðinlegur leikur hefur sézt á grasvellinum í Keflavík og þegar heimamenn léku við Þrótt úr Reykjavík í l.dcildinni á laugardaginn. Sjáldan örlaði fyrir því, sem hægt var að kalla knattspyrnu. — Það litla sem sást var Þróttara, sem hefðu átt skilið að ganga með sigur af hólmi miðaö viö gang leiksins. En honum lauk með markalausu jafntefli — sem sagt tveim núllum af stærstu gerð. Þróttarar léku undan suðvestan kalda fyrri hálfleikinn og voru mestan hlutann i sókn og áttu þeir Páll Ólafsson og Sverrir Brynjólfsson, sem voru einna Austri vann Völsung, 1-0 Austri frá Eskifirði hefur sannarlega fengið fljúgandi start á sínu fyrsta ári í 2. deild. Austri sigraði Völsung 1—0 á Fram lagði KA Fram þokaði sér að hlið Vals með 1-0 sigri gegn nýliðum KA í Laugardal á föstudagskvöldið. Kristinn Jörundsson skoraði eina mark leiksins og tryggði sigur Fram gegn nýliðunum. Fram hefur því sex stig að loknum 4 leikjum, jafn- mörg stig og Valur en hefur leikið leik meir. Fram vann þvi sinn þriðja sigur i röð gegn KA — hafði áður sigrað Þrótt og Breiðablik en tapaði sinum fyrsta leik gegn Val. Eskiflrði á laugardag. Sigur sem færir liðið upp i þriðja sæti 2. deildar með flmm stig. Eftir ósigur í sínunt fyrsta leik í Reykjavik gegn Ármanni hefur Austri fengið fimm stig úr þremur siðustu leikj- um sínum. Jafntefli i Sandgerði. og nú í tvigang sigrar á Eskifirði. Fyrst gegn Fylki og nú Völsungi. Liðinu var spáð einu af neðstu sætunum en Eskfirðingar ætla sér greinilega að halda sæti sinu i 2. deild. Eina mark leiksinsá laugardagá Eski- firði skoraði Rúnar Sigurjónsson. Staða Völsungs er nú slæm, tveir ósigrar i tveimur fyrstu leikjum sínum. Báðum að vísu á útivelli en Völsungar hafa ávallt verið erfiðir heim að sækja. skæðastir Þróttara, fáein góð tækifæri sem þeini tókst ekki að nýta, eða að Þor- steinn Bjarnason, bjargaði á seinustu stundu, þótt hann væri full djarfur I út- hlaupumástundum. Litlu munaði að hinum knáa bakverði tækist að skora fyrir Þrótt á seinustu mínútu fyrri hálfleiks, úr aukaspyrnu, af löngu færi. Þorsteinn náði ekki til knatt- arins, sem small á marksúlunni og hrökk þaðan fram á völlinn. Fátt markvert gerðist í seinni hálfleik. að undanskildu því að ÍBK rétti aðeins úr kútnum seinustu 15 mínúturnar. en fann ekki leiðina i markið. Þróttarar voru öllu skárri aðilinn og þeir reyndu að spila og varð stundum ágengt, en allar slíkar tilraunir mistókust með öllu hjá ÍBK. Mátti stundum ætla að leikmennirnir hefðu gleymt sumurn undirstöðuatriðum knattspyrnunnar. Dómari var Róbert Jónsson og skilaði hlutverki sínuvel. emm. Byssubóf i skotinn til banaíBuenosAires Ungur byssumaður var skotinn til bana af lögreglunni i Buenos Aires á laugardag, þegar hann reyndi vopnað rán meðan þúsundir fögnuðu sigri Argentinu gegn Ungverjalandi i Buenos Aires. Richardo Reynoso, hóteieigandi í Candela í miðborg Buenos Aires, skýrði fréttamanni Reutcrs frá þvi, að tveir menn hefðu komið inn á veitingastaðinn um kl. ellefu og heimtað peninga. Miðuðu byssu. Þeir fóru 20 min siðar og lögreglan skaut á þá um leið og dyrnar voru opnaðar. Annar var skotinn til bana en hinn komst undan á flótta. Náðist þó skömmu síðar. Um 40 manns voru á vcitingastaðnum, þegar at- burðurinn átti sér stað, og allir skriðu undir borð, þegar skothríðin hófst. Meðal þcirra var skozki popp-söngv- arinn kunni, Rod Stewart. Lögreglan vildi ekkert um málið segja.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.