Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978. 5 Verkfallið í H.í. komið til framkvæmda: Raðuneytið hefur sett fram hugmynd um lausn deilunnar — kennarar taka afstöðu til hennar í kvöld „Jú, verkfallið kemur til framkvæmda á morgun,” sagði Ólafur Jónsson, einn af talsmönnum stundakennara við Há- skóla íslands í samtali við DB í gær. Samningafundur var haldinn á föstu- daginn var með fulltrúum ráðuneytanna og Háskólans. Að sögn Ólafs kom þar fram hugmynd um mögulega lausn á deilunni. „Við skoðuðum þessa hug- mynd en hún er að ýmsu leyti óskýr og ýmislegt sem þarfnast nánari útskýr- ingar. Það verður haldinn fundur aftur á morgun þar sem þessi hugmynd verður væntanlega útskýrð nánar og síðan verður hún lögð fyrir félagsfund annað kvöld (þ.e. í kvöld, mánudag, kl. 20.30) og þá ræðst hvort framhald verður á verkfallinu.” Ólafur sagði að á þessu stigi væri al- veg ómögulegt að spá um framhaldið. „Við þurfum betri skýringar en þvi fer fjarri að gengið hafi verið að okkar lág- markskröfum." Stúdentaráð hefur skorað á alla stúd- enta við HÍ að standa með stundakenn- urum og félagsfundir hafa verið haldnir i mörgum deildum Háskólans þar sem alls staðar hefur verið Iýst yfir stuðningi við stundakennara. Búast má við að kennsla við Háskólann lamist að verulegu leyti þessa viku ef framhald verður á verkfall- inu. 1 mörgum deildum skólans er mjög stór hluti kennslunnar borinn uppi af stundakennurum. Á það einkum við um heimspekideild og verkfræði- og raun- Mundadeild. -GAJ NÚ BJÓÐUM VIÐ FLAUELSBUXUR VERÐ KR. '6.900.- Úlpan veitir Óla skjól. íslenzk gæra er fáu lík. stormar kallast stundum á strítt um alla Reykjavík. Að eiga starfsdag einn við sig engra manna senditík, vinna fáum veitist slik né virðing lík í Reykjavík. Víst eru þeir, sem vita meir, en vizka er oft sem tildursflík. Hvort eiga rík en andleg lik itök slík í Reykjavík. Ingólfur Jónsson hefur valið 30 af ljóðum sínum í bókina. Þekktast ljóða hans er eflaust Bjart er yfir Betlehem, sem víða heyrist í jóla- mánuðinum. . JBP Ljóðað um Ola blaða- sala Óli blaðasali Þorvaldsson er fyrir löngu oröin þjóðþekkt per- sóna. Og nú eru jafnvel skáldin okkar farin að yrkja um Óla. I Ijóðabók Ingólfs Jónssonar frá Prestbakka, sem Almenna bóka- félagið hefur sent frá sér er einmitt þetta kvæði um Óla: Ekki skal það undra mig, þótt Óla líki vinna slík, því blöð hann selur manna mest og manna bezt í Reykjavík. HEIÐRAÐAR FYRIR GÓÐAR MÆTINGAR Það er enginn vafi á að likamsrækt er öllum holl, ungum jafnt sem öldnum. Stökkbreyting hefur orðið á öllum hollustuháttum landsmanna slðustu ára- tugina og undanfarin ár hefur þeim fjölgað mjög sem stunda likamsrækt i ýmsu formi. Júdódeild Ármanns i Ármúla 32 er ein þeirra stofnana sem sinna llkamsræktar- hlutverkinu og hefur gert f 20 ár. Á dögunum heiðraði deildin fimm konur fyrir frábærar mætingar á æfingar siðasta vetur og fram til júníloka á þessu ári. Allar mættu þær tfmanlega i hvern einasta æfingatíma allt timabilið. Á myndinni eru konurnar ásamt þjálf- ara sínum. TaUð frá vinstri: Halldóra Sigurðardóttir, Björg Jakobsdóttir, Ásgerður Bjarnadóttir, Sigrfður Lúthersdóttir þjálfari, Guðrún Svein- bjarnardóttir og Sigrfður Sigurðar- dóttir. Formaður Júdódeildarinnar er Reimar Stefánsson. DB-mynd HV l'ILBOl) SEM ÞU GETUR EKKI HAFNAÐ

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.