Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 9

Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978. 9 mest sem gengið væri með lukt eftir hleininni. En það hafa sjálfsagt bara verið fljúgandi furðuhlutir á höttunum eftir nánum kynnum af þriðju gráðu. Hiö Ijúfa IH Við urðum rétt að lita inn á eitthvert veitingahús til að finna blæ af léttúðugu lífi þeirra sem mega vera að því að sinna lystisemdum holdsins. Við fórum inn á Hótel Borg og bjuggumst ekki við að það væri neitt kunnuglegt umhverfi fyrir hinn langt að komna gest. En strax i anddyrinu gekk hvíthærður maður fram og spurði: „Er þetta ekki Axel Thorarensen?” Og nú urðu fagn- aðarfundir. Þvi þarna var þá Sigurjón Eiríksson, í hálfa öld eftirlitsmaður vit- anna, en hefur nú tekið að sér eftirlit með yfirhöfnum þeirra sem drekka kaffi á Borginni. Sigurjón hafði fyrst komið í Gjögur þegar Axel var lítill strákur. Seinna höfðu þeir málað vitann saman og nú fullvissuðu gömlu mennirnir hvor annan um að það treystu þeir sér til að gera einu sinni enn. Þegar við vorum loks komin til sætis spurðum við Axel hvort hann langaði ekki í staup af brennivíni. „Brennivín!” hrópaði þessi heiðurs- maður. „Það er það sem ég hef hatað mest alla mína daga — enda veit ég ekki nema ég yrði snarvitlaus af þvi.” Á endanum fengum við okkur bara molakaffi og ræddum um tengsl Gjögur- búa við veröldina utan Stranda. Þeir lesa dagblöðin vandlega og hlusta á útvarp og sjónvarp. Við spurðum hvað honum þætti skemmtilegast í þessum fjölmiðlum. „Mér þykir alltaf mest gaman að Á áheyrendapöllum Alþingis. Gamla veiðikempan af Ströndunum fylgist með ræðu Árna Gunnarssonar um réttindi út- lendinga til laxveiða hér á landi — af miklum áhuga. sagði Sigurður og tilgreindi daginn. „Þú kemur bara fljúgandi. Það er ekkert mál.” Og enda þótt Axel hafi ennþá aldrei notfært sér að flugvélar lenda reglulega i túnfætinum á Gjögri (hann kom akandi suður með syni sinum) þá lauk þessu tali svo að hann var ekki aðeins búinn að lofa að koma, heldur líka farinn að hlakka til. Og nú tókum við stefnu á Alþingis- húsið. En illa gekk að komast yfir göt- una, umferðin var alveg þrotlaus. „Þetta er meiri strollan af bílunum,” sagði utan- bæjarmaðurinn. „Ég er með lífið í lúk- unum að það verði keyrt á okkur. Hvaða erindi getur allt fólkið átt sisona?” í musteri stjórnvizkunnar Loks gátum við sætt lagi og sloppið yfir og litlu seinna vorum við á leiöinni upp teppalagðan stigann að áheyrenda- pöllum Alþingis. Við hvísluðumst á, þvi hatíðleg stund var að renna upp. Axel tók ofan húfuna, eins og allir eiga að gera frammi fýrir þingheimi, og fór inn. Heitt var í salnum, máske ögn mollu- legt, og ekki allir þingmenn mættir en Axel hlustaði af mikilli athygli á mál- flutning Árna Gunnarssonar um rétt út- lendinga til laxveiða á Islandi. Eftir drjúga stund hurfum við aftur frá. Axel ætlaði að fara að setja upp húf- una þegar ungur og vel klæddur maður vatt sér að honum og spurði hlýlega: „Er þetta ekki Axel Thorarensen frá Gjögri?” Jú, ekki var hægt að neita því. „Ertu alltaf jafn slyngur að skjóta?” Það lá við að Gjögurbóndi færi hjá sér. „Ha, ég, hver hefur sagt þér að ég fengist við svoleiðis?” „Hann Kristján á Dröngum segir að Axel er að reyna að koma þvl fyrir sig, hver sé þessi vel klæddi maður, sem er að spyrja hvort honum hati nokkuð förlazt skotmennskan < seinni tið. Mikið erum við ísiendingar ríkir og gæfusamir Ekki var hægt að skiljast svo við mið- bæinn að koma ekki niður að höfn. Veggmynd Gerðar Helgadóttur á Toll- húsinu vakti aðdáun gestsins, og hrifinn varð hann lika þegar við komum niður á bryggju, þar sem þrír hvalbátar lónuðu hver utan á öðrum. Nú kom greinilegur En sú strolla af bllum! Þetta er alltof mikið. Þeir rekast bara hver á annan. Jæja, hvað sagði ég ekki! veiðiglampi í augun á okkar manni. Hann trúði okkur fyrir því að oft hefði hann látið sig dreyma um að leggja úr höfn á einum slíkum. Hvað er það að skjóta tófu og sel á móti því að skutla stórfiska hafsins? „Já, væri ég ungur, mundi ég ráða mig á hvalveiðibát strax.” En nú var kominn timi til að snúa aftur upp á skrifstofur blaðsins. Á leiðinni komum við þar að sem tveir bilar höfðu rekizt á. Lögreglan var mætt á staðinn og önnum kafin við að mæla út staðinn þar sem óhappið hafði viljað til. „Það eru ekki nema 30 eða 40 bílar í hreppnum heima hjá mér,” sagði Axel og vissulega sýndist það þá stundina geta verið hagstæðara kerfi. „Betra að fara varlega með dýran farm,” sagði Bjarnleifur og fór nú óvenju gætilega það sem eftir var leiðarinnar upp á blað. Þar þurftu allir að heilsa upp á Axel og heyra hvað hann hefði að segja um höfuðborgina. Jú, hann var hrifinn. „En hvað við íslendingar erum lifandis skelf- ing rikir. Hugsa sér, að við skulum eiga öll þessi hús, alla þessa bíla og öll þessi skip.” Og þótt þessi fulltrúi hverfandi lífs- hátta hafi unað sér vel undanfarin 70 ár án þess að fara út fyrir hreppinn sinn, þá sagði hann við okkur þegar hann kvaddi: „Það er bara reglulega gaman að ferðast — þegar maður einu sinni er kominn af stað!” • IHH þingmönnunum,” sagði hann og játaði, að heima i sveitinni hitni i mönnum blóðið þegar farið er að ræða um pólitík. „En þótt það sjóði upp úr öðru hvoru verða menn beztu vinir á eftir. Ég held að hér fyrir sunnan rífist menn minna en hatist dýpra.” Svo spurði hann, hvort Óli Jó. væri hættur að skjóta þúfutittlinga. Við ákváðum að fara út i Alþingishús og gá. Hótelstjórinn, Sigurður Gíslason, var kvaddur með virktum. Ekkert fengum við að borga, frekar en þetta væri í sveit- inni, en hins vegar lagði veitingamaður- inn fast að gesti sínum að koma aftur, helzt á átthagamót Árneshreppsmanna næsta vor. „Þeir eru búnir að panta,” þú sért snilldarskytta.” Nú datt ofan yfir Axel, því Kristján á Dröngum lýgur aldrei. Hann áttaði sig ekki strax á því hver það var sem hafði tekið hann tali. „Hefur þú nokkurn tíma komið i Gjögur?” spurði hann. „Já, já,” sagði Svavar Gestsson við- skiptamálaráðherra, þvi sá var maður- inn. „Manstu ekki þegar ég fékk loft í dekkin á bilnum minum hjá þér?” Svo jafnt I musteri stjórnvizkunnar sem i salarkynnum léttlyndisins átti Axel vinum að fagna. „En ósköp sýnist mér þingmennirnir hafa það rólegt — einn var að lesa Dagblaðið,” sagði hann, þegar við gengum út. Texti: Inga Huld Hákonardóttir. Myndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson KSKUR Suðurlandsbraut 14 g Símar 38550 og 81344 }

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.