Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
TVÆR VUASPYRNUR NÆGEHIUVER-
POOL EKKITIL AD SIGRA LEEDS!
Evrópumeistarar Liverpool virðast
vera að gefa eftir i 1. deildinni ensku. Á
laugardag misstu þeir i fyrsta skipti á
leiktímabilinu stig á heimavelli og það
var ekki fyrr en niu mínútum fyrir
leikslok i leiknum gegn Leeds að
Liverpool tókst að jafna. Varamaður-
inn Terry McDermott, sem komið
hafði inn á fyrir Graeme Souness á 55.
min. skoraði úr vitaspyrnu. 1-1. Fyrr i
leiknum hafði Liverpool fengið aðra
vítaspyrnu. Það var á 39. min. þegar
Paul Hart, miðvörður Lceds, hélt
David Johnson. Phil Neal tók spyrn-
una en spyrnti knettinum i stöngina.
Leeds náði forustu á 18. min. Phil
Thompson ætlaði þá að gefa knöttinn
aftur til markvarðar sins, Ray Clem-
ence, en John Hawley náði knettinum,
lék á Clemence og renndi knettinum i
mark Liverpool.
Þetta var sjöundi heimaleikur Liver-
pool á keppnistimabilinu og i hinum
fyrri sex hafði liðið skorað 20 mörk en
aðeins fengið á sig eitt. Bob Paisley
breytti ekki liði sinu — sama lið
fimmta leikinn í röð, og fyrirliðinn
Emlyn Hughes var því ekki með og
McDermott varamaður. Leikmenn
Leeds mættu mjög ákveðnir til leiks —
gáfu leikmönnum Liverpool aldrei frið
og leikurinn varð grófur. Fjórir leik-
menn Leeds bókaðir í fyrri hálfleik,
Paul Madeley, Paul Hart, Trevor
Cherry og Tony Currie. Einnig David
Johnson hjá Liverpool og í siðari hálf-
leik Alan Hansen.
1 síðari hálfleiknum lagði Leeds allt
kapp á að verjast og lengi vel virtist
það ætla að heppnast. En niu mín.
fyrir leikslok felldi Frank Gray Steve
Heighway og dómarinn benti á víta-
spyrnupunktinn. McDermott skoraði
örugglega og jafnteflið varstaðreynd.
Liverpool hefur enn tveggja stiga
forustu þó liðið hafi aðeins hlotið eitt
stig i síðustu tveimur leikjunum. Nott-
ingham Forest og Everton gerðu jafn-
tefli án marka á laugardag í Notting-
ham. Þar slapp lið Forest enn einu
sinni fyrir horn. Lék langt undir getu
en eins og svo oft áður fékk Peter Shil-
ton ekki á sig mark. Varði á hreint
undraverðan hátt frá Trevor Ross —
bezta manni Everton í leiknum.
Framan af var Everton miklu betra
liðið — leikmenn liðsins fljótari og
léku betur. En Bob Latchford og
Mickey Walsh fóru illa með tækifær-
in. Rétt undir lokin fóru leikmenn
Forest að sýna tennurnar. Hætta
skapaðist þá við mark Everton. Tony
Woodcock spyrnti knettinum yfir
þegar léttara var að skora og á loka-
mínútunni misnotaði John O’Hare
opið færi. En Forest hafði líka heppn-
ina með sér. Svarti bakvörðurinn
Anderson bjargaði á marklinu, þegar
Shilton kom engum vörnum við eftir
skalla Latchford. Það var á 79. mín.
eftir góða hornspyrnu Dave Thomas.
Nottingham Forest lék þvi sinn 39.
leik án taps — og liðin voru þannig
skipuð: Forest: Shilton, Anderson,
Burns, Lloyd, Bowyer, O’Neil,
O’Hare, Gemmill, Woodcock, Birtles
og Robertson. Everton: Wood, Darra-
cott, Todd, Wright, Pejic, King, Dob-
son, Ross, Walsh, Latchford og
Thomas. Fyrirliðar liðanna, Mc-
Govern, Forest, og Lyons gátu ekki
leikið vegna meiðsla.
Lítum þá á úrslitin.
1. deild
Arsenal — Ipswich 4-1
A. Villa — Man. City 1-1
Bolton — Coventry 0-0 Huddersfield — York 1-0
Derby — Wolves 4-1 Northampton — Newport 3-1
Liverpool — Leeds 1-1 Portsmouth — Darlington 3-0
Man. Utd. — Southampton 1-1 Port Vale — Hartlepool 2-0
Middlesbro — Bristol C. 0-0 Rochdale — Crewe 2-1
Norwich — Tottenham 2-2 Scunthorpe — Reading 0-3
Nottm. For. — Everton 0-0 Föstudag:
QPR — Chelsea 0-0 Stockport — Wigan 0-1
WBA — Birmingham 1-0 Það var lítið um mörk í 1. deildinni
2. deild — aðeins 21 — og í fjórum leikjum
Bristol Rov. — Newcastle 2-0 var ekkert mark skorað.
Burnley — C. Palace 2-1 West Bromwich Albion komst i
Cambridge — Orient 3-1
Cardiff — Charlton 1-4
Luton — Leicester 0-1
Millwall — Oldham 2-3
Sheff. Utd. — Brighton 0-1
Sunderland — Stoke 0-1
West Ham — Preston 3-1
Wrexham — NottsCo. 3-1
Föstudag:
Fulham — Blackburn 0-1
3. deild
Blackpool — Sheff. Wed. 0-1
Brentford — Oxford 3-0
Chesterfield — Chester 3-1
Gillingham — Swansea 2-0
Hull City - Watford 4-0
Lincoln — Mansfield 0-1
Peterbro — Bury 2-2
Shrewsbury — Carlisle 0-0
Swindon — Southend 1 -0
Walsall — Rotherham 0-1
Föstudag:
Colchester — Ply mouth 2-1
4. deild
Aldershot — Grimsby 2-0
Bamsley — Wimbledon 3-1
Bournemouth — Torquay 1 -0
Doncaster — Bradford 2-0
Hereford — Halifax 2-2
þriðja sætið með sigri á Birmingham.
Sigurinn aðeins 1-0 þrátt fyrir yfir-
burði en leikmenn WBA voru þó
langt frá sínu bezta — og
Birmingham lék stífan varnarleik i
þessum innbyrðisleik Birmingham-lið-
anna. John Trewick skoraði eina mark
leiksins á 25. mín. eftir undirbúning
svertingjanna Laurie Cunningham og
Cyrille Regis. Birmingham fékk fá
tækifæri en Stewart Barrowclough átti
þóað jafna í lok fyrri hálfleiks.
Úrslitaliðin frá Wembley í vor í
ensku bikarkeppninni, Arsenal og Ips-
wich, léku á Highbury og þar náði
Arsenal fram hefndum. Þó náði Paul
Mariner forustu fyrir Ipswich á 14.
mín. en Arsenal komst í 3-1 fyrir leik-
hléið. Frank Stapleton skoraði þrívegis
— öll mörkin með skalla — og Sammy
Nelson, bakvörður fjórða mark Lund-
únaliðsins. Leikurinn var ekki góður
fyrir Irann snjalla, sem eitt sinn lék
sem strákur hér á Melavelli, Liam
Brady. Hann var bókaður og mis-
notaði vítaspyrnu.
Manch. City án þriggja sterkra leik-
manna, Peter Barnes, Dave Watson
og Colin Bell náði jafntefli 1 Birming-
ham gegn Aston Villa, 1-1,1 skemmti-
legum, opnum leik. En það var bið á
mörkunum. John Deehan náði forustu
fyrir Villa á 70. mín. eftir mikil mistök
risans í marki City, Joe Corrigan.
Fimm mín. síðar jafnaði Gary Owen
úr vítaspyrnu, sem dæmd var, þegar
McNaught braut á Mike Channon.
Southampton lék Man. Utd. sundur
og saman á Old Trafford en tókst þó
ekki að ná nema jafntefli. Gordon Mc-
Queen lék ekki með United — og
framan af var sókn Dýrlinganna, frá-
bærlega stjórnað af Alan Ball, þung.
En Southampton skoraði ekki — og
mjög gegn gangi leiksins tókst Jimmy
Greenhoff að ná forustu fyrir United.
í siðari hálfleiknum jafnaði Holmes og
þar við sat — og þetta er þriðji leikur-
inn í röð hjá Dýrlingunum, sem þeir
hafa mikla yfirburði án þess að ná
sigri. Fyrst tap gegn Arsenal, síðan
jafntefli gegn Forest.
Tottenham virtist stefna í góðan
sigur i Norwich, þegar liðið komst i 0-
2 eftir 30 mín. Colin Lee og Peter
Taylor skoruðu. En Norwich-liðið
gafst ekki upp og þeim John Ryan og
Martin Peters tókst að jafna.
Gordon Hill og Ray McFarland
léku með Derby á ný og liðið vann
góðan sigur á lánlausu liði Úlfanna.
Fyrrum Man. Utd.-leikmennirnir
Gerry Daly og Gordon Hill komu
Derby í 2-0 eftir 36 mín. Willie Carr
minnkaði muninn í 2-1 á 54. mín. en
Derby skoraði tvívegis lokakafla leiks-
ins. Fyrst Bill Caskey, sem lék hér með
Glentoran gegn ÍBV — fyrsta mark
hans fyrir Derby — og siðan John
Duncan á 85. min. Aðeins 20.600
áhorfendur voru — og í vesturbæ
Lundúna voru aðeins 22.876 á leik
QPR og Chelsea. Aldrei fyrr verið svo
fáir á leik þessara liða. Ekkert mark
skoraö — Busby átti skot í þverslá á
marki Chelsea, og Walker jafnaði það
hjá Chelsea. Stöðva varð leikinn i
þrjár mínútur vegna slagsmála meðal
áhorfenda.
I 2. deild hefur Stoke náð þriggja
stiga forustu. Vann góðan sigur í
Sunderland með marki O’Callaghan.
Crystal Palace tapaði í Burnley.
Brennan og Fletcher skoruðu fyrir
heimaliðið en Chatterton eina mark
Palace. West Ham komst í 2. sætið
með sigri á Preston. Lampart, Devons-
hire og Cross skoruðu mörk West
Ham en Thompson fyrir Preston.
Malcolm Poskett skoraði eina markið
og athygli vakti að Peter Ward var
settur úr liði Brighton. Þá vann
Leicester óvæntan sigur i Luton.
Trevor Christie skoraði eina mark
leiksins á 87. mín. — fyrsta mark
Leicester eftir 570 min. leik. Paul
Randall skoraði bæði mörk Bristol
Rovers gegn Newcastle og Bristol-liðið
hefur sigrað í öllum heimaleikjum sín-
um.
í 3. deijd er Shrewsbury efst með 23
stig, Watford hefur 22 stig og Swansea
21. 1 4. deild eru Wibmledon og
Reading efst með 24 stig. Barnsley í
þriðja sæti með 22 stig. Staðan er nú þannig: 1. deild Liverpool 13 10 2 1 36-6 22
Everton 13 7 6 0 15-5 20
WBA 13 7 4 2 28-13 18
Not. For. 13 5 8 0 15-8 18
Arsenal 13 6 4 3 23-14 16
Man. City 13 5 6 2 22-15 16
Man. Utd.. 13 5 6 2 20-19 16
Coventry 13 5 5 3 17-18 15
Tottenham 13 5 5 3 16-22 15
A. Villa 13 4 5 4 15-13 13
Bristol City 13 5 3 5 15-16 13
Leeds 13 4 4 5 25-19 12
Norwich 13 3 6 4 25-25 12
Middlesbro 13 4 3 6 17-17 11
QPR 13 3 5 5 10-14 11
Derby 13 4 3 6 16-26 11
Southampton 13 2 6 5 14-13 10
Ipswich 13 4-2 7 14-19 10
Bolton 13 3 4 6 18-26 10
Chelsea 13 2 4 7 15-26 8
Wolves 13 3 0 10 11-26 6
Birmingham 13 0 3 10 7-25 3