Dagblaðið - 06.11.1978, Qupperneq 24
24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978.
Hæsti
vinnir^urinn
í desember verða hæstu
vinningarnir dregnir út. 9
fimm milljón króna vinningar
eða samtals 45 milljón
krónur á eiti númer.
Endurnýjaöu strax í dag til
að glata ekki vinnings-
möguleikum þínum.
11. flokkur
18 @ 1.000.000.- 18.000.000.-
18 — 500.000,- 9.000.000.-
324 — 100.000.- 32.400.000.-
783 - 50.000,- 39.150.000,-
9.333 — 15.000,- 139.995.000,-
10.476 238.545.000,-
36 — 75.000- 2.700.000.-
10.512 241.245.000.-
Við drögum 10. nóvember
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hæsta vinningshlutfall í heimi!
ÓPIÐ
Verðlauna-
mynd f rá
Cannes
1978
Eramlag Breta á Cannes hátíðina
1978 var myndin The Shout, sem Jerry
Skolimowski gerði. Á skömmum tima
hefur þessi mynd hlotið töluvert umtal
enda sérstæð að mörgu leyti. Myndin
hlaut sérstök verðlaun dómnefndar í
Cannes ásamt Cia Maschio sem Marco
Ferri leikstýrði. Það er því ekki úr vegi að
kynna þessa mynd lítillega fyrir les-
endum ef vera kynni að hún yrði tekin
tilsýningar hérálandi.
Athyglisverð
atburðarás
Efni myndarinnar er byggt á sögu
< m.
Crossley sannfærir Anthony um kyngi-
kraft raddbanda sinna.
Kvik
myndir
Baldur Hjaltason
eftir Robert Graves sem hann skrifaði
1926. Hún segir frá vistmanni á geð-
veikrahæli sem telur sig búa yfir þeim
hæfileika aö geta orsakað likamlegan
skaða, jafnvel dauða, með því að öskra
nógu hátt.
í upphafi myndarinnar fylgjumst við
með komu R. Graves til þorpsins Lamp-
ton. Hann á að vera markaritari i
cricketleik sem fara á fram milli þorps-
búa annars vegar og svo starfsliðs og
vistmanna geðveikrahælisins hins vegar.
Hann er fulltrúi þorpsbúa en fulltrúi
vistmanna er furðufugl sem nefnist
Charles Crossley. Meðan á leiknum
stendur trúir Crossley honum fyrir því
að meðan hann dvaldist hjá frumbyggj-
um Ástralíu lærði hann forn töfrabrögð
þeirra. Nú hefði hann kraft til að geta
drepið meðöskri einu saman.
Einnig verður Crossley tíðrætt um
vin sinn að nafni Anthony og konu
hans Rachel.
Áhrrfamáttur
... Crossley býður sjálfum sér til
kvöldverðar á heimili þeirra hjóna, þar
sem hann segir þeim sömu sögu og
Graves. Anthony trúir þessu ekki svo
Crossley fer með hann niður að strönd-
inni til að sýna og sanna áhrifamátt óps-
ins. Við þessi ósköp missir Anthony
meðvitund og gamall fjárhirðir sem var
ekki fjarri lætur lífið.
Crossley nær smátt og smátt sterkum
sálrænum tökum á Rachel svo Anthony
einangrast. Hann fer að leita að uppruna
töframáttar Crossley og að lokum finnur
hann lausnina. Er það forn sjávarsteinn
niður við ströndina sem inniheldur sál
hans. Anthony fer niður að steininum
en samtimis heimsækir lögreglan
Crossley og ákærir hann fyrir morð.
Hann ætlar að reyna að bjarga sér úr
klipunni með því að öskra en Anthony
hafði þá brotið steininn svo kraftur hans
er þrotinn ... Þess vegna segir Crossley
við Graves, endaði ég hér á geðveikra-
hælinu með sál mina í fjórum hlutum.
Þegar hér var komið sögu brestur á
þrumuveður og rigning. Ofsahræðsla
grípur Crossley og hann gengur ber-
serksgang. Graves sér hvað verða vill og
flýr þegar Crossley undirbýr sig til að
beita töframættinum, ópinu, einu sinni
enn. Það tekst þóekki því eldingu lýstur
samtimis niður í skýlið þar sem hann er
og verður honum að bana.
Fjölhæfir
listamenn
Eins og lesa má býður efnisþráðurinn
upp á mikla möguleika fyrir fjölhæfa
listamenn. Og þeir eru ekki af verri end-
anum. Alan Bates fer með hlutverk
Crossleys af frábærri snilld, þótt um erf-
itt hlutverk sé að ræða. Einnig leika í
myndinni Susannah York, John Hurt og
Tim Curry.
Bretar urðu að leita út fyrir landstein-
ana til að finna heppilegan leikstjóra.
Fyrir valinu varð pólverjinn Skolimow-
ski. Hann er okkur lslendingum ekki
alveg ókunnur. M.a. var sýnd mynd
hans Walkover í Fjalakettinum, kvik-
myndaklúbbi framhaldsskólanna og svo
Deep End í Háskólabiói 1974.
1 kvikmyndatímaritinu Sight and
Sound er viðtal við Skolimowski sem
Philip Strick tók. Þar er hann spurður
hvað það var i sögunni sem heillaði
hann. Hér fylgir lausleg þýðing á svari
hans.
Tvíræðnin
„Það var tvíræðnin og hve efnið
virtist fjarstæðukennt. Ég held að við
séum umlukin tvíræðni; það sé hægt að
sjá tvöfalda merkingu út úr öllu. Þú
manst að ég byrjaði sem Ijóðskáld og gaf
út 3 Ijóðabækur. Hugur minn var þjálf-
aður eftir ljóðrænni linu. Þess vegna er
ég óhræddur að víkja frá söguþræðin-
um og fæ öryggiskennd ef ég hef efni sem
reynir að láta þig trúa og vera vantrúað-
an samtimis'. Hvað fáránleikanum við-
vikur þá er hann einnig alls staðar um-
hverfis okkur. Ég er aðeins að rannsaka
hæfileika minn til að komast i snertingu
við umhverfið. Hvor er fjarstæðukennd-
ari Crossley eða umhverfið? Er hann
geðsjúklingur vegna þess að hann er
ekki „normal"? Hvernig ferðu t.d. að
meta hvort tré sé „normal”?
Svo mörg voru þau orð. Nú er að bíða
og sjá til hvenær myndin berst til lands-
ins. Hver veit nema hún verði sýnd á
næstkomandi listahátið.
• BH