Dagblaðið - 06.11.1978, Side 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978.
35
Nú ekki alls fyrir löngu var rokk-
stjarnan Elton John á ferð um Kaup-
mannahöfn og var erindið sagt, að hann
Hér kaupir söngstjarnan stóra
hljómplötu, en ekki fylgdi það
sögunni með hverjum sú plata
er.
ætlaði sér að fara á fótboltaleik. Þegar
Elton kom til Kaupmannahafnar var
hann með derhúfu á höfðinu. Fjórum
dögum seinna þegar hann kvaddi hina
konunglegu borg hafði hann ekki tekið
af sér húfuna nótt né nýtan dag.
Tvær ástæður geta verið fyrir því að
stjarnan gangi alltaf með húfuna. Sú
fyrri, að hann hafi einhverja sérstaka
ánægju af að hafa húfuna á höfðinu. Og
sú seinni, að hárgræðslumeðferðin sem
hann var í hafi misheppnazt. En svo er
þó ekki, það hefur hann sjálfur sýnt.
Að vera með skalla var eitt allsherjar-
vandamál fyrir Elton John sem nú er 31
árs, en hann hefur getað bjargað þvi á
einhvern hátt með derhúfum. Elton
John er sagður gjörbreyttur maður á
skömmum tíma. Hann er nú hættur að
halda hljómleika, en hann er að vinna að
stórri hljómplötu.
Eiginlega þarf hann alls ekki að vinna
meira, svo mikið af peningum á hann.
Hann gæti lifað lúxuslifi það sem eftir
er, ef hann kærði sig um. Elton John
varð frægur 1970 þegar hann gaf út
plötuna „Goodbye Yellow Brick Road”
siðan komu plöturnar „Candle In The
Wind” og „Captain Fantastic And The
Brown Dirt Cowboy”.
Móðir Eltons Johns hefur sagt að
hennar stærsta ósk sé sú að Elton nái sér
i fallega stúlku og gifti sig. Þann draum
hefur hún nú gefið upp á bátinn. Elton
John hefur í bandaríska músíktímaritinu
„Rolling Stone” sagt frá þvi að hann sé
kynvilltur og það hefur móðir hans nú
orðið að viðurkenna.
Elton John hefur sagt að hans æðsti
draumur sé að vera óþekktur og geta
gengið um göturnar eins og annað fólk,
en ekki alltaf með eitthvert lið á eftir sér.
Ég hef reynt að fara út, i dömufatnaði
með hárkollu og í háhæluðum skóm, en
ég þekktist þrátt fyrir það.
Elton John litur út fyrir að vera
einmana maður en hvort svo er er ekki
gott að segja. Hann á orðið þó nokkuð
marga klúbba í Englandi. Hann á fót-
boltaklúbb í Los Angeles. Allt er hægt
að kaupa fyrir peninga nema ánægjuna.
En það er einmitt það sem Elton þyrfti
helzt að kaupa.
Hér er Elton með
Kevín Keegan, fræg-
um knattspyrnu-
manni frá Englandi.
ELTONJOHN
OG
DERHUFAN
Það er ekki sama#NOVIS og
novi/
saman
UMBOÐSMENN HÚSGAGNAVERKSMIÐJU KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF
STAÐUR
Akranes:
Akureyri:
Blönduós:
Bolungarvík:
Borgarnes:
Hafnarfjörður:
Húsavík:
Keflavík:
Neskaupstaður:
NAFN
• Verzlunin Bjarg h.f.
• Augsýn h.f.
• Örkin hans Nóa
• Trésmiðjan Fróði h.f.
• Verzlunin Virkinn
• Verzlunin Stjarnan
• Nýform
• Hlynur s.f.
• Húsgagnaverzlunin Duus h.f.
• Húsgagnaverzlun
Höskuldar Stefánssonar
STAÐUR
Ólafsfjörður:
Ólafsvík:
Reykjavík
Sauðárkrókur:
Selfoss:
Siglufjöröur:
Stykkishólmur:
Vestmannaeyjar:
NAFN
• Verzlunin Valberg h.f.
• Verzlunin Kassinn
• Kristján Siggeirsson h.f.
• Híbýlaprýði
• JL-húsið
• Húsgagnaverzlun Sauðárkróks
• Kjörhúsgögn
• Bólsturgerðin
• JL-húsið
• Húsgagnaverzlun
Marinós Guömundssonar
Novis 2 samstæðan er þróun á Novis
samstæðunni vinsælu.
Með þessari breytingu skapast enn
nýir möguleikar á uppröðun og
nýtingu á þessari geysivinsælu vegg-
samstæðu.
Einn möguleikinn er sýndur á mynd-
inni, hæðin er 155 cm.
Lægri samstæða en venjulega.
Komið og skoðið Novis 2.
Biðjið um litprentaða myndalistann.
f/\ KRISTJfiíl
SIGGEIRSSOH
argus
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870