Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979.
Halli, Laddi og Helgi
hljóðríta hljómplötu
Nýstárleg
plata,
að
þeirra
sögn
HELGI, ööru nafni Björg-
vin Helgi Halldórsson, tek-
ur upp gítarsóló með aö-
stoö svokallaös E-boga.
Meö honum nær hann hin-
um furðulegustu hljómum
úr gítarnum. Laddi og upp-
tökumaður plötunnar, Jón-
as R. Jónsson, fylgjast
með. Rétt er að minna á að
Jónas vcrður hljóðstjóri á
Stjöruumessunni á fimmtu-
dag.
DB-mynd Ragnar Th.
ÁSGEIR
TÓMASSON
v/fjölda áskoranna
sýnir FÁLKINN
konsertinn aftur í kvöld
JETHRO TULL
Trufladur konsert á stærsta og fullkomnasta video landsins
Konsertinn hefst kl. 1000 og vió vekjum athygliá því aó hann
er svo til nýr — var hljóóritadur seinni part sumars
þaó er upplagt að byrja kvöldið meó því
að skreppa upp í PENTHÚS og ylja sér
á sjóðandi heitum kaffidrykk
MICKIE GEE sér umfjörið á dansgólfinu
af sinni alkunnu snilld
Jólaplötuflóðinu margum-
rædda er ekki fyrr lokið en tón-
listarmenn fara að hugsa sér til
hreifings með vinnslu á þeim
plötum sem verða sendar á
markað í vor- og sumarbyrjun.
Halli, Laddi og Helgi eru þessa
dagana í Hljóðrita að taka upp
plötu — ákaflega nýstárleg að
þeirra sögn.
„Við viljum helzt ekki Ijóstra
neinu upp með þessa plötu að
öðru leyti en þvi að hún er byggð
upp sem konsertplata,” sagði
Helgi er Dagblaðið leit inn í
Hljóðrita.
Helgi þessi hefur komið við á
hljómplötu áður. Hann söng
nokkur lög á fyrri Vísnabókar-
plötunni. Einnig skemmti hann
með Halla og Ladda í ferð
Brimklóar um landið i fyrrasum-
ar. Helgi heitir ekki bara Helgi.
Fyrra nafn hans er Björgvin og
hann er Halldórsson.
Halli, Laddi og Helgi
skemmtu einnig á Jólakonsert
'78, sem Hljómplötuútgáfan hf.
gekkst fyrir í desember síðast-
liðnum. Þeir Laddi og Helgi —
Halli var ekki viðlátinn — voru
að því spurðir hvort platan yrði
eitthvað lík þvi sem þeir gerðu á
þeim konsert. Laddi varð fyrir
svörum:
„Jaá, hún er reyndar í svip-
uðum anda .. .” Síðan greip
hann fyrir niðurandlitið, hristi
höfuðið og sagði út á milli fingr-
anna: „Nú segi ég ekki meira.”
Upptökur á plötu Halla,
Ladda og Helga hófust á mánu-
daginn var. Áætlað er að byrjað
verði í síðasta lagi að syngja inn
á hana í dag. Allri vinnu við plöt-
una hérlendis á að vera lokið
um mánaðamótin. Það er
Hljómplötuútgáfan hf. sem
gefur hana út. Hljómsveitin
Brimkló sér um allan undirleik.
Laddi og Helgi voru að lokum
að því spurðir hvort tónlistin á
plötunni væri innlend eða er-
lend.
„Við blöndum þessu saman,”
svaraði Laddi. „Við verðum með
fimm eða sex frumsamin lög.
Annars stefnum við að því að
verða með að minnsta kosti fjór-
tán lög á þessari plötu. Við
höfum meira að segja orðið að
stytta lög til að koma þeim öllum
örugglega fyrir.”
-ÁT-
HALLI, LADDI og HELGI á Jólakonsert ’78 I desember siðast-
liðnum. Að sögn Ladda verður platan I svipuðum anda og framlag
þeirra á konsertinum. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.