Dagblaðið - 28.05.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDÁGUR 28. MAÍ 1979.
Göngustígurinn
sundurgrafinn
— böminverða
aðfaraí
skólanneftir
akbrautum
Anna Jóna í Brekkuseli 16 hringdi:
Við íbúar Seljahverfis i Breiðholti
sem eigum börn í Ölduselsskóla eða á
leikskólanum Seljaborg höfum
hingað til haft einn göngustig fyrir
okkur og börnin okkar til þess að
komast að þessum skólahúsum. Sá
göngustígur liggur á milli Heiðasels
og Grjótasels og hefur verið sæmi-
lega viðunandi því möl hefur verið
borin í hann. Fyrir stuttu ætlaði ég
með barnið mitt í kerrunni sinni eftir
þessum göngustíg út að Seljaborg. En
viti menn, búið var að grafa hann i
sundur því hafinn var þar gröftur
fyrir einbýlishúsi. Varð ég því að
snúa við. í dag verðum við þvi ann-
aðhvort að klöngrast yfir holt og
hæðir eða senda börnin okkar og
fara sjálf eftir ökuvegum bifreiða og
strætisvagna og það vita allir hversu
hættulegt það er börnunum okkar.
Ég hafði samband við Ólaf
Guðmundsson verkfræðing hjá borg-
arverkfræðingi og tjáði honum vand-
ræði okkar. Svörin sem ég fékk voru
þau að ef til vill yrði annar gangstígur
tilbúinn næsta haust.
Ég er búin að búa hér i 4 ár og al-
veg síðan ég flutti hefur staðið til að
gera almennilegan gangstig og mönn-
um bjóðandi. En hvað gerist? Þessi
eini sem við höfðum er eyðilagður og
ekki von á öðrum á næstunni.
1»
Þótt mikið sé gert til þess að kenna
ungviðinu umferðarreglur er samt
bezt að það komi ekki nær umferð-
inni en nauðsynlegt er.
Natalie Wood leikur eitt aðalhlut-
verkið í myndinni West Side Story
sem sýna á i haust i Tónabíói.
Á að endur-
sýna West
Side Story
Dóra skrifar:
Fyrra laugardag kynnti Guðrún
Birna Hannesdóttir tónlistina úr
söngleiknum og kvikmyndinni West
Side Story í útvarpi. Það minnti mig
á að i síðustu nokkur skipti sem ég
hef farið í Tónabió hef ég séð úpp-
hengt veggspjald með auglýsingu um
myndina. Nú spyr ég: Á að endur-
sýna myndina og þá hvenær?
DB hafði samband við Tónabió og
fékk þær upplýsingar að endursýna
ætti myndina einhvern tíma með
haustinu. Ekki var hægt að segja ná-
kvæmlega hvenær.
Hringið
milli kl. 13
og 15,
eða siirifið
✓
HEIMTA ROSALEGT
KAUP — en eiga fiotta bíla og einbýlishús
Sjóinaður skrifar:
Ég er nú ekki einn af þeim sem allt-
af eru að skrifa í blöðin en nú get ég
ekki orða bundizt lengur. Yfirmenn-
irnir á frökturunum heimta nú svo
rosalegt kaup að þeir sem voru á
beztu loðnubátunum hafa ekki einu
sinni heyrt jafn svakalegar tölur. Það
er eins og þessir sjéffar á flutninga-
döllunum haldi að það séu þeir sem
bera þessa þjóð uppi. Svo fá þeir alls
konar frídaga sem enginn venjulegur
sjómaður skilur neitt í. Mér skilst að
þeir fái 10 frídaga í mánuði á meðan
við á togurunum fáum kannski sam-
tals þrjá, rétt á meðan verið er að
landa. Annars er maður löngu hættur
að skilja neitt í þessu kerfi sem þeir
eru með, því þeir segjast alltaf hafa
eitthvert smotterí en svo eiga þeir
flotta bíla og einbýlishús áður en
maður veit af.
Raddir
lesenda
© KENWOOD
^ EIGN SEM VARIR
KT-5500 útvarp, stereo FM/AM,
næmleiki FM LDp'V/AM 20 uA/,
merki/suö hlutfáll 72 dB mono
68 dB stereo, aðgreining-
arhæfni 60 dB, stereo
aðgreining 35 dB
frá 50-15,000 Hz.
Verö kr. 105.990.-
KA-5700 magnari, -
2x40 RMS wött, 8 ohm,
20-20,000 Hz, bjögun minni
en 0,04%, merki/suð hlutfall
76 dB við 2,5 |Á/.
Verð kr. 124.570.-
KX-520 kassettutæki, Dolby,
rásaflökt minna en 0,09%
(WRMS), tíðnisvörun
30-16,000 Hz (CrÖ2),
merki/suð hlutfall 61 dB
(Dolby/CrÖ2).'
Verö kr. 183.300.-
n
Háþróað Hi-Fi er sérgrein hjá Kenwood. Þess vegna er Kenwood einn færasti
hljómtækjasmiður sem fagtímarit geta um.
Kenwood er fyrir fagfólk sem af eigin dómgreind veit hvað háþróað Hi-Fi er.
Tökum sem dæmi tæki þau sem sýnd eru hér að ofan.
Tæknilýsingin á þeim skýrir verðleika þeirra svo ekki verður um villst.
SENDUM
BÆKLINGA
^KENWOQD EIGN SEM VARER
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
3
Spurning
Hvað ætlar þú að
gera í sumar?
(Spurt í Melaskólanum)
Ciuðmundur kristinn Klemcntssun, 9
ára: Ég fer út á lund, á Þingvclli og
kringum landið.
Arnar Bjarnason, 10 ára: Ég fer norður
i land og i ágúst ler ég til ítaliu.
Reynir Þór Viðarsson, 10 ára: Ég ler
kannski i svcit.
Halldór l.axdal Helgason. 9 ára: Fg ler
i sumarbústað og svo fer ég til Akur-
eyrar og í sveit i Fljótshlið.
Friðrik Karlsson. 9 ára: Ég vcit það
ekki. Ég fer kannski upp á Akrancs.
Gísli Þór Magnússon, 9 ára: Ég fer
norður í land og vcrð þar i sveit i
sumar.