Dagblaðið - 28.05.1979, Blaðsíða 20
20
d
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
$
FRABÆR LBKUR
FRÁRÆRRA UDA
—sagði þjátfari Ítalíu eftir jaf ntef li Ítalíu og Argentínu
álaugardag
„Þetta var spennandi leikur þó lið
mitt léki ekki alltaf vel — en ég er
ánægður með byrjunina i Evrópuferð
okkar. Við höfum ekki tapað gegn
tveimur sterkustu liðum Evrópu,”
sagði Cesar Luis Menotti, þjálfari
Argentínu í Róm á laugardag. ,,Þelta
var frábær leikur tveggja frábærra liða
... við gerðum nokkrar villur en
héldum frumkvæðinu og áttum ef til
vill fleiri marktækifæri en Argentínu-
menn,” sagði Enzo Bearsot, þjálfarí
Ítalíu.
ítalia, eina landið, sem sigraði
Argentínu í úrslitum heimsmeistara-
iceppninnar í knattspyrnu í fyrrasumar,
varð að láta sér nægja jafntefli gegn
heimsmeisturum Argentínu í vináttu-
leik í Róm á laugardag. Úrslit 2—2.
ítalir sóttu í byrjun en komust þó í
erfiðleika á 5. mín, þegar Bettega felldi
Villaverde rétt utan vítateigs. Auka-
spyrna Olgiuin snerist framhjá varnar-
mönnum Ítalíu og lenti í stönginni
hægra megin. Rétt á eftir komst Barbas
Dýrmæt stig Schalke
Þrír leikir voru háðir í I. deildinni
vestur-þýzku á laugardag. Úrslit urðu
þessi:
Braunschweig-Duisburg 0—2
Darmstadt-Bremen 3—0
Schalke-Bielefeld 4—I
Staða efstu liða er nú þannig:
Hamborg 32 21 6 5 77-30 48
Stuttgart 32 19 8 5 65-29 46
Kaisersl.
Bayern
Dússcldorf
Frankfurt
Köln
32 16 10 6 50-43 42
32 15 7 10 66-44 37
32 13 9 10 66-55 35
32 14 7 11 45-48 35
321112 948-4534
Schalke hefur nú 26 stig — Bielefeld
25 eftir 32 leiki. Núrnberg 23 og
Darmstadt 19. I.eiknar verða 34
umferðir.
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
IIMNRITUN
Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti fer að þessu sinni fram á
tveim stöðum: Þriðjudaginn 5. júní og miðvikudaginn 6. júni fer inn-
ritun fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavik ásamt innritun annarra
framhaldsskóla höfuðborgarinnar, hvorn dag kl. 9.00—18.00.
Fimmtudaginn 7. júní og föstudaginn 8. júní fer innritun fram í húsa-
kynnum skólans við Austurberg kl. 9.00—18.00.
Nýnemar geta valið milli sjö mismunandi námssviða og nokkurra
námsbrauta á hverju sviði eins og hér segir:
1. Almennt bóknámssvifl (menntaskólasvið), þrjár
huggreinabrautir (félagsfræðibraut, tónlistarbraut,
tungumálabraut) og þrjár raungreinabrautir (eðlisfræði-
braut, náttúrufræðibraut og tæknibraut). Námið stefnir
beint að stúdentsprófi.
2. Heilbrígflissvifl, tveggja ára heilsugæslubraut til
sjúkraliðanáms og framhaldsbraut að stúdentsprófi.
3. Hússtjómarsvið, matvælatæknibraut er skiptist í
eins árs grunnnám til undirbúnings Hótel- og veitinga-
skóla íslands og tveggja ára grunnnám til undirbúnings
störfum við mötuneyti sjúkrastofnana og stórra mötu-
neyta. Einnig framhaldsbraut að stúdentsprófi.
4. Listasvifl, tveggja ára grunnnám myndlistar- og
handíða og framhaldsbraut að stúdentsprófi með sér-
hæfingu í auglýsingateiknun.
5. Tæknisvið (iðnfræðslusvið), eins árs grunnnáms-
brautir (verknámsskólar) í málmiðnum, rafiðnum og tré-
iðnum, síðan tveggja ára framhaldsbrautir í fjórum iðn-
greinum, húsasmíði, rafvirkjun, rennismíði og vélvirkj-
un er tryggir sveinspróf eftir verkþjálfun úti í atvinnulíf-
inu. Námssviðið veitir einnig framhald að stúdentsprófi.
6. Uppeldissvið, þrjár brautir — tvær tveggja ára
grunnnámsbrautir, fóstur- og þroskaþjálfabraut og
félags- og íþróttabraut og fjögurra ára menntabraut að
stúdentsprófi.
Af grunnnámsbrautunum er nemendum einnig tryggð
framhaldsmenntun að stúdentsprófi.
7. Viðskiptasvið, þrjár tveggja ára brautir að almennu
verslunarprófi, samskipta- og málabraut, skrifstofu- og
stjórnunarbraut, verslunar- og sölufræðabraut. Þá eru á
viðskiptasviði þrjár þriggja ára brautir að sérhæfðu
verslunarprófi, tölvufræðabraut, stjórnunar- og skipu-
lagsbraut, markaðs- og sölufræðabraut. Þá verður nú í
fyrsta sinn boðin fram fjögurra ára læknaritarabraut er
lýkur með stúdentsprófi ásamt sérhæfingu á viðskipta-
og heilbrigðissviðum skólans. Aðrar brautir viðskipta-
sviðs stefna einnig að stúdentsprófi.
Skrifstofa Fjölbrautaskólans I Breiöholti að Austurbergi veitir allar
nánari upplýsingar og geta þeir sem þess óska fengið þar kynningarrit
um skólann. Afgreiðslutimi skrifstofunnar er frá kl. 9.00—12.00 og
13.00—15 frá mánudegi til föstudags. Símar skólans eru 75600 —
75740-75761.
Skólameistari
i gegnum vörn Ítalíu — Zoff hljóp gegn
honum en Barbgs spyrnti framhjá
markverðinum. ítalski bakvörðurinn
Collovati reyndi að bjarga en tókst
ekki. Valencia náði knettinum og
skoraði.
Sóknarþungi Itala var meiri og á 27.
mín. jafnaði Franco Causio með
þrumufleyg, þar sem Fillol beinlínis sá
ekki knöttinn. Paolo Rossi, miðherj-
inn, sem ítölsku félögin bítast um þó
hann sé metinn á 6 milljónir dollara,
var vörn Argentínu erfiður og óhepp-
inn að skora ekki i fyrri hálfleik.llins
vegar nýtti hann tækifæri á 54. min,
lék á varnarmann og sendi knöttinn í
markið framhjá Fillol. En aðeins mín-
útu síðar dæmdi portúgalski dómarinn
vítaspyrnu á ítaliu — Marco Tardelli
braut á Maradona. Fyrirliðinn Daniel
Passarella jafnaði úr vítinu.
Eftir það sóttu ítalir mjög ákaft
hvattir af 70 þúsund áhorfendum en
tókst ekki að brjóta niður varnarmúr
Argentinumanna.
Liðin: Ítalía; Zoff, Entile, Cabrini,
Oriali, Collovati, Scirea, Causio, Tard-
elli, Rossi, Antognoni og Bettega.
Argentína: Fillol, Villaverde, Tar-
antini, Olguin, Gallego, Passarella,
Hourseman, Barbas (Oviedo), Luque,
Maradona og Valencia.
Ellert Schram, formaður KSl, afhenti Jóni Péturssyni gullúr eftir leikinn við Vestur-
Þjóðverja á laugardag. Þá lék Jón sinn 25 landsleik. Jóhannes Eðvaldsson fékk gullúr
KSÍ I Bern — Hann lék sinn 25. landsleik i Nijmegin i fyrrahaust. „Mitt er fallegra
en þitt,” sagði Jóhannes við Jón á eftir og þá smellti Bjarnleifur af þessari mynd.
Sigur enskra í meist-
arakeppninni brezku
—England vann Skotland 3—1 á laugardag
England varði brezka meistaratitil-
inn í knattspyrnu á laugardag, þegar
enska liðið sigraði Skotland 3—1 að
viðstöddum 100 þúsund áhorfendum á
Wembley-leikvanginum i Lundúnum.
England varð að sigra í leiknum til að
tryggja sér meistaratitilinn. Fyrir leik-
inn gerði Ron Greenwood, þjálfari
enska liðsins, sjö breytingar á liði sínu
frá jafntefiisleiknum við Wales á mið-
vikudag.
Skozka liðið sótti meir framan af
leiknum en fór illa með tækifæri sin.
Zaitsev hélt
EM-titlinum
— í 110 kg flokki
Yuri Zaitsev, Sovétríkjunum, varði
meistaratitil sinn í 110 kg flokki á
Evrópumeistaramótinu i lyftingum i
gær. Lyfti samtals 400 kg. Úrslit urðu
þessi i flokknum, það er beztu menn:
1. Zaitsev, Sovét, 400(177,5-227.5)
2. Drundarov, BúlS. 390 (172,5-217,5)
3. P. Keks, A-Þýekal. 385 (170,0-215,0)
4. Salai, Ungverjal. 382,5067,5-215,0)
5. Nilsson, Sviþjód 380,0 0 67,5-212,5)
6. Knek, Tékkósló. 377,5 (175,0-212,5)
7. Purapancha, Róm. 362,5 (157.5-215,0)
8. Neises, V-Þýzkal. 350,0 (160,0-190,0)
9. Zsrzsvalsidis, Brikkl. 345,0 (152,5-192,5)
10. Sirka, Finnlandi 332,5 (142,5-190,0)
11. R. Larssen, Noregi 320,0 0 40,0-180,0)
Það kom liðinu í koll um síðir. Tugþús-
undir skozkra áhorfenda létu mjög í sér
heyra — og höfðu ástæðu til þess
framan af. Bob Latchford kom þó
knettinum í mark Skotlands á 4. mín.
en það var dæmt af vegna brots á
markverðinum, George Wood. Kenny
Dalglish og Graeme Souness, Liver-
pool-leikmennirnir, voru nærri að
skora fyrir Skotland áður en liðið náði
forustu á 22. min. Það var eftir góðan
undirbúning miðherjans Joe Jordan,
sem sendi knöttinn á Dalglish frian.
Hann sendi á Wark, sem skoraði auð-
velt mark. Peter Barnes tókst að jafna
rétt fyrir hálfleik — Wood sá ekki
' knöttinn fyrr en hann hafnaði neðst i
markhorninu.
Enska liðið byrjaði vel í s.h. og skor-
aði tvivegis á sjö mínútum. Fyrst Steve
Coppell á 63. mín. eftir mistök Wood,
sem missti knöttinn eftir spyrnu Ray
Wilkins — og svo skoraði Kevin Keeg-
an á 70. mín. eftir fallegt upphlaup
með Trevor Brooking. Skotar sóttu
talsvert lokakafla leiksins en vörn Eng-
lands, sem framan af hafði ekki verið
örugg, var þó mjög traust. Þar lék
Clemence, Neal, Thompson, Watson
og Mills.
Á föstudag lék Norður-írland og
Wales í Belfast. írska liðið hafði mikla
yfirburði en tókst þó ekki að tryggja sér
sigur. Spence skoraði fyrir íra en
Robbie James jafnaði. Lokastaðan í
keppninni varð þessi:
England
Wales
Skotland
N-lrland
3 2 1 0 5—1 5
3 12 0 4—1 4
3 10 2 2—6 2
3012 1—4 1
Dynamo Berlín sigraði
í Austur-Þýzkalandi
Dynamo Berlín hefur tryggt sér
meistaratitilinn i austur-þýzku knatt-
spyrnunni. Á laugardag sigraði liðið
helzta keppinaut sinn, Dynamo
Dresden, 3—1 í Austur-Berlin og það
hafði úrslitaþýðingu.
Staða efstu liða að tveimur um-
ferðum óloknum er þannig:
Dyn. Berlín 24 19 4 1 62-14 42
Dyn. Dresden 24 13 9 2 54-18 35
C.Z.Jena 24 14 5 5 37-18 33
Magdeburg 24 13 5 6 53-28 31
Tvö heimsmet Rigert
í þungavigtinni á EM
David Rigert, Sovétríkjunum, sem
sett hefur 60 heimsmet í lyftingum,
setti tvö ný á Evrópumcistaramótinu í
Varna i Búlgaríu á laugardag. Það var í
þungavigt.
Rigert snaraði 180 kg og bætti eigið
met um 1,5 kíló og samtals náði hann
402,5 kg. — 2,5 kg. betra en eldra
heimsmetið, sem Adam Saidulajev,
Sovétríkjunum, átti. Rigert reyndi að
koma heimsmetinu í jafnhöttun í 226
kg. en tókst ekki. Varð að láta sér
nægja 222,5 kg.
Úrslit í þungavigtinni urðu þessi á EM:
1. Rigen, Sovél, 402,5 (180-222,5)
2. Sirchin, Sovét, 392,5(172,5-220)
3. Asparouhov, Búl. 375,0(170-205)
4. Solomvary, Ung. 372,5 (167,5-205)
5. lakovou, Gríkkl. 367,5 (165-202,5)
6. Hening, A-Þýzk. 365,0 (165-200)
7. Zaremba, Tékkó. 365,0 (165-200)
8. Tasnady, Rúm. 347,5 (157.5-190)
9. Nlemi.Finnl. 340 (150-190)
10. Striziek, Austurr. 332,5 (150-182.5).