Dagblaðið - 28.05.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 28.05.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979. Egypzkir hermenn cru komnir til borgarinnar El Arish á Sinaiskaga. Sú borg hefur verið hersetin af lsraelum I tólf ár en þeir hafa nú látið hana af hendi i samræmi við ákvxði friðarsamninga landanna. Friðarsamningar Egypta og ísraelsmanna: LANDAMÆRIN OPNUÐÍGÆR Landamærin á milli ísraels og Egyptalands voru formlega opnuð um helgina. Fór það þannig fram að Sadat forseti og Begin forsætisráð- herra flugu saman fram og aftur yfir landamærin. Begin lýsti þvi yfir að nú gætu borgarar landanna farið þar á milli ótruflaðir. Nokkrar takmark- anir verða þó að sögn á ferðafrelsi fólks í fyrstu. Aðallega verða þar á ferðinni stjórnmálamenn, kaupsýslu- nienn og aðrir slíkir sem ákveðnum erindum hafa að gegna. Áætlunarflug á milli Kairó og Tel- Aviv mun að sögn egypzka blaðsins Al-Ahram ekki hefjast fyrr en gengið hefur verið frá fleiri atriðum friðar- samninga landanna. Búizt er við að það verði er ísraelar hafa afhent Egyptum tvo þriðju af Sinaískagan- um en það á að verða síðar á þessu ári. Sadat forseti Egyptalands var í nótt í borginni El-Arish en ísraels- menn voru að afhenda Egyptum hana eftir tólf ára hersetu. Tóku þeir hana herskildi í sex daga stríðinu. Holland: Hver ber sökina á Tenerífeslysi? — réttarhöld vegna þessa mesta f lugslyss sögunnar hef jast nefndinni, sem er sjálfstæð stofnun, sem sett var á fót fyrir síðari heims- styrjöldina. Hvorki spænskir né bandarískir aðilar munu koma fyrir réttinn að þessu sinni. Að sögn spænska sendi- herrans i Hollandi mun fulltrúi þeirra ekki verða viðstaddur réttarhöldin. YHrheyrslur munu að öllum líkind- um standa í tvo daga en búizt er við niðurstöðum eftir þrjár til sex vikur. íHaagídag Opinber réttarhöld og rannsókn á flugslysinu mikla í Tenerife á Kanarí- eyjum sem varð í marzmánuði árið 1977 hefst í Haag í Hollandi í dag. Þar er ætlunin að komast til botns í þvi hver bar ábyrgðina á mannskæðasta flugslysi sögunnar. Þar fórust 583 menn þegar Boeing þota 747 frá banda- ríska félaginu Pan Am og önnur frá hollenzka flugfélaginu rákust á á flug- brautinni. Spænsk og hollenzk yfirvöld- um hefur greint á um orsakir slyssins, sem varð i löluverðri þoku og slæmu skyggni. Meðal þeirra sem koma fyrir réttinn i Haag verða tíu sérfræðingar, sem segja eiga álit sitt. Dómurinn er skipaður af hollenzku flugöryggismála- Helltu niður vínbirgðum sendiherrans Fulltrúar hinna nýju stjórnvalda i íran réðust í gær inn í vínkjallarann í sendiráði landsins í Washington og helltu niður öllu sem þar var. Ardeshir Zahedi, fyrrum sendiherra íran í Bandaríkjunum, var þekktur fyrir mikil og glæsileg veizluhöld. Vínkjall- arinn var því ekkert smásmíði og alls mun innihald fjögur þúsund vin- flaskna hafa farið niður um skolprörin i sendiráðinu í gær. Fulltrúi nýju stjórnvaldanna í íran, sagði að áfengisdrykkja væri andstæð þeim trúarreglum sem múhameðstrúar- menn færu eftir. „Áfengið er uppruni alls ills,” sagði fulltrúinn. Hann sagði að það hefði einnig verið brot á trúar- lögunum að selja vínbirgðirnar svo eina ráðið hafi verið að hella þeim niður. Ekki vissu menn hversu mikils virði vínbirgðirnar í sendiráðinu hefðu verið ef boðnar hefðu verið til sölu. En þær þóttu mjög dýrmætar og var þar meðal annars verðmætt kampavín, líkjörar og vín af ýmsu tagi. í íran er nú tekið mun harðar á brot- um gegn reglum Kóransins en áður og áfengisdrykkja þykir þar nú með alvar- legri brotum eins og víðar í þeim ríkj- um þar sem múhameðstrú ríkir. Harrisburg: Óþekkt veiki i kúm nærri kjamorku- stöðinni —grunur um aðgeislavirkni vegna bilunarinnar haf i valdið dauða tólf kálfa og sjö kúa í nágrenni stöðvarinnar Minna er viku eftir að slysið varð í kjarnorkuverinu nærri Harrisburg í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum átti kýr ein hjá bónda þar í nágrenninu kálf. Var það nokkru fyrr en reiknað hafði verið með. Skömmu síðar dó kálfurinn og kýrin sjálf nokkru siðar. Bóndi þessi sem býr í minna en fimm mílna fjarlægð frá kjarnorku- verinu hefur siðan átt í mesta basli. Hefur hann misst tólf kálfa og sjö kýr úr dularfullum sjúkdómi, sem enn hefur ekki tekizt að greina. Ekki er þó hægt að fullyrða neitt um að þarna séu afleiðingar geislavirkni á ferðinni. Nokkurt geislavirkt efni komst frá kjarnorkuverinu við bilun- ina í því. Barst það bæði í andrúms- loftið og komst einnig út í á eina, sem rennur um landið. Að sögn yfirmanns þeirrar rann- sóknarstofu, sem kannað hefur ástæðurnar fyrir dauða nautgripanna kemur margt til greina auk geisla- virkninnar. Land bóndans hefur verið kannað með tilliti til hugsan- legrar geislavirkni. Ekkert hefur fundizt í jarðveginum né fóðri kúnna. Bóndinn segir sjálfur að þar til slysið í kjarnorkuverinu varð hinn 28. marz þá hafi aldrei neitt óvenju- legt hent kýr hjá honum. Erlendar fréttir Leyniskjöl úr síðari heimsstyrjöldinni: Japanir ráðgerðu nýtt ísrael í Mansjúríu áttiaðflytjaþangað útlæga gyðinga frá Evrópu Skjöl, sem nýlega er búið að þýða úr japönsku yfir á ensku hafa leitt i Ijós, að Japanir hugðu á að flytja gyðinga frá Evrópu til Mansjúríu í Norðurhluta Kína. Þar átti að stofna til búsetu þeirra og notfæra sérmenntun þeirra, fjármagn og góða hæfileika. Helzt var þetta hugleitt á fyrstu árum síðari heimsstyrjaldarinnar og alveg fram að því að Japanir réðust á Pearl Harbour og gerðust beinir aðilar að styrjöldinni við htið Þjóð- verja. í viðræðum við aðila í Japan hefur komið í ljós að ætlunin var að bjarga gyðingum úr klóm nasista og flytja þá til Mansjúríu. Upphaflega hugmyndin varð til í hópi herforingja og japanskra iðnjöfra árið 1935. Ætluðu þeir að fá fimmtíu þúsund gyðinga til að byrja með og flytja þá síðan til Mansjúríu. Áttu þeir að vera eins og nokkurs konar frumherjar en i fótspor þeirra skyldu síðan koma um það bil ein milljón gyðinga í viðbót og setjast að i norðurhluta Kína. Ætlunin var að gyðingarnir tækju þarna við algjörri auðn eða órækt- uðu landi. Át‘; það að þróast upp í sjálfstætt ríki er tímar liðu. Ætluðust Japanir til þess að þarna mundi verða heppileg andstaða gegn nágrönnunum Sovétmönnum og seinna meir draga til sin fjármagn og samúð Bandaríkjamanna og með þvi auka á veldi Japans í Austurlöndum. Upplýsingar um þessar ráðagerðir koma fram í bók sem er að koma út í Bandaríkjunum og Bretlandi í sumar. Heitir hún Sagan ósagðaaf Japönum og gyðingum á árum síðari heims- styrjaldarinnar. Höfundarnir, sem eru Marvin Tokayer og Mary Sagmaster, segjast byggja bók sína á skjölum sem þau hafi grafið upp og kannað. Einnig liafi þau rætt við Japani, sem unnið hafa að áætluninni um flutning gyð- inganna til Mansjúríu, ekkjur þeirra eða börn. Einnig hafi þau komizt yfir gögn frá gyðingum, sem búið hafi í Japan og Kina á árum síðari heims styrjaldarinnar. Hluta af sögu'sinni byggja þau á hernaðarskjölum og gögnum sendimanna Japans á þessum árum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.