Dagblaðið - 28.05.1979, Blaðsíða 22
Skóg/ugginn
aug/ýsir:
BarnasandaJar
Póstsendum
Skóbúðin Snorrabraut 38
Sími 14190
Lipurtá, Hafnargötu 58
Keflavík.
Enskir frúarskór
Litur:
Dökkbrúnn
Stærðir 37—
Verð kr.
6.900,
feg.2
Litur: Beige
Verð frá kr. 7.799.-
SKÓGLUGGINN HF.
RAUÐARÁRSTÍG 16
SÍM111788
Teg. 1
Stærðir
28-3F
léttaþér
landbúnaðar-
störfin!
Lysbro verksmiöjurnar hafa framleitt
vönduö verkfaeri fyrir hvers kyns
garðyrkju- og landbúnaöarstörf í 80 ár,
enda er nafnið eitl í dag trygging fyrir
framúrskarandi gæöum.
umboósmenn:
K.Þorsteinsson &Co.,Sundaborg
Tónlist í sumarfríinu, II.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
'
Ustahátíbir í Evrópu
»
Danny Kpy
stjórnar
hljómsveit
i Hollandi.
Á mánudaginn sögðum við frá
nokkrum helstu tónlistarhátiðum í
Evrópu á þessu sumri — í þeim lönd-
um þar sem líklegt er að íslendingar
verði á ferðinni. Hér á eftir fer siðari
hluti þeirrar frásagnar.
Grikkland
Þar fer fram Aþenulistahátiðin (5.
júní—30. sept.) á hverju ári — á
Akrópólishæðinni sjálfri. í ár kemur
Pekingóperan í heimsókn i fyrsta
sinn, 19., 20. og 21. júní, og gríska
þjóðleikhúsið flytur harmleiki eftir
Evripides. Óperan flytur Töfraflaut-
una og Bamberger-sinfónían flytur
tónlist eftir Beethoven, Mozart,
Brahms, Berlioz o.fl. Þrjár aðrar
hljómsveitir taka þátt í hátíðinni.
Dansáhugafólk fær í sinn hlut Ástr-
alska ballettinn, Bolshoi-ballettinn
og dansflokk Alvin Aileys. Miðar
munu kosta frá 700 krónum upp i
4000 krónur.
írland
Listahátíðir á Írlandi eru ávallt sér-
stakar, segja þeir sem til þekkja. Frá
3. til 15. júni verður tónlist flutt í
nokkrum höllum eða höfðingjasetr-
um kringum Dublin. Meðal flytjenda
í ár eru Paul Tortelier og Amadeus
strengjakvartettinn. í Dublin fer svo
fram tónlistarkeppni dagana 23. og
24. júní. í Killarney spila menn svo
Bach 6.—8. júlí og bæði í Waterford
(15.—30. sept.) og Wexford (24.
okt.—4. nóv.) verður ópera á dag-
skrá.
Ítalía
i Róm eru reglulegar óperusýn-
ingar til 22. júní og verða á dagskrá
Anna Bolena eftir Donizetti, Manon
Lescaut eftir Puccini, La Traviata
eftir Verdi og Mandaríninn undur-
samlegi eftir Bela Bartók. í Flórens
eru Maí-músíkdagarnir í gangi til 3.
júlí og á dagskrá eru Wozzek eftir
Berg, Das Rheingold eftir Wagner og
annað markvert er t.d. Netherlands-
dansflokkurinn, dansflokkur Béjarts
og Pólska sinfónian undir stjórn
Pendereckis. Meðal hljómsveitar-
stjóra þar má nefna Riccardo Muti
og Carlo Maria Giulini. Frægir
söngvarar munu þenja sig þarna:
Montserrat Caballé, Terenza Berg-
anza og Marilyn Horne. í Feneyjum
er lítil óperuhátíð í gangi til 24. júlí.
Þar verða sýndar Aspern eftir Salva-
tore Sciarrino og svo Othello eftir
Verdi. í Spoleto fer fram hátíð frá
27. júni—15. júlí, með höfuðáherslu
á ungt og óþekkt hæfileikafólk, og
fer flutningur tónlistar fram í fornum
byggingum. Orgeláhugamenn fá sér-
staka hátíð í Ravenna frá 9. júlí—20.
ágúst og spila þar helstu meistarar
hljóðfærisins. i Veróna fer fram
óperuhátíð i gömlu rómversku leik-
húsi sem tekur 22.000 manns (12.
júlí—1. sept.). í ár eru á dagskrá La
Traviata eftir Verdi, Turandot eftir
Puccini og Mefistofele eftir Boito. í
Stresa er hátíð (21. ágúst—20. sept.)
sem í ár er helguð Respighi og eru
sólóistar m.a. Henryk Szeryng, tssac
Stern og Wilhelm Kempff.
Luxemburg
í Luxemburg eru tvær meginhátíð-
ir helgaðar tónlist. Sú fyrri er Echter-
nacht-hátíðin (14. júní—15. júlí) og
þar spilar Claudio Arrau en þær
Teresa Berhanza og Montserrat
Caballé syngja. Lazar Berman leikur
á píanó og rómaðar hljómsveitir
verða á dagskrá. Wiltz-hátiðin verður
haldin 30. júní—5. ágúst. Þar er á
dagskrá suðuramerísk óperetta,
klassískur gítarleikur Konrads
Ragossnig, jass með Earl Hines og
óperan L’arlésienne eftir Bizet, plús
Bach-hylling og margt fleira.
Holland
í Hollandi er helst að geta Hol-
landshátíðarinnar (1.—23. júní) sem
fer fram um allt landið. Flutt verða
nokkur ný tónverk eftir Xenakis,
Steve Reich og Louis Andreassen.
Netherlands-óperan flytur Tristan
und Isolde eftir Wagner og Frank-
furt-óperan flytur verk eftir Luigi
Nono og The Fires of London munu
flytja nýtt verk eftir Peter Maxwell
Davies er nefnist Pislardauði Sankti
Magnúsar. Rotterdam-danshópurinn
tekur þátt í flutningi Relache eftir
Satie og Piege de Medúsa eftir sama.
Fluttur verður ballett eftir Darius
Milhaud, L’homme et son désir, og
farsi eftir Hindemith. Concertge-
bouw-hljómsveitin leikur undir
stjórn Carlo Maria Giulini, Antal
jass, kvikmyndum, leikhúsi, lúðra-
sveitum o.fl. og i Koningsberg er
aðaláhersla á jass og dans (27. júni—
1. júlí). Þar er hápunkturinn „jam
sessjón” i gamalli námu.
Spánn
Á Spáni fara fram þrjár miklar
listahátíðir, í Granada, Santander og
Barcelona. í Granada (24. júní—8.
júli) var nýlega opnuð tónlistarmið-
stöð helguð Manuel de Falla og þar
fara fram tónleikar. En annars staðar
er spænski ballettinn á ferðinni, ball-
ett Parísaróperunnar flytur Svana-
vatn, Giselle og Þyrnirós. Fíl-
harmónian i London leikur og
sovéskir snillingar verða á dagskrá,
svo og blásarakvintett frá Múnchen
og ótal spænskar hljómsveitir og kór-
ar.
í Santander (1.—23. ágúst) er lögð
áhersla á tónlist og dans. Þar verður
reist 3000 manna tjald og þar dansa
spænski ballettinn, pólski ballettinn
og kúbanski ballettinn. Victoria de
los Angeles syngur í dómkirkju
staðarins og hljómsveitir eins og
Dresden-filharmónían, 1 musici og
aðrar verða á dagskrá. Siðan er jass'á
dagskrá 13. og 14. ágúst.
i Barcelona (1.—31. okt.) verður
Tonhalle-hljómsveitin frá Zúrich,
Kammersveitin frá Moskvu, svo og
hljómsveit frá Frakklandi og Spáni.
Meðal snlóista verða Alfred Brendel,
Henrvk Szeryng o.fl. Gítartónlist og
söngur verður einnig á dagskrá.
Svíþjóð
Þar verður Drottningholm-óperan
ötul i suniar frá 2. júni—19. sept. Á
dagskrá eru Gustaf Adolf og Ebba
Brahe eftir Georg Joseph Vogler
(2. —13. júní), Xerxes eftir Hándel
(29. júní—20. júli) og Don Giovanni
eftir Mozart (3.—23. ág.). Siðan mun
ballettinn La dansomanie eftir
Etienne Nicolas Mehul reka enda-
hnútinn á hátiðina, frá 1.—19. sept.
Miðar munu kosta frá ca 2000
krónum upp í 4.500krónur.
Júgóslavía
í Dubrovnik (10. júlí—25. ágúst)
verða yfir 100 sýningar, — tónlist,
ballett, þjóðlagatónlist, leiklist. Af
óperum má nefna Iphgenia in Tauris
Jo»n Hall
Dorati og Danny Kaye. Haag,
Rotterdam og fleiri hljómsveitir
koma einnig við sögu. Dansflokkar
verða þar einnig — Merce Cunning-
ham, hinir sprenghlægilegu Trocka-
deró de Monte Carlo, Laura Dean
danshópurinn og Nútímadanshópur-
inn frá London.
Noregur
Tónlist
Bergen-hátíðin er þekktust af
norskum hátíðum. Hún fer fram 23.
maí—6. júní og verður spilað í nýjum
hljómleikasal sem nefndur er eftir
Grieg. í Harstad fer fram hátíð frá
16.—24. júní með klassískri tónlist,
AÐALSTEINN
INGÖLFSSON
eftir Gluck, Rakarinn í Sevilla eftir
Rossini, Rigoletto eftir Verdi og
Pimpinone eftir Telemann. Belgrad-
ballettinn treður upp, svo og Nether-
lands-danshópurinn. Zagreb-filhar-
mónían leikur, Lundúnasinfónían,
Moskvufílharmónían og Academy of
St. Martins in the Fields. Meðal
hljómsveitarstjóra verða André
Previn og Neville Marriner, Nicolai
Gedda syngur og píanóleikararnir
Emil Gilels og Rudolf Firkusny leika.
Leikrit eftir Shakespeare verða flutt
undir beru lofti og þjóðdansar verða
fluttir af ýmsum júgóslavneskum
danshópum.
V