Dagblaðið - 28.05.1979, Page 14
14
Flugáhugafólk
takið eftir
Mánudaginn 28. maí, í dag, verður haldinn stofnfundur um fyrirhug-
aðan flugklúbb í Reykjavík.
Markmið klúbbsins verður að tryggja meðlimum sínum kennslu- og
sportflug á sem hagkvæmustu verði.
Fundurinn verður haldinn að Hótel Loftleiöum (bíósal) kl. 20.30.
Allt áhugafólk um flug er velkomið.
Siglufjörður
Staða sparisjóðsstjóra við Sparisjóð Siglu-
fjarðar er laus til umsóknar. Góð launakjör.
Ráðning frá 1. október 1979.
Umsóknir sendist til formanns stjórnar spari-
sjóðsins fyrir 1. júlí nk. sem gefur allar nánari
upplýsingar.
Vinnuvélar til sölu
BRÖYT X2B,
árgerð 1972/1973, í góðu standi, meðámoksturstækjum.
BRÖYT X30
árgerð 1977, aðeins 1700 vinnustundir, með nýrri dælu.og útfærslu
og nýjum stálhjólum. Ámoksturstæki eru á vélinni en ónotaður
gröfubúnaður gæti einnig fengizt með.
HJÓLASKÓFLA,
árgerð 1968/1969,17 tonn, í góðu standi. Hagstætt verð.
GRJÓTPALLUR
meðsturtum fyrir 10 hjóla vörubíl.
Upplýsingar i sima (91) 19460 og (91)32397 (kvöld- og helgar-
simi).
Skrifstof u — lager —
iðnaðarhúsnæði
Til leigu miðsvæðis í Reykjavík:
191 ferm skrifstofuhúsnæði, innréttað og með öllum
búnaði, skiptist í 4 skrifstofuherbergi, móttöku, kaffi-
stofu og fundarherbergi. Gæti leigzt í smærri einingum,
einnig 191 ferm óinnréttað húsnæði á 2. hæð.
Einnig á sama stað 179 ferm geymsluhúsnæði á jarð-
hæð með innkeyrsludyrum.
220 ferm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð með innkeyrslu-
dyrum. Upplýsingar í síma 25632 á kvöldin.
Náttfata-
^ markaður
Ingólfsstræti 6
Nýjar vörur
daglega
Peysur og barmfatnaöur brjóstahaldarar, yfir-
stærðir í undirfötum og margt margt fleira.
Látið ekki happ úr hendi sleppa.
T úlípaninn
Ingólfsstræti 6.
DAGBi.AÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
Þetta er sigurförðunin, módel Ingibjargar Dalberg, sem ákvað með tveggja daga
fyrirvara að taka þátt i keppninni.
Litir af ýmsu tagi voru notaðir, farðar, maskar, púður og duft, þegar málaður var eld-
ur og is á módelin.
UTRÍKIR LÍKAMAR
ÁSÖGU:
Bdur
ogís
íhug-
mynda-
fóröun
Það var mikið um dýrðir á Hótel
Sögu á föstudagskvöldið þegar þar fór
fram keppni i „hugmyndaförðun”
snyrtifræðinga. Viðfangsefnið var ,,ís
og eldur” og gáfu keppendur ímyndun-
araflinu lausan taum. Útkoman varð
litrík og skemmtileg — fimm módel
máluð sem eldur og ís.
Sigurvegari í keppninni varð Ingi-
björg Dalberg, í öðru sæti Bentína
Björgólfsdóttir.
Upphaflega var þessi keppni hugsuð
sem Norðurlandamót, i tengslum við
þing norrænna snyrtifræðinga, sem hér
var haldið um helgina og áttu að keppa
tveir þátttakendur frá hverju landi.
Þegar til kom var aðeins einn útlendur
keppandi, frá Svíþjóð, og hafnaði hún
i fimmta sæti. Módel hennar var þó hið
athyglisverðasta — m.a. logaði á ljósa-
peru milli brjóstanna.
-ÓV /DB-mynd Höróur.
Þessi var máluð eins og dreki — eldspú-
andi — og var stráð kolum yfir slörið i
lokin.
DB-mynd Hörður.
Mikil vinna var lögð f sum módelin —
Bentina Björgólfsdóttir, sem var önnur,
byrjaði á sinu módeli (sem myndin er af á
forsiðu) tólf tfmum áður en dæmt var.