Dagblaðið - 28.05.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
23
Fyrsta kvart-
mílukeppnin:
FÓR KVARTMÍLUNA
Á 12,07 SEK.
Benedikt Eyjólfsson á 455 Pontiac
sinum skrapar brautina með afturstuðar-
Anna Maria Pðtursdóttir á BMW 2002
keppti í standard-flokki og sigraði. Hér
er hún að laga til bremsurnar á bíl slnum
fyrir keppni.
DB-myndir Ragnar Th. Sigurðsson.
Áhorfendur supu hveljur þegar Bene-
dikt Eyjólfsson skrapaði kvartmílubraut-
ina með afturstuðara 455 Pontiac jepp-
ans, svo hátt reis hann aö framan I jyrstu
kvartmllukeppninni sem haldin var á
laugardaginn var á kvartmllubrautinní
nýju I Kapelluhrauni. Var það jafnframt
fyrsta aksturíþróttakeppnin sem haldin
hefúr verið á tslandi á lokuðu, löglegu
svœði, þar sem hraðatakmarkanir giltu
ekki.
Keppnin skiptist í tvennt og var fyrst
forkeppni, þar sem tlmar bllanna og mót-
orhjólanna voru teknir en siðan hófst
Þessi kom frá Akureyri á Camaro slnum, formaöur Bllaklúbbs Akureyrar. Hér er hit-
að upp fyrir keppni. Þetta kalla kvartmllumenn „bum-out ”, þ.e. efsta lag gúmmlsins I
dekkjunum er sjóöhitað svo spyman verði ákveðnari.
aðalkcppnin og var keppendum raðað
þar upp miðað við þá tima sem þeir
náðu. Forkeppnin gekk fljótt og vel fyrir
sig en ekki verður það sama sagt um aðal-
keppnina. Langur tlmi leið á milli spyrn-
anna og bar þar margt til. Tilhaka-
brautin var löng og erfið yfirferðar svo
að bUarnir voru lengi á leiðinni á við-
gerðarsvœðið aftur. Þá biluðu matgir bO-
anna i forkeppninni og var unnið að þvi
að koma þeim i lag > vo aó þeir gætu hald-
ið keppninni áfram. Þá voru starfsmenn
kvartmiluklúbbsins óvanir að halda
svona stóra keppni og hjálpaði það til að
draga keppnina á langinn. En þráttfyrir
þessa byrjunarörðugleika tókst keppnin
vel og má það meðal annars þakka prúð-
mennsku áhorfenda sem héldu sig á
áhorfendasvœðunum. Þá voru margir
kraftmiklir og skrautlegir bllar I keppn-
inni sem gerðu hana skemmtilega. Má
þar t.d. nefna Kryppuna úr Hafnarfirðin-
um en hún stundaði það að lyfia fram-
dekkjunum fet frájörðu þegar Finnbjörn
spyrnti henni af stað. Þá má ekki gleyma
302 Monzunni hans Birgis Jónssonar en
Birgir sigraði í Street Alterd flokki og
náði jafnframt bezta tíma keppninnar.
Fór hann kvartmíluna á 12,07 sekúnd-
um, sem er mjög góður timi. Orslit í
öðrum flokkum urðu þau að I Modificd
Standard flokki sigraði Einar Egilsson
en hann keppti á Chevrolet Camaro
Super Sport með 350 kúbika vél.
/ Standardflokki sigraði Anna Maria
l'. ursdórir en hún keppti á BMf
með 2001 cc vél. Imótorhjólaflokkisigi
aði Hilmar Harðarson en hann keppti '
Kawazaki 1000 KZ hjóli. Við munum
greina nánar frá keppninni nœsta laugar-
dag.
Jóhann Kristjánsson.
20 STK. AF LÍTILSHÁTTAR ÚTLITSGÖLLUÐUM TRANSCRIPTOR Hl-
Fl GLERPLÖTUSPILURUM Á VERKSMIÐJU-ÚTSÖLU HJÁ RAFRÁS
HF. EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AD EIGNAST ÞESSA LISTRÆNT
HÖNNUÐU HÁGÆÐA SPILARA MEÐ 20% AFSLÆTTI OG 3-6
MÁNAÐA GREIÐSLUKJÖRUM:
Hafifl samband vifl:
Söluskrifstofu RAFRÁSAR HF.
ÁRMÚLA 5, REYKJAVÍK. OPIÐ 13-19.00. SÍMI 82980.