Dagblaðið - 28.05.1979, Page 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
33
HELGISEM HARLEKÍN
Helgi Tómasson fær mjög góöa dóma
í ballett eftir Balanchine
DB hefur borist grein úr New York
Times, frá 20. maí, en þar er frammi-
staða Helga Tómassonar ballettdans-
ara sérstaklega rómuð í verki Balan-
chines, „Harlequinade”. Greinin,
sem er eftir dansgagnrýnandann
Anna Kisselgoff, fylgir hér á eftir.
„Þótt Helgi Tómasson hafi lengi
verið talinn uppáhaldsdansari dans-
ara vegna hins hreinlega klassiska
stils sem hann hefur tileinkað sér svo
og sökum tæknilegrar nákvæmni, —
en hvorutveggja er meðal þess besta
sem gerist i alþjóðlegum ballett — þá
hefur hann einnig sómt sér ágætlega í
dramatískum hlutverkum. Sú hlið á
honum kom fram snemma á ferli
hans, með Joffrey og Harkness ball-
ettflokkunum, þar sem hann lék stórt
hlutverk í sálfræðilega krefjandi
dansverkum eins og „Monument to a
Dead Boy” eftir Rudi van Dantzig.
En slik túlkun varð síðar áberandi
eftir að Helgi gekk í New York City
ballettinn árið 1970.
Frábær leikur
En Jerome Robbins sem tókst að
lokka Helga til New York frá heima-
landi hans íslandi snemma á sjöunda
áratugnum, fékk honum gjarnan
hlutverk sem byggðust á mjög tilfinn-
ingalegri eða dramatískri túlkun. Og
nú á föstudagskvöldið dansaði Helgi
Tómasson Harlekin í einum af hinum
fáu ballettum Balanchines sem inni-
halda söguþráð, „Harlequinade”, i
New York State Theatre. Leikur hans
var frábær, hreyfingar skeleggar,
dansinn hárnákvæmur og hraður —
og svo var í túlkun hans leikandi
glettni. Jafnvel pörin fjögur sem
leggja út af ástarmálum Harlekíns,
brostu þegar hann birtist fyrst til að
fara á fjörur við Kólumbinu.
Ástæðan var augljós.
Ákafi Helga Tómassonar var smit-
andi og túlkunin kom fram í „itölsk-
um” handahreyfingum og sveiflum,
sérstaklega er hann gerði hosur sínar
grænar fyrir kærustu sinni.
Eldibrandur
í dansinum
Sem Kólumbína dansaði Patricia
McBride aftur á móti sinum gamla
samstarfsmanni og þótt báðir dansar-
arnir misstu úr spor i tvidönsunum
tveimur (pas de deux) þá dönsuðu
þau undur vel saman. í hinum
tveimur sólódönsum sínum sýndi
Helgi Tómasson aftur þá snilldar-
takta sem fram komu I látbragðsleik
hans, skýrar hreyfingar og hraða svo
hann virtist eins og eldibrandur í
dansinum . . .
Dagskráin hófst með frumsýningu
Helgi Tómasson
á „Le Tombeau de Couperin” eftir
Balanchine. Þetta er margþætt sjón-
ræn túlkun á tónlist Ravels og er án
efa eitt af meistaraverkum Balan-
chines. Hrynjandi byggist bæði á
þjóðdönsum og settlegum hirðdöns-
um, en hér er sami dansinn fluttur af
tveim hópum i einu sem er stórkost-
legt sjónarspil. Hérer fullkomið hóp-
verk og dansararnir gerðu þvi vegleg
skil.”
(Þýð. A.l.)
SVONA SITJA
NORÐMENN
—ekki vitlausara en margt annað
„Stólar” þessir voru sýndir á stórri húsgagnasýningu i Kaupmanna-
höfn fyrir skömmu og vöktu mikla athygli.
Gjörið svo vel og fáið ykkur sæti —
eins og Norðmennirnirgera.
Norðmenn ganga nú nefnilega í ber-
högg við allar venjur um hvernig fólk
eigi að sitja. „Hin setstellingin” vakti
því mikla athygli á stórri skandinav-
ískri húsgagnasýningu í Kaupmanna-
höfn fyrir skömmu og margir urðu til
þess að lýsa ánægju sinni með þessa
nýjugerðstóla.
„Hin setstellingin"
Norðmenn eru ekki að draga dár að
fólki með einhverri gamansemi. Stól-
arnir eru viðurkenndir af norsku innan-
hússarkitektasamtökunum. Norsku
arkitektarnir hafa lengi kannað setstell-
ingar barna og öll könnumst við við að
þau sitja gjarna á þennan hátt — með
fæturna undir sér.
Þetta varð til þess að reynt var að
smiða stóla, eða hvað maður á að kalla
þetta, sem mynda opinn þríhyrning við
fætur og efri hluta líkamans. Kostirnir:
Minni þrýstingur á mjóhrygginn. í stað
þess er efri hluti líkamans í góðu jafn-
vægi með minnstu áreynslu. Þessir
nýju „stólar” hafa enda hlotið heitið
„jafnvægi”.
Stólar þessir eru taldir sérlega hent-
ugir sem vinnustólar við borð. Fæt-
urnir fara inn undir borðið án þess að
maður þurfi að beygja sig fram og
reyna á hrygginn, segja Norðmenn.
Enn er ekki hafin fjöldaframleiðsla á
þessum stólum en áhugi er mikill fyrir
þeim, þar sem þeir hafa verið sýndir.
Þýö. hp
HÖGG-
' Xq-\ji DEYFAR
. I Loftdemparar | íflestartegundir !! bifreiða á ótrúlega hagstæðu verði.
Stýrisdemparar • Póstsendum um allt land
f jpg | /iHP, ■ ■
Gasdemparar HOGGDEYFIR Dugguvogi 7 — Sími 30154
Sendum ípóstkröfu um allt land
E 78x15 KR. 19.500 BR78x13 KR. 16.600
G 78x15 KR. 21.500 615x13 KR. 16.500
H 78x15 KR. 23.600 700x13 KR. 15.600
L78x15 KR. 27.600 BR 78x14 KR. 17.900
LR 78x15 KR. 31.500 CR 78x14 KR. 19.800
HR 70x15 KR. 29.200 H 78x14 KR. 22.300
JR 78x15 KR. 29.800 B78x14 KR. 16.900
GR 78 x 15 KR. 26.500 P205/70Rx14 KR. 22.800
HR 78x15 KR. 27.400 P205/75Rx14 KR. 21.800
GR 70x15 KR. 27.400
SAMYANG HJÓLBARÐAR
615x13 KR. 13.750 135x14 KR. 22.950
560x13 KR. 14.350 E 78x14 KR. 23.650
590x13 KR. 15.450 560x15 KR. 17.750
A78x13 KR. 16.550 700x15 jeppa KR. 35.800
B 78x13 KR. 19.300 700x16jeppa KR. 36.600
640x13 KR. 17.200 600x12 KR. 13.950
\
• Sólaðir hjó/barðar ávafít fyrirfíggjandi
• Einnig margar aðrar gerðir hjóibarða
• Sannfærist með þviað leita til okkar
Gúmmívinnustofan Skipho/ti 35 Sími 31055