Dagblaðið - 28.05.1979, Qupperneq 35
35
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 28. MAÍ 1979.
11
Útvarp
Sjónvarp
D
t---------------------------------------------->
HESS—sjónvarp í kvöld kl. 21,00:
Ætlaði að semja
við Breta C ævilangt fangelsi J
Rudolf Hess hefur á ný verið talsvert
i fréttum að undanförnu vegna þess að
því hefur verið haldið fram að sá fangi
sem situr nú einn í Spandau-fangelsinu
sé ekki Rudolf Hess. Hefur þetta að
vonum enn á ný beint athyglinni að
hinum aldna fanga sem þarna situr í al-
gjörri einangrun. Fangavist hans þarna
er nú orðin 38 ár. Hefur ýmsum þótt
þetta heldur ómannúðleg meðferð á
fanganum en Rússar hafa jafnan harð-
neilað að láta hann lausan.
í kvöld er á dagskrá sjónvarpsins
brezkt sjónvarpsleikrit sem nefnist ein-
faldlega Hess og er byggt á sannsögu-
legum atburðum úr ævi Rudolfs Hess.
Hinn 10. maí 1941 flaug einn af
æðstu mönnum þriðja ríkisins einn sins
liðs til Skotlands. Þetta var Rudolf
Hess, hægri hönd Hitlers, og erindi
hans var að reyna að ná friði við Breta.
En þeir voru ekki til viðtals um slíkt og
V_____________________________________
var Hess hnepptur í varðhald, og nú
situr hann einn eftir í Spandau-fang-
elsi, 85 ára gamall. Kröfurnar um að
hann verði látinn laus hafa að undan-
förnu gerzt æ háværari og ekki sizt
eftir að brezkur læknir, er hafði að-
stöðu til að skoða fangann, hélt þvi
fram að fanginn gæti alls ekki verið
Rudolf Hess vegna þess að engin ör
væri að finna á líkama fangans eftir sár
sem Hess hafði sannanlega hlotið.
Þessi mynd um Hess verður þvi að telj-
ast hvalreki á fjörur íslenzkra sjón-
varpsáhorfenda á þeim tima sem augu
heimsins beinast venju fremur að hin-
um aldna og einangraða fanga í
Spandau-fangelsinu.
- GAJ
►
Rudolf Hess.
DÓMSMÁL—útvarp í kvöld kl. 21.30:
í Paradís
í þættinum Dómsmál, sem Björn R.
Helgason hæstaréttarritari hefur um-
sjón með, verður i kvöld tekið til um-
fjöllunar dómsmál það er spannst af
upplestri á sögu Indriða G. Þorsteins-
sonar, Þjófur í Paradís, i útvarpinu.
Lögbann var sett á upplesturinn vegna
þess að kröfubeiðendum fannst sér
miski gerður með upplestrinum, en þeir
tengdust á vissan hátt söguþræðinum.
Hér er um mjög nýlegt mál að ræða
þar sem ekki eru nema örfáir dagar
síðan dómur féll i máli þessu í Hæsta-
rétti, og var niðurstaða dómsins á þá
lund að lögbannsúrskurðinum skyldi
hnekkt.
Þátturinn i kvöld er sá síðasti á þess-
um vetri en reiknað er með því að þátt-
urinn hefji göngu sina á nýjan leik i
haust. -GAJ
»
Indriöi G. Þorsteinsson rithöfundur.
i
^ Útvarp
Mánudagur
28. maí
i
12.00 Dagskráin. '1 ónlctkar. 1 ilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.Tiikynningar.
Vid Ainnuna: Tónleikar.
14.30 MiddfRÍssagan: „Þorp í dögun” eftir
Tsjá-sjú-lí. Guðmundur Sæmundsson les eigin
|iýðingull4).
15.00 M,iðdegistónlcikar: íslenzk tónlist. a. Trió
fyrir óbó. klarinettu og horn eftir Jón Nordal.
Kristján Þ. Stcphensen, Sigurður I. Snorrason
og Stefán Þ Stephensen leika. b. Lög eftir
Sigursvcin D. Kristinsson. Guðmundur Jóns
son syngur meöstrengjakvartett. c. ..Conccrto
breve" op. 19 fyrir hljómsveit eftir Herbert H.
Ágústsson. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur;
Bohdan Wodiczko stj. d. Svita cftir Skúla
Halklórsson. Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur; Páll P. Pálsson stj.
16.00 Fréttir. Tilkynnmgar. (16.15 Veðurfregn
irl.
16.20 Popphorn: Þorgeir Ástvaldsson kynnir
17.20 Sagan: „Mikael mjögsiglandi” eftir Olle
Mattson. Guðni Kolbcinsson les þýðingu
sina 441.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Vcðurfregnir. Dagskrá kvóldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar
19.35 Daglegt mái. Árni Böðvarsson flytur þált
inn. 19.40 Um daginn og veginn. Þorvarður
Júiíusson bóndi á Söndum talar.
20.00 Lög unga fólksins. Asta R. Jóhannesdótiir
kynnir.
21.10 „Læknirinn í Cucugnan”, frönsk smásaga
úr Sögum Fjallkonunnar. Evert Ingólfsson
leikari lcs.
21.30 Um álthagafélög. Sóra Arelius Nielsson
flytur erindi og miðar við starfsreynslu sina
innan Brciðfirðingafélagsins i Reykjavlk.
21.55 Fióiuieikur. David Oistrakh lcikur lógeflir
Bartók. Szymanowski og Kodály.
22.10 Dómsmál. Björn Helgason hæstaréttar
ritari segir frá.
22.30 Veðurfregmr. Fréttir. Dagskrá rnorgun
dagsins.
22.50 Myndistarþáttur: Hrafnhíldur Schram sér
um þáttinn og talar við ncmcndur í Myndlista
og handiðaskóla Isiands.
2310 Fimmtu Beethoven-tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands i Hóskólabiói — siðari
hluti.
Stjórnandi: John Stecr frá Englandi. Sinfónía
nr. 4 i B dúr op. 60. — Kynnir; Askell Más-
son.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
29. maí
7.00 Vcðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfrcgnir. Forustugr. dagbl. (útdr.)
Dagskrá
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að etgin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Steinunn
Jóhannesdóttir lýkur lestri þýöingar sinnar á
sögunni ..Siúlkan. sem fór að leita að konunni
í hafinu'*eftir Jörn RicHI 1|.
9.20 læikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh.
11.00 Sjávarútvegur og siglingar. Umsjónar
maður: Jónas Haraldsson. Talað við Jörund
Svavarsson liffræðing um gróður á botni
skipa
11.15 Morguntónleikar: Filharmoniusveit
Lundúna leikur „Froissart”. forleik cftir Elgar;
Sir Adrian Boult stj / Shamuel Ashkenasi og
Sinfóníuhljómsveit Vinarborgar lcika Fiölu
konsert nr. I I D-dúr op. 6 cftir Paganini;
Heribert Esscrstj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynmngar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Á frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
I
Sjónvarp
D
Mánudagur
28. maí
20.00 Fréttir og vcður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarní Felixson.
21.00 Hess. Brcskt sjónvarpslciknt eftir lan
Curtcis, byggt á sannsögulegum atburðum.
Leikstjóri Tina Wakerell. Aðaihlutverk Wolf
Kahlcr. John Stride og Mark Dignam. Hinn
10. mai 1941 flaug cinn af æðstu mönnum
Þnðja rlkbins þýska cinn sins liós tii
Skotlands. Þetta var Rudolf Hess, hægri hónd
foringjans. og crindi hans var að rcyna aö ná
friði við Breta En þeir voru ekki til viðtals um
slikt. Hess var hnepptur i varðhald, og nú situr
hann cinn cftir í Spandau fangclsi, 85 ára gam
all. Þýðandi Jón O. Edwakl.
21.50 Jónik á dogum vikinga. Siðari hluti
danskrar myndar um fornleifarannsóknir i
Jórvik á Englandi. Þýðandi Þór Magnússon.
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
22.20 Dagskrárlok.
Eigum fyrirliggjandi á gamla verðinu kqffi, kjöt, smjör
og osta. Þrátt jyrir skipaverkfall höfum við úrval af nýj-
um ávöxtum oggott úrval nýlenduvara.
AUSTURBORG,
STÓRHOLT116, SlMI 23380.
Lærið ensku í London
Angloschool er á einum bezta stað í Suður-London og er viðurkenndur
með betri skólum sinnar tegundar í Englandi. Skólatíminn á viku er 30
tímar og er lögð mikil áherzla á talað mál. Skólinn er búinn öllum full-
komnustu kennslutækjum.
Kynnisferðir eru farnar um London, Oxford, Cambridge og fleiri þekkta
staði. Við skólann er t.d. Crystal Palace, íþróttasvæði þar sem hægt er að
stunda allar tegundir iþrótta.
Er til London kemur býrð þú hjá valinni enskri fjölskyldu og ert þar í
fæði. Margir tslendingar hafa verið við skólann og líkað mjög vel. Stór-
kostlegt tækifæri til að fara i fri og þú nýtir timann vel og lærir ensku um
leið.
1. tbnabii ar 4. júni — 4 vlkur. Uppeeh.
2. tímabtl er 2. Júl — 4 vikur.
3. tímabU s, 3S. júi - 4 vikur.
4. tímobii er 21. kgúst - 4 vikur.
:Ö11 aðstoð veitt við útvegun farseðla og gjaldeyris. Er þegar byrjað að
jskrifa niður þátttakendur. Sendum myndalista.
Allar nánari uppl. veittar i síma 23858 eftir kl. 7 á kvöldin og allar helgar.
Magnús Steinþórsson.
Hringdu strax í dag.
Líttutílokkar
Við höfum langmesta úrval svefnherbergishús-
gagna á íslandi.
Sérverzlun með svefnherbergishúsgögn
c 3
O
C7
Sýningahö/linni — Sími 81410