Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR30. MAÍ1979—121. TBL. RITSTJÓRN SÍÐLMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022. Stórbruni á Stokkseyri í nótt: RUMLEGA100 MANNS MISSA ATVINNUNA „Þetta er mikið, mikið tjón. Senni- lega nemur það hundruðum millj- óna,” sagði Ásgrimur Pálsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Stokkseyrar, í viðtali við DB í morgun, en í nótt varð stórbruni í stöðinni. Er talið að vinnslusalur sé ónýtur, skemmdir hafa orðið víða og reykur farið um allt. Frystigeymslur eru óskemmdar. „Eldsins varð vart um kl. fjögur i nótt, en þá virðist hafa orðið spreng- ing í vinnslusalnum,” sagði Ásgrimur ennfremur. „Við vitum þó alls ekki fyrir víst neitt um eldsupptök.” Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfossi og fjöldi manna vann við slökkvi- starf, sem lauk um kl. sjö í morgun. „Hér hafa rúmlega hundrað manns haft næga atvinnu að undan- förnu,” sagði Ásgrimur. „Við erum með átta báta á humri og vinnsla hefur gengið vel. Þetta er því ómælt tjón og við vitum ekkert, hversu langan tíma endurbygging tekur.” - HP / AG, Stokkseyri Allt tiltækt slökkvilið á Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfossi vann að slökkvistarfi til kl. sjö í morgun. Ljóst er, að þarna hefur orðið milljóna tjón. DB-mynd Magnús Karel, Eyrarbakka. Nauðgunarmálin: Tveim sleppt, einníhaldi Mennirnir tveir sem handteknir voru vegna nauðgunar í Öskjuhlíð aðfara- nótt sunnudagsins, voru látnir lausir í gær að afloknum yfirheyrslum. Báðir höfðu játað, annar að hafa nauðgað stúlkunni en hinn mun hafa aðstoðað félaga sinn. Aðfaranótt sunnudagsins var konu einnig nauðgað í Kópavogi og maður enn inni vegna þeirrar nauðgunar. - BH TALOG K0RTSN0J BODEÐAÐ TEFLAÁ REYKJAVÍK- URMÓTI — sjá bls. 8 ; „Við fengum mjólk i morgun og var það fyrsta sendingin til okkar f þessari viku,” sagði Maria Sigurðardóttir f eldhúsi Landspftalans i viðtali við DB i morgun. Alvarlegt vandræðaástand vegna mjólkurskorts hefði ekki skapazt á sjúkrahúsinu en þó væri alltaf nokkur hluti sjúklinganna, sem þyrfti mjólk með meðulum. En gripið hefði verið til þess ráðs að nota mjólkurduft. Það kæmi þó ekki að gagni fyrir ung- börn, sem ekki þyldu það og á þeim mundi mjólkurskortur koma þyngst niður svo og á gamla fólkinu. - ÓG —sjábls.9 Vilmundur ogríkið sýknuði Kastljós- málinu A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.