Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979. Nicaragua: TILKYNNT UM INNRÁS FRÁ COSTA RICA Stjórn Nicaragua tilkynnti í gær- kvöldi, að vinstri sinnaðir skæruliðar hefðu ráðizt inn í landið frá Costa Rica. Utanríkisráðherra Nicaragua tilkynnti að árásin, sem beindist aðal- lega að fimm stöðum, væri mjög al- varleg. Þarna væru á ferðinni skæru- liðar Sandinistahreyfingarinnar um það bil þrjú hundruð að tölu. Ráðherrann sagði, að einn hópur skæruliða hefði komizt fjörutíu kíló- metra inn í landið áður en þjóðvarð- liðar Somoza forseta hafi komið þeim í opna skjöldu í borginni Rivas, sem er i um það bil 170 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Mana- gua. Vitað er að í það minnsta einn liðs- foringi í þjóðvarðliðinu féll að sögn utanríkisráðhe'rrans en aðrar tölur hafa ekki verið gefnar upp um mann- fall. Talsmaður stjórnarinnar í Costa Rica neitaði öllum ásökunum um að skæruliðarnir hefðu komið þaðan inn í Nicaragua. Sagði hann allar fullyrðingar þar um fjarstæðu eina. Sagðist hann ekki skilja hvaða til- gangi ásakanir Nicaraguastjórnar ættu að þjóna. Eftir að utanríkisráðherra Nicara- gua hafði tilkynnt um innrás Sandin- istaskæruUðanna voru skyndilega; stöðvaðar allar útvarpssendingar.1 Ekki var gefið upp hvaða ástæður lágu þaraðbaki. Sandinistahreyfingin, sem nefnd er eftir fyrrum forseta Iandsins, sem steypt var af stóli í innrás Banda- ríkjamanna á þriðja áratug þessarar aldar, hefur verið mjög aðgangshörð gegn stjórn Somoza í Nicaragua að undanförnu. Þeir stóðu fyrir al- mennri uppreisn gegn einræðisherr- anum i september síðastliðnum en þjóðvarðliðum tókst að lokum að bæla hana niður. Laser Kynnizt Laser Eignizt Laser Einn vinsælasti seglbátur sinnar tegundar í heiminum I dag. Um 70.000 bátar hafa þegar veriö framleiddir. Helztu kostir LASER: Mjög léttur — aðeins 59 kg. Gerður úr trefjaplasti — lítið viðhald. Auðveldur i flutningi — t.d. á toppgrind. Fljótlegt að sjósetja hann — ca. 5 mín. Leitið upplýsinga — einkaumboð á lslandi. ISTÆKNI HF. UMBOÐS- & HEILDVERZLUN GRENSÁSVEGI22 - SÍMI34060. Bandaríkin: Grípið til frekarí olíuskömmtun- araðgerða —sértakt af greiðslugjald til að koma í veg fyrir ótímabæra áfyllingu bensíngeymanna Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að stjórn hans mundi grípa til frekari aðgerða til að létta á almenningi byrði olíuskortsins en jafnframt auka opinberar aðgerðir til að draga úr óþarfri olíueyðslu. Forsetinn ætlar að sjá til þess að bensínstöðvar verði opnar um helgar, í það minnsta nokkrar. Einnig er ætlunin, að setja á sérstakt afgreiðslugjald til að menn grípi ekki til ótímabærra áfyllinga á bensíntank bifreiða sinna fyrr en hann kominn að því að tæmast. í hugmyndum Carters forseta er einnig gert ráð fyrir því að önnur ríki Bandaríkjanna fari að fordæmi Kali- forníu og bensín verði selt á bifreiðar eftir því hvert skráningarnúmer þeirra er. Er þá til dæmis annan daginn aðeins selt bensin á bifreiðar, sem hafa númer, sem endar á jafnri tölu en hinn daginn á bifreiðar með stakri tölu í enda skráningarnúmers. Carter sagði að þessar fyrirhuguðu aðgerðir mundu einkum verða bifreiðaeigendum til þæginda en í minna mæli draga úr orkunotkun. — Við verðum að fara varlega og að reglum ef okkur á að takast að komast hjá biðröðum við bensíndæl- ur í sumar og bensínskort. Banda- ríkin verða að horfast í augu við langt tímabil þar sem skortur verður á bensíni og annarri orku miðað við þarfir þegnanna. Hermenn Bokassa keisara I Mið-Afrfkukeisaradæminu komust á forsiður heimsblaðanna fyrir nokkru, þegar samtökin Amnesty International sökuðu þá um að hafa drepið nærri hundrað skólabörn og unglinga fyrír að þrjóskast við að ganga í skólabúningum. Á myndinni sjást hermenn keisarans vera að lemja á fullorðnum mönnum, sem fundnir voru sekir um þjófn- að. KÍNA VILL SNÚA SÉR AÐ VEFJAR- IÐNAÐINUM —telja hagnaðinn koma skjótast þannig og síðan megi byggja upp nútíma iðnað flytja frá Kína til Bandaríkjanna af vefjarefnum ýmiss konar. Í blaðagreininni er kínverska komm- únistaflokknum hrósað mjög fyrir þá ákvörðun, að draga nokkuð úr vexti- þungaiðnaðarins um skeið en auka létt- an iðnað. Segir að hlutfallið þar á milli hafi um langt árabil verið mjög óhag- stætt. Samkvæmt opinberum tölum árið 1977 hafi fengizt 52°/o arður af því fjármagni sem lagt hafi verið í léttan iðnað til ríkisins. Er þá átt við skatta og Kinverjar ætla að snúa sér fyrst að uppbyggingu í ýmiss konar léttiðnaði eins og vefjariðnaði til að byrja með. Á þann hátt telja þeir sig geta aukið tekj-, ur sinar af útflutningi á sem skjótastan hátt og síðan byggt upp nútíma stóriðn- að. Kemur þetta fram í forsíðugrein kín- verska blaðsins Dagblað fólksins í Pek- ing. Er þar rætt um þessi mál í tilefni af viðræðum kínverskra og bandarískra samninganefnda um hve mikið megi hagnað. Af þungaiðnaðirium hafi aftur á móti aðeins fengizt sex af hundraði. Blaðið segir að því hafi það verið rétt spor að draga um skeið úr þungaiðn- aði. Það muni þó ekki koma að sök því eftir átta til tíu ár muni það fjármagn, sem til umráða verði hafa vaxið mjög og þá allt auðveldara með' uppbygg- ingu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.