Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 28
Kastljósþátturinn um Jósafat þar sem Jósafat var ekki nef ndur: VILMUNDUR OG RÍKH) SÝKNUU -Db-mynd: Ragnar Th.i „Alltíbak- lásífar- manna deilunni" Allt situr við hið sama í farmanna- deilunni, samkvæmt heimildum sem DB aflaði sér í morgun. „Það er ekki ástæða til neinnar bjartsýni, málið er í baklás,” sagði einn heimildurmanna blaðsins. Ekki virðist útlit fyrir að vænta megi tilboðs frá sáttanefnd í bráð. í dag kl. 16 verður almennur félags- fundur í Vinnuveitendasambandi íslands. Til umræðu er staðan í kjara- málum og hugsanlegar aðgerðir af hálfu VSÍ. -GM Hnífstungumálið: Konan úr lífshættu — maðurínn fhálfs mán- aðar gæzluvarðhald Maður sá sem handtekinn var fyrir að veita konu sinni áverka með hnífi í fyrrinótt situr enn inni og hefur verið úrskurðaður i gæzluvarðhald til 13. júní. Við yfirheyrslur hefur maðurinn sagzt hafa gert sér litla grein fyrir hvað gerzt hafi. Hafi hann verið undir áhrif- um áfengis og frávita af bræði. Líðan konunnar er eftir atvikum og er hún nú úr lífshættu, en hún liggur á. Igjörgæzludeild Borgarspitalans. -BH.1 Lausráðnir stof na félag í gærkvöldi var stofnað Félag laus- ráðins dagskrárgerðarfólks hjá útvarpi og sjónvarpi. Tilgangur þess er að vera samningsaðili um launagreiðslur og kjör félagsmanna, bæta menntun þeirra og aðbúnað og efla og bæta dag- skrá Ríkisútvarpsins. Stofnendur félagsins eru rúmlega sjötíu manns., Formaður var kjörinn Óli H. Þórðar- son framkvæmdastjóri. • Vilmundur Gylfason og Ríkisút- varpið, sjónvarp, voru í gær sýknuð í skaðabótamáli végna meintra æru- meiðinga i sjónvarpsþætti, sem flutt- ur var hinn 20. desember 1974. Vegna lagaákvæða um fébótaskyldu vegna ríkisútvarpsins var menntamálaráð- herra og fjármálaráðherra stefnt í málinu vegna þáttarins Kastljóss og krafa gerð um einnar milljónar króna bóta vegna meintrar ærumeiðingar. Stefnandinn í málinu var Jósafat Arngrímsson, kaupmaðurí Keflavík. Hann hafði árið 1967 verið dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur fyrir tékka- misferli upp á 21 mjlljón króna. í Kastljósþættinum, sem áður 'greinir, var Vilmundur Gylfason að gagnrýna framkvæmd réttarvörzl- unnar í sakadómsmálinu. Hinn dæmdi, Jósafat Arngrímsson, hlaut tveggja ára fangelsisdóm, sem hann var byrjaður að afplána á Kvía- bryggju, þegar hann var látinn laus vegna skriflegs álits geðlæknis. Sem fyrr segir gagnrýndi Vilmund- ur Gylfason, réttarvörzluna í þessu tiltekna máli en nefndi þó aldrei í þættinum nafn hins dæma manns. Viðmælendur hans í þættinum, Baldur Möller, ráðuneytisstjóri, og Jón Thors, deUdarstjóri í dómsmála- ráðuneytinu gerðu það heldur ekki. Vilmundur talaði í þættinum um verzlunarmann, sem hafði sætt opin- berri kæru og hlotið dóm fyrir mis- ferli. Dæmið tekur hann til þess að undirstrika gagnrýni sína. Sem fyrr segir nefndi hann ekki nafn mannsins. í stefnu var krafizt ómerkingar til- tekinna ummæla og einnar milljónar króna i miskabætur. Sem fyrr segir voru hinir stefndu sýknaðir en máls- kostnaður látinn niður falla. Emil Ágústsson, borgardómari kvað upp dóminn í gær. -GAJ- -BS. Risastór KRR-kaka DB-mynd Bjamleifur. Hún var stór og mikil tertan, sem borin var fram I afmœlishófi Knattspymuráðs Reykjavíkur í gœr í tilefni 60 ára afmœlis KRR. Fyrstu áratugina hafði KRR á hendi forustuhlutverk i knattspymumálum tslands eða þar til KSÍ var stofnað. Við tertuna standa þeir Hatldór Jakobsson, stjómarmaður KRR, og Ólafur Erlendsson, for- maður ráðsins mörg undanfarin ár. Mjólkurverkfallið: MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979. Hellisheiðarundrið: Sá guli heimil- isköttur í Skíða- skálanum „Mér þætti verra ef einhver færi að gera sér ferð upp á Hellisheiði til þess að skjóta köttinn minn,” sagði Stein- grímur veitingamaður í Skíðaskálanum í Hveradölum í samtali við fréttamann DB í gær. Það er sem sé komið upp úr kafinu, að guli kafloðni kötturinn, sem maður nokkur sá um miðja nótt á Hellisheið- inni, er heimilisköttur í Skíðaskálan- um. Dagblaðið skýrði frá ferðum kattarins þarna á heiðinni sl. laugardag og var engin tiltæk skýring á ferðum hefðardýrsins, sem sagt var grimmlynt og hvæsti á saklausan vegfarandann á heiðinni. „Kötturinn er sauðmeinlaus og blíð- lyndur,” sagði Steingrímur. „Hann gerir ekki flugu mein. Köttur þessi er af persneskum ættum, að sögn Guðrúnar Á. Símonar sem gerst þekkir til katta hérlendis.” Steingrímur hefur köttinrrgula sér til aðstoðar, því hagamýs gerast nokkuð nærgöngular er hausta tekur og vilja gistaSkíðaskálann. -JH. Guðmundur tapaði í 8. umferð svæðamótsins í Luzern i Sviss sem tefld var í gær tapaði Guðmundur Sigurjónsson fyrir Svíanum Wadberg, Helgi Ólafsson gerði jafntefli við stórmeistarann Liberzon og Margeir Pétursson gerði jafntefli við Finnann Hurme. Þrátt fyrir tapið heldur Guðmundur enn 2. sætinu i sínum riðli. Efstur er Húbner með 5,5 v. og biðskák. Guðmundur hefur 5 vinninga og Wadberg4,5 v. 1 B- riðUnum er Griinfeld efstur með 6 vinn- inga. Helgi og Hoi eru í 2.-3. sæti með 4,5 v. Fjórir efstu menn úr hvorum riðli komast áfram. -GÁJ- Tugmilljónatjón á Þórshöfn: Bflaverkstæði ogtrésmíða- verkstæði brunnu til grunna BÆNDUR TAPA 27 MILUÓNUM Á DAG — Reiknað hefur verið út hve miklu tap bænda vegna verkfalls mjólkurfræðinga næmi og telst' okkur til að það némi sautján til nítján milljónum á dag, sagði Agnar Guðnason blaðafuUtrúi bændasam- takanna i viðtali við DB. í þessum útreikningi er gert ráð fyrir að öll sú mjólk sem ekki fer til neyzlu sé unnin í smjör, osta eða undanrennuduft og síðan séu þessar afurðir seldar á erlendan markað á því verði, sem þar fæst. Gert er ráð fyrir að dreift sé 286 þúsund lítrum á Reykjavíkurmarkaði og nágrenni. Nú er það ekki gert og tapa bændur einum sjö milljónum til viðbótar á dag. Er það mismunurinn á 176 króna útborgunarverði fyrir hvern mjólkurlítra og þrjátíu krónum, sem fæst fyrir mjólkina til vinnslu. Engum mjólkurvörum er dreift til verzlana á Reykjavíkursvæði í dag þar sem ekki hefur náðst samstaða með Mjólkursamsölu og mjólkur- fræðingum um hverju og hve miklu skuli dreifa. -ÓG. GIFURLEG BUVORUHÆKKUN — niðurgreiðslur óbreyttar íkrónutölu Gífurleg búvöruhækkun verður um mánaðamótin. Steingrimur Hermannsson landbúnaðarráðherra taldi líklegt í morgun, að meðal- hækkunin út úr búð yrði yfir 20 prósent, en dæmið verður ekki full- reiknað fyrr en seinna í dag. Mest yrði hækkunin á smjöri, kannski allt að 30 prósent. Steingrímur sagði að niður- greiðslur yrðu óbreyttar í krónutölu að þessu sinni, sem þýðir, að þær lækka í hundraðshluta af verði, og veldur það talsverðu um hækkunina. Ráðherrann sagði að síðar á árinu ætti að draga úr niðurgreiðslum, nema nýrra tekna yrði aflað til að standa undir þeim. Verðhækkunin nú yrði miklu meiri en hækkun verðs til bænda. Guðmundur Sigþórsson, fulltrúi i landbúnaðarráðuneytinu, sagði i morgun, að verðhækkun búvara út úr búð yrði sennilega 20—30 prósent, en dæmið hefði ekki verið reiknað til fulls. -HH. Tugmilljóna króna tjón varð á Þórs- höfn í gær er eldur kom upp i bílaverk- stæði í eigu Hauks Kjartanssonar. Verkstæðið brann til kaldra kola, en eldurinn kom upp um kl. 14. Einnig brann trésmíðaverkstæði sem var næsta hús við hlið bílaverkstæðisins. Inni í bilaverkstæðinu var steypubíll og mikill lager margs konar varahluta og varð engu bjargað. Þá var mikið af trésmíðavélum og efni á trésmíðaverk- stæðinu og brann það einnig. -AA/JH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.