Dagblaðið - 30.05.1979, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979.
2,
Hvareru
einbýlfe•
húsin
—og flottu bílamir?
Guðný Þorleifsdóttir skrifar:
Sjómaður skrifar í Dagblaðið 28.
maí um að yflrmenn heimti rosalega
kauphaekkun. Veit þessi góði sjó-
maður hver'laun yfirmanna á frakt-
skipum eru? Eða hefur hann kynnt
sér það svo vel að hann hafi efni á að
láta svona skrif fara frá sér? Hvernig
eru þessir frídagar sem hann talar
um? Tiu frídagar í mánuði? Hvaðan
fær hann þessar upplýsingar? Ég held
að það sé aðeins betra fyrir svona
Flottir btlar inn á milli. Mynd Sv. Þorm.
menn að kynna sér kjör og kaup koll-
ega sinna á farskipum áður en þeir
fella einhverja sleggjudóma um þá.
Ég þykist þekkja til þessara mála
sjálf vegna þess að ég bý með einum
af þessum yfirmönnum. Ég hef ekki
orðið vör við þessa tíu frídaga, við
búum í tveggja herbergja íbúð í fjöl-
býlishúsi og eigum 8 ára gamlan bil.
Ég veit að meiri hluti þessara manna
býr þannig en á ekki einbýlishús og
flotta bíla. Að lokum vil ég vekja at-
hygli sjómannsins á því að þessi skip
heita flutningaskip eða fraktskip en
ekki flutningadallar.
Hvertáaðkæra
—opinbera starfsmenn?
Lesandi hringdi:
Mig langar til þess að bera fram þá
spurningu hvert almenningur eigi að
snúa sér ef hann lendir í þeim leiðind-
um að þurfa að kæra opinberan
starfsmann fyrir ölvun í starfi. Það
hlýtur að vera réttur almennings að
fá svar við þessu sem öðru er varðar
réttindi hans.
DB hafði samband við Braga
Steinarsson saksóknara og sagði
hann okkur að þannig mál ætti að
kæra til sakadómara, sýslumanns eða
bæjarfógeta eftir því hvar atburðirnir
hefðu gerzt. Hér á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu ber að kæra slík mál til
Rannsóknarlögreglunnar.
Mótmælir skrifum sjómanns
—um að yf irmenn heimti rosalegt kaup
Yfirmaður skrifar:
Mánudaginn 28. maí las ég í les-
endadálknum bréf frá sjómanni þar
sem hann segir yfirmenn á frökturun-
um heimta rosalegt kaup og þegar allt
komi til alls eigi þeir flotta bíla og
einbýlishús.
Þessum skrifum vil ég mótmæla.
Okkur þykir nóg um fullyrðingar
vinnuveitenda í launamálum okkar
og það er hættulegt þegar launþegar
sem kallast sjómenn trúa þessu og
bera það út líka. Sumir okkar skila
löngum vinnudegi og fá greitt tíma-
kaup fyrir það.
Enn er að bætast við úrvalið af sumarjökkum fyrir
börn og unglinga. Verð frá kr. 9.900.
Einnig útipeysur með vösum. Verð kr. 6.900 til
8.700.
Mikið úrvalaf flauelsbuxum, nýir sumarlitir.
Smekkbuxurfyrir börn, stærðir 1-5. Verð kr. 5.900.
Þunnar sumarúlpur, stærðir 1-5. Verðkr. 7.900.
Nýjar sendingar í hverri viku af dömufatnaði, svo
sem: Kjólar, mussur, blússur, bolir ogmargtfleira.
Póst-
sendum
Laugavegi 66
Sími 12815
Það er víða sem slikur sóðaskapur sem þessi sést, því miður. Og stundum mó
sjó drasl ó flugi i nómunda við ruslafötu.
MyndH.V.
Tómir pakkar
og dósir
—fjúkainnálóðina
8170-1741 hringdi:
Þannig er að ég bý i næsta húsi við
matvöruverzlun hér í borginni. Á
kvöldin er opin sjoppa þar og yfirleitt
mikið að gera. En sá er gallinn á
þessu öllu saman að engin ruslafata
er fyrir viðskiptavini þannig að þeir
henda t.d. tómum dósum utan af
frönskum kartöflum og bréfum utan
af súkkulaði og fleiru beint á götuna
þegar þeir koma út úr sjoppunni.
Þetta drasl fýkur svo allt yfir á lóðina
mína og veldur bæði óþrifnaði og
leiðindum. Get ég nefnt sem dæmi að
ég vaknaði eina nóttina við það að
bréfadrasl og annar óþverri skall á
glugganum hjá mér með miklum lát-
um því rok var. Þetta ástand er mjög
afleitt og ættu þeir sem reka verzlanir
og sjoppur að vera skyldaðir til þess
að hafa ruslatunnur fyrir viðskipta-
vini sína utan við verzlanirnar þvi
það virðist ekki vera hægt að kenna
fólki aðganga vel um borgina sína.
Raddir
lesenda