Dagblaðið - 30.05.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979.
7
r r ÓLAFUR GEIRSSON — Æ
Japan:
Hnuplaði fyrir
150 milljónir
úr verzlunum
Fjörutíu og sex ára gömul kona í
Tokíó í Japan hefur verið fangelsuð og
ákærð fyrir að hafa stolið vörum úr
verzlunum fyrir jafnvirði hundrað og
fimmtíu milljón króna undanfarin tíu
ár. Er hún sögð hafa stolið úr ýmsum
dýrseldum sérvöruverzlunum og síðan
selt þýfið til ættingja og vina fyrir sex
tíundu hluta af upphaflegu söluverði.
Marie Osmond
Noregur:
Náðu 20 milljónum
i bankaráni’ gripnir
i Kaupmannahöfn
—fjórir Svíar á ferð í Noregi sprengdu upp peningageymslu banka í Österaas
trúlofuð
Marie Osmond af hinni frægu söngv-
araætt Osmondanna hefur opin-
berað trúlofun sína. Hinn hamingju-
sami er mormóni eins og Marie og
heitir Jeff Crayton tuttugu og þriggja
ára að aldri. Sjálf er Marie nítján ára
og var mjög vinsæl fyrir nokkru en lítið
hefur heyrzt til hennar á alþjóða-
markaði að undanförnu.
Kaupmannahafnarlögreglan hand-
tók um helgina fjóra Svía, sem þar
voru á ferð. Eru þeir taldir eiga sök á
bankaráni, sem framið var í bænum
österaas í Noregi fyrir nokkru. Þar
komust innbrotsmennirnir á brott
með þrjú hundruð þúsund krónur
REUTER
ALVARLEGIR 0G
KANNSKIHÆTTU-
LEGIR GALLAR í
VÉLARFESTINGUM
Unnið er að því hjá öllum flug-
félögum, sem eiga DC-10 þotur, að
kanna hugsanlega galla eða málm-
þreytu i hreyfilfestingum á vængjum
vélanna. Kemur þetta í kjölfar til-
kynningar bandariska loftferðaeftir-
litsins um að þar gætu leynzt gallar,
sem væru hugsanlega hættulegir.
DC-10 þotur hafa verið í rekstri
undanfarin átta ár og hafa þótt
reynast vel. Bandaríska loftferða-
eftirlitið fyrirskipaði að allar vélar af
þessari tegund skyldu hætta flugi þar
til gengið hefði verið úr skugga um að
slikt væri hættulaust. Einnig var í
fyrstu tilkynnt að bannið næði einnig
til risaþota af gerðinni A-300, sem
smíðaðar eru í Evrópu. Væru hreyfil-
festingar þeirra svipaðar og á DC-10
þotunum. Siðar var því banni þó af-
létt.
Tilkynnt hefur verið að engri þotu
af gerðinni DC-10 verði leyft að taka
sig á loft fyrr en fullljóst sé að
hreyfilfestingar hennar séu í full-
komnu lagi. Þoturnar eru smíðaðar i
Mcdonnell Douglas flugvélaverk-
smiðjunum bandarísku.
Vitað er að fyrirskipunin um að
DC-10 þotur skyldu hætta flugi sam-
stundis truflaði ferðir hundruða þús-
unda fólks, sem var á ferð með þeim
eða hugðist taka sér far. Gilti þetta
bæði í Bandarikjunum og utan þeirra
og þá hvort tveggja með bandarísk-
um og flugvélum annarra þjóða flug-
félaga. Allar þjóðir munu hafa farið
að fordæmi bandariska loftferða-
eftirlitsins og fyrirskipað rannsókn á
DC-lOþotum í eigu flugfélaga sinna.
Talsmaður Kennedyflugvallar við
New York sagði að um það bil
fjórtán þúsund farþegar færu um
völlinn um borð í DC-10 þotum á
hverjum degi. Væri þetta nálægt
því að vera 12% af allri farþega-
umferð um völlinn. Mun þetta hlut-
fall vera svipað á öðrum stórflugvöll-
um heimsins.
Talsmaður bandaríska loftferða-
eftirlitsins sagðist ekki vita hvaða af-
leiðingar það mundi hafa þegar allar
DC-10 þotur stöðvuðust en ekki
hefði verið annars úrkosti.
norskar.
Ekki munu Svíarnir hafa viður-
kennt glæp sinn við yfirheyrslur hjá
dönsku lögreglunni en hún telur að í
það minnsta tveir hinna sænsku
manna, sem hún hefur í haldi hafi
tekið þátt í bankaráninu. ‘Ránið fór
Österaas'var sprengt upp og síðan
lélu ræningjarnir greipar sópa uin
innihald þess.
Ekki er vitað hvernig Svíarnir
komust af landi brott i Noregi eftir
ránið en það mun hafa verið danskur
lögreglumaður, sem bar kennsl á þá
eftir lýsingu, sem gefin hafði verið út
á þeim.
Fjórmenningarnir voru gripnir á
hótelherbergi og voru þeir þá með um
það bil fimmtiu þúsund krónur
norskar meðferðis.
FRÁ BORGARBÓKASAFNI
Hljóðbókasafnið verður lokað til 11. júní nk. Verður þá opnað í Hólm-
garði 34.
Opið mánudaga —föstudags kl. 10—4.
BÓKIN HEIM
Heimsendingaþjónusta á prentuðum bókum við fatlaða og aldraða
verðuráfram í Sólheimasafni, sími 83780.
Símatími mánudaga ogfimmtudaga kl. 10—12.
BORGARBOKAVÖRÐUR
HVÍTASUNNUHÁTÍÐ
,,, KOLVIÐARHÓU vf®
1.-3. júnl'1979 ".í'1
DAG-
SKRÁ:
Föstudag 1. júní
Dansleikur frá kl. 9—2
Laugardagur 2. júní
Hljómleikar kl. 2
Meðal dagskrár:
Ólafur Þórarinsson flytur frumsamin lög ásamt 10 manna
hljómsveit. Tekið skal fram að flest þessara laga eru frum-
flutt.
Baldur Brjánsson
Grétar Hjaltason
Fallhlífarstökk
Hljómsveitin KAKTUS leikur frá kl. 9-2
Sunnudagur 3. júní
Árdegismessa
Baldur Brjánsson
Grétar Hjaltason
Lifandi skák
Sýndur verður DISKÓDANS
ÞRlFÓTAHLAUP!! (MEN ONLY?)
Diskótek Ara Péls
og Meatloaf Islands
skemmta alla dagana
Rumpufjör alla dagana
Mætum öll I þrumustuði!!
Knattspymudeild U.F.H.Ö.