Dagblaðið - 30.05.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979.
9
BIAÐIÐ
SNARFAR!
„Við erum ákveðnir í að fara og ef
til vill aftur á Hafrótinu,” sagði Haf-
steinn Sveinsson, siglingakappi og ann-
ar sigurvegari í Sjóralli ’78, er DB innti
hann eftir keppnisáformum.
Runólfur Guðjónsson ætlar aftur að
taka sér frí frá bátasmíðinni til að taka
þátt í keppninni. Um tima var óljóst
hvort þeir hefðu tækifæri til að taka
þátt í keppninni en nú er það ljóst.
Hafsteinn og Runólfur voru að íhuga
að keppa á nýjum bát en hallast nú
helzt að því að sigla aftur á Hafrótinu.
Það er 22 feta bátur frá Flugfiski, knú-
inn 200 hestafla Volvo Penta bensínvél.
»
Hafsteinn og Runólfur í höfn í Eyjum
eftir erfiðan áfanga í fyrrasumar.
DB-mynd Ragnar Sigurjóns.
Hafsteinn og Runólfur
aftur á „Hafrótinu”
Báturinn er á margan hátt sérbúinn til
mikilla átaka á sjó umfram venjulega
skemmtibáta. Nú er ekki nema liðlega
mánuður til keppninnar, sem hefst 1.
júlí frá Reykjavík, og vinna margir
hörðum höndum að undirbúningi þessa
dagana.
-GS.
2,0-2,5 prósent hækkun samanlagðra vaxta:
„Fyrstu afborganir léttari
—síðustu þyngri á lengri lánum”
—segir Svavar Gestsson viðskiptaráðherra
„Niðurstaðan hefur orðið, að segja
má, að vextir hækki um 2—2,5 pró-
sent,” sagði Svavar Gestsson viðskipta-
ráðherra í viðtali við DB í gær.
„Grunnvextir verða hafðir lágir en
verðbótaþátturinn hækkar. Á lengri
lánum verður verðbótaþátturinn
færður á höfuðstól lánsins þannig að
fyrstu afborganir verða léttari en áður,
svo sem á vaxtaaukalánum, en síðustu
afborganir verða þyngri en áður,”
sagði viðskiptaráðherra.
Hækkunin varð nokkru meiri en
tálið hafði verið fyrir skömmu þar sem
verðbólga reyndist hafa geystst áfram
öllu hraðar en talið var. Seðlabankinn
sendi hinar nýju reglur frá sér í gær og
er þar reiknað með verðbólgustiginu
41,8%.
Verðbótaþáttur
lagður við
höfuðstól
Um er að ræða það nýmæli að verð-
bótaþátt vaxta megi leggja við höfuð-
stól láns. Það er mikilvægur hluti hins
nýja kerfis að grunnvextir séu lágir en
verðbótahluti vaxtanna greiðist eftir á
með þeim hætti að hann leggist við
höfuðstól og endurgreiðslan dreifist á
það sem eftir er af lánstímanum.”
Þennan hátt er auðvelt að hafa um öll
ný lán, nema stutt víxillán, af þeim
yrðu áfram að vera venjulegir forvext-
ir, eða stutt hlaupareikningslán,” segir
Seðlabankinn. Starfshópur á vegum
viðskiptabanka og sparisjóða vinnur
nú að gerð tillagna um nánari útfærslu
þessarar meginreglu. í eftirfarandi
tölum er sérstaklega tilgreindur sá verð-
bótaþáttur sem til er ætlazt að leggist
við höfuðstól til greiðslu með siðari af-
borgunum. — Verðbótaþátturinn mun
hækka um nálægt 2,5% ársfjórðungs-
lega unz fullri verðtryggingu yrði náð í
desember 1980, miðað við verðbólgu
eins og nú er.
Vextir af eldri lánum með ákvæðum
um breytilega vexti munu fylgja hreyf-
ingu á almennum vöxtum án þess þó að
samið hafi verið um meðferð verðbóta-
þáttar með framangreindum hætti.
Þykir því nauðsynlegt að innlánsstofn-
anir gefi viðskiptaaðilum sínum kost á
að semja um ný kjör á eldri lánum í
samræmi við hin nýju lánskjör.
Víxilvextir 25,5%
Vextir á almennu sparifé eru nú 19%
en eftir 1. júní verða grunnvextir 5% og
verðbótaþáttur 17% eða samtals 22%.
Vextir alls á 6 mánaða reikningum
hækka úr 20,5% í 23%, á 12 mánaða
og 10 ára reikningum úr 22% í 24%, á
3ja mánaða vaxtaaukareikningum úr
25% í 27,5% og á 12 mánaða vaxta-
aukareikningum úr 32% í 34,5%.
Vextir á velt i innlánum hækka úr 3%
i 5,5 %. .
Þá hækka vextir á skammtíma víxl-
um úr 23,5% í 25,5%. Á samningsvíxl-
um eru vextir nú 23,5% en þar verða
grunnvextir 5,5% og verðbótaþáttur
20,0%. Á almennum skuldabréfum eru
vextir 26%, en þar verða grunnvextir
6,5% og verðbótaþátturinn 22%. Á
vaxtaaukalánum eru vextir 33% en þar
verða grunnvextir 8,5% og verðbóta-
þátturinn 27%.
Vanskilavextir hækka úr 3% í 4% á
mánuði.
-HH.
Greenpeace-menn koma aftur á Rainbow Warrior:
Sjávarútvegsráðherra
gæti bannað hvalveiðar
„Þetta væri það mikilsverð ákvörð-
un fyrir þjóðarbúið að ég teldi eðlilegt
að Alþingi fjallaði um málið,” sagði
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra er hann var inntur eftir því hvort
það væri ekki í hans höndum alfarið
hvort hvalveiðar við ísland væru bann-
aðar eða takmarkaðar að einhverju
leyti. Að vísu væri það stjórnskipúnar-
lega á valdi sjávarútvegsráðherra,
hvernig reglugerðinni um hvalveiðarn-
ar væri háttað, en ákvörðun um hann
eða frekari takmarkanir á hvalveiðum
myndi sjávarútvegsráðherra ekki taka
uppá sitteindæmi.
Greenpeace-menn eru enn á ný
mættir til leiks og hyggjast nú freista
þess að minnka hvalveiðar Hvals hf.
um a.m.k. 20%. Á fundi alþjóða hval-
veiðiráðsins, sem haldinn verður í
Lundúnaborg í júlímánuði nk., verður
borin upp tillaga um tiu ára veiðibann á
hvölum. Slik tillaga var síðast borin
upp fyrir sex árum en hlaut þá ekki
nægan stuðning til þess að verða bind-
andi fyrir aðildarþjóðir alþjóðahval-
veiðiráðsins.
-BH.
ENDURBÆTURA ARG. 1979: Stærrimótor, hærraundir
mótor, steyptarfelgur(engirteinar) o.fl. o.fl.
KARL H. C00PER, VERSLUN
Höfðatúni 2 —105 Reykjavík—Sími 10-2-20
Fyrsta 50cc hjólið á Islandi ]/er$
með steyptum . 34S SQQ
magnesíumfelgum Kr‘
Erum fluttir til Reykjavíkur
Vorum að fá sendmgu afþessum vinsælu MALA GUTI-léttum bifhjólum
Hjólin eru sjálfskipt og mjög einfóld í akstri
Bensmeyðsla aðeins
1.9lítrarál00km