Dagblaðið - 30.05.1979, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979.
15
Enn jafntef li
Argentínumanna
Heimsmeistarar Argentínu gerðu jafntefli við
íra í vináttuleik i Dublin í gær. Ekkert mark var
skorað. Það var þriðja jafntefli Argentínu-
manna í Evrópuferö þeirra — en í gær léku
aðeins fjórir heimsmeistaranna. Fyrri hálfieikur-
inn var jafn en í þeim siðari sóttu Argentínu-
menn mun meira eða eftir að Diego Maradona,
hinn 18 ára snillingur, kom inn á. Hann átti
fjórar góðar skottilraunir en án árangurs.
í irska liðinu bar mest á Liam Brady, Arsenal
en hins vegar náðu miðherjarnir Frank Stapleton
og Ian Walsh sér aldrei á strik. Johnny Giles, sá
kunni kappi og landsliðseinvaldur írlands og
þjálfari, lék sinn síðasta leik í gær. Stóð vel
fyrir sínu að venju. Hann er 38 ára og hefur
verið i landsliðinu í 21 ár — leikið 59 lands-
leiki, sem er met hjá írum. Gerry Peyton átti
snjallan leik í marki Ira — varði þrisvar mjög vel
frá Maradona. Kempes, Ardiles, Luque og
Passarella, fyrirliði, léku ekki i argentínska
liðinu.
gullskalla Hinriks Þórhallssonar — en knötturinn
DB-mynd Bjarnleifur.
fíkings-
níhöfn
Þrótt2—líl.deild
kom fyrsta markið. Óskar skallaði yfir varnar-
menn Þróttar til Sigurlásar, sem var frír í vita-
teignum. Markið opið en á siðustu stundu braut
Sverrir Einarsson, miðvörður, á Sigurlási. Víti,
sem Gunnar Örn skoraði örugglega úr. Skömmu
siðar léku Óskar og Sigurlás sama leik — Sigur-
lás lék upp að endamörkum og gaf fyrir. Vörn
Þróttar hikaði og það nægði Gunnari Erni.
Hann skoraði með föstu skoti af stuttu færi.
Eftir þessi mörk drógu Víkingar sig aftur —
gáfu Þrótti eftir frumkvæðið og hugsuðu mest
um að halda fengnum hlut. Halldór Árnason
kom í stað Heimis hjá Víking — Baldur Hannes-
son í stað Þorvaldar Þorvaldssonar hjá Þrótti og
niu mín. fyrir leikslok tókst Páli Ólafssyni að
minnka muninn. Komst frir í gegn og skoraði
með lausu skoti frá markteig. Þróttur reyndi að
jafna og litlu munaði, þegar Sigurjón missti
knöttinn en Róbert bjargaði í horn — en á loka-
sekúndum stóð hins vegar Lárus fyrir opnu
marki Þróttar. Spyrnti framhjá frá markteigs-
horninu.
- hsím.
3S
KA náði tvisvar forystu
— en Akurnesingar stóðu uppi ílokin sem sigurvegarar
KA frá Akureyri kom á óvart í 1.
deildar-leiknum við ÍA á malarvellin-
um á Akranesi í gærkvöld. Náði tví-
vegis forustu í leiknum en Skagamenn
létu það ekki á sig fá — jöfnuðu í
báðum tilfellum og tiu mín fyrir leiks-
lok skoraði Sveinbjörn Hákonarson,
bezti maður ÍA í leiknum, sigurmark
heimamanna. Prýðilegt veður var,
þegar leikurinn fór fram en greinilegt
að mölin háði liðunum, einkum Skaga-
mönnum.
Akureyringar voru fyrri til að skora í
leiknum. Það var á 29. rhín. og kom
eftir mikil vamarmistök Jóns
Gunnlaugssonar, miðvarðar ÍA. Hann
var að dúlla með knöttinn en lét Óskar
Ingimundarson taka hann að sér — og
Óskar skoraði. Sex mín. síðar var
dæmd vítaspyrna á KA fyrir brot á
Matthías Hallgrímsson innan vítateigs.
Sigþór Ómarsson tók spyrnuna —
spyrnti knettinum í stöng — en dómar-
inn, Kjartan Ólafsson, lét endurtaka
spyrnuna, þar sem markvörður KA
hafði hreyft sig áður en Sigþór spyrnti.
Þá fékk Árni Sveinsson það hlutverk
og skoraði af öryggi. 1—1. Lítið var
um tækifæri í fyrri hálfleiknum — þó
átti Árni Sveinsson skalla rétt framhjá
marki KA.
Skagamenn byrjuðu vel í s.h. en
stangirnar björguðu KA. Á 50. mín.
átti Sveinbjörn skot ofarlega í stöng og
þremur mín síðar lék Kristján Olgeirs-
son sama leik — og svo voru það KA-
menn, sem náðu forustu. Þeir fengu
aukaspyrnu á 59 mín. — gefið var inn í
vítateig og þar skallaði Einar Þórhalls-
son knöttinn i mark ÍA. Hann lék
áður með Breiðabliki en er nú starfandi
læknir á Akureyri. Tíu min. síðar
jafnaði Sveinbjörn fyrir í A — skoraði
fallegasta mark leiksins. Hörkunegling
af 25 m færi neðst í markhornið — og
á 80. min. skoraði Sveinbjörn sigur-
mark ÍA. Það kom eftir hornspyrnu
þar sem skallað var út til Sveinbjarnar,
sem var utarlega í vítateignum, og hann
sendi knöttinn í markið. Rétt fyrir
leikslok björguðu KA-menn á marklínu
skalla frá Jóni Gunnlaugssyni, sem átti
annars slæman leik.
Sveinbjörn var beztur ÍA-manna en
Sigurður Lárusson, sem kom til ÍA frá
Akureyri í vetur, var sterkur miðvörður
með Jóni. Jóhannes Guðjónsson lék
sem bakvörður og Arni Sveinsson var
miðherji.
Leikmenn KA eru jafnir að styrk-
leika en í þessum leik bar meira á fram-
línumönnunum. Elmar Geirsson, tann-
læknir á Akureyri, landsliðsmaðurinn
kunni hér áður fyrr, átti góða spretti og
Gunnar Blöndal er allgóður miðherji. í
heild var framlínan betri hluti liðsins.
Dómgæzlan hjá Kjartani Ólafssyni
er einhver sú svakalegasta, sem lengi
hefur sézt hér á Akranesi — ekki þó að
um hlutdrægni væri að ræða, heldur
sleppti dómarinn augljósum brotum og
var ekkert að hafa fyrir því að áminna
leikmenn þó hvað eftir annað sæust
ljót brot. Einkum fengu þeir Svein-
björn og Árni Sveinsson að kenna á
hörkunni. Kristinn Pétursson.
Olivia
ilm
sem hæfir
þér bezt
HEILDVERZLUN: JÚLÍUS SVEINBJÖRNSSON
LAUGAVEGI 26 - SÍMI 20480. EINKAUMBOÐ: PUSSYCAT VÖRURNAR