Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979.
silora
Urvals litsjónvarpstœki.
Á verði sem á sér ekki hlMSstœóu.
22" 497.000.- Staðgreiðslu-
26" 549.500.- afsláttur.
Sjónvarpsvirkinn
Arnarbakka 2.
Sími 71640.
IGRAFÍSKA SVEINAFÉLAGIÐ
Félagsmenn athugið
Leynileg allsherjaratkvæðagreiðsla um heimild til vinnu-
stöðvunar handa stjórn félagsins fer fram að Bjargi, Óðins-'
götu 7, þann 27. og 28. ágúst frá kl. 9—19.
Stjóm GSF.
Kl. 21.30 í kvöld sýnum við nýja videóspólu
með Jimi Hendrix
Munið Sjóræningjadansleikinn í
Akraborginni nk. laugardagskvöld
kl. 23.00 - 03.00
Vöru-og brauðpeningar- Vömávísanir
Peningaseðlar og mynt
Gömul umslög og póstkort
FRÍMERKI
AHtfyrírsafnarann
Hjá Magna
Laugavegi 15
Sími 23011
SKUBBIA VON
A TVIBURUM
Ekki er ýkja langt síðan sagt var frá
þvi að Skuggi vinur okkar væri kvænt-
ur. Díana, eiginkona teiknimynda-j
fígúrunnar, hefur nú viðurkennt að
vera orðinófrisk.
Frá ólygnu fyrirtæki (forlaginú)
bárust þær fregnir að læknar hafí
reiknað út að fæðingin verði mánudag-
inn 12. nóvember og eru læknarnir
alveg vissir um að hún eignist tvíbura.
Tvíburarnir verða ein Skuggatelpa
og einn Skuggadrengur. Ekki hefur
ennþá verið rætt um hvaða hlutverki
tvíburarnir eiga að gegna í myndaserí-
unni. Eitt er þó alveg víst, að með fæð-
ingu tvíburanna er verið að bjarga
myndaseríunni.
Ennfremur hefur sú hugmynd komið
fram að síðar geti orðið til tvær teikni-
myndaseríur um Skugga, önnur um
telpuna og hin um drenginn.
Þann 12. nóvember á kona Skugga von
á tvíburum og er teiknimyndaseríunni
þar með bjargað.
Fleira kemur inn i málið, peninga-
lega séð. Nú verður sem sagt hægt að
búa til Skugga-fjölskyldubrúður og
margt fleira, sem búast má við að selj-
ist.
Sonur Skugga kemur til með að
verða alveg eins og faðirinn og mun
hann í baráttu sinni hafa tvíburasystur
sína sér til hjálpar. Tvíburasystkinin
koma við sögu strax og þau eru komin í
vögguna.
- þýtt ELA
Alí og flugfreyjan
Þjóðloikhúsifl:
FLUGLEIKUR
Höfundar: Brynja Bonediktsdóttir, Erlingur
Gislason, Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson
Tónlist: Karl J. Sighvatsson
Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir.
Það er skemmtileg nýbreytni sem
tekin er upp á „hinni miklu” vöru-
sýningu sem yfir stendur í Laugar-
dalshöll þessa daga og vikurnar, að
leika á sýningunni nýtt hópverk
Þjóðleikhússins, Flugleik. Leikið er í
umtöluðu nýju sýningar- og sam-
komutjaldi sem sjálft er einn af sýn-
ingargripum. Og í tjaldinu gefst
kostur á að kynnast í verki nýjustu
leiktísku rétt eins og nýja tískan í
klæðnaði, húsgögnum og annarri
vöru er höfð í frammi í Höllinni.
Að vísu held ég að aðgangur að
tjaldinu og leiksýningunni ætti að
vera ókeypis. Úr því aðgangur er
seldur dýrum dómum að þeirri stóru
miklu auglýsingu sem fram fer í
Laugardalnum má ekki minna vera
en þær skemmtanir sem til falla á
staðnum séu gestum að kostnaðar-
lausu að öðru leyti. Það kostar á
fimmta þúsund krónur að fara í
Laugardalshöll og sjá þar Flugleik.
Er það ekki nokkuð mikið? Minnsta
kosti var fáskipað í tjaldinu þegar ég
sá leikinn á laugardagskvöld. Og
raunar virtist mér vörusýningin sjálf
næsta fásótt þetta kvöld. Skyldi þetta
stafa af því að sýningin var rétt að
byrja eða eru þessar samkomur að
falla i gildi? En hingað til skilst mér
að vörusýningar af slíku tagi hafi
verið einhver hin best látna skemmt-
un á landinu. Einhver sagði mér í
Laugardalshöll á laugardaginn að allt
að því helftin af verkfærum lands-
mönnum hefði séð þá síðustu.
Aldrei skyldi maður hlakka til
neins! Einhvern veginn hafði ég fyrir-
fram þá hugmynd að í Flugleik væri
haldið áfram vinnubrögðum sem
fitjað var upp á með Inúk um árið,
loflegrar minningar: hópvinnu sem i
nýstárlegu leikformi tilreiddi einhvers
konar vitneskju, fróðleik í umræðu-
skyni og upplýsingar, jafnvel ádeilu.
En um hvað er fjallað i Flugleik? Æ,
það veit ég svei mér ekki, veittist
Atriði úr Flugleik, sem sýndur 'tr nú 1 tengslum við Alþjóðavörusýninguna:
„næsta litilþæg skemmtun,” eru niðurlagsorð Olafs Jónssonar hér um leikinn.
undiroka kvenfólkið og vilja þó hafa
gagn þeirra og gæði ef svo ber undir,
kaupæði mikið sem ásæki fólk í
flugi. Og fleira í þessum dúr. Það er
nú samt flugfreyja sem afvopnar Alí
karlinn flugvélaræningja sem alls
óvænt dúkkar upp i leikslokin og
setur alla aðra út af laginu.
Þetta efni, það sem það er, er svo
sem látið uppi með heilmiklum fyrir-
gangi, hávaða og ærustu, en býsna
mark- og agalaust að mér virtist.
Töluvert er lagt upp úr því að skjóta
ýmsum efnum lfeiksins til áhorfenda
sem eiga lika að fyrirstilla farþega í
fluginu. Vel má það vera að fullt
tjald af góðglöðum vörusýningar-
gestum geti haft hitt og þetta gaman
af leiknum og sýningunni, en því var
sem sé ekki að heilsa á laugardags-
kvöld. En eftirtektarvert var hve leik-
endur voru óviðbúnir því að gestir
þeirra tækju þá á orðinu og vildu
leggja orð í belg í leikinn og jafnvel
leika svolítið með, og kom þá mesta
fum á mannskapinn. Eins og sýning-
in er lögð upp mega samt þátttak-
endur til með að „improvisera” ef til
þeirra kasta kemur og áhorfendur
fallast í alvöru með þeim á aðferðir
leiksins.
En þótt hafa megi meira gaman af
Flugleik en raunin varð á laugardag
hygg ég samt að það yrði eftir sem
áður næsta lítilþæg skemmtun.
og aðhlynning ferðafólks í háloftum
miklu hærra skrifuð en sambærileg
störf á jörðu niðri. Skyldi þetta virki-
lega vera óbreytt enn í dag? En efnið í
Flugleik virtist mér að einkum væri
ýmislegir erfiðismunir sem á kven-
fólk leggjast í þessu starfi, fullir far-
þegar sem heimta meira brennivín,
klípa freyjurnar i lærin og vilja bjóða
þeim út með sér, þarf svo að þurrka
eftir þá spýju, flugmenn sem kúga og
næsta örðugt að grynna i því á
laugardaginn. Það nýstárlega við
sýninguna fannst mér að væri um-
gerð leiksins, staðurinn sem leikið var
og tónlistin í og með leiknum. Það er
kannski ekki frásöguvert að tækni sé
i lagi. En „hönnun leikhljóða” og
tónlist í leiknum hygg ég að hafi verið
ágætlega af hendi leyst.
Aftur á móti gat ég ekki séð né
heyrt að frásagnar- eða umtalsefnin í
Flugleik skiptu neinu minnsta máli.
Veit ég vel að flugfreyjustéttin þótti á
sínum tíma merkur og eftirsóknar-
verður starfshópur, framreiðslustörf