Dagblaðið - 29.10.1979, Side 39
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 1979.
39
Sjónvarp
ð
Útvarp
VIЗútvarp kl. 20.00:
Spádómar, símatími
og vinsælustu lögin
—ásamt heilmörgu öðru í nýjum unglingaþætti
,,í fyrsta lagi verðum við með fasta
liði sem verða í hverjum þætti, s.s.
bréfahorn og síma, þar sem ætlunin
er að gefa unglingum kost á að
hringja til okkar nteð einhver vanda-
mál sem þeir þoia ckki að spyrja um
heima hjá sér. Við munum síðan leita
svara hjá sérfróðum mönnum og gefa
svarið í þættinum. Það mega bæði
vera félagslegar spurningar og eins
hvar sé hægt að ná í þetta eða hitt,”
sagði Andrés Sigurvinsson, annar
umsjónarmanna nýs þáttar sem hefur
göngu sína í útvarpi í kvöld kl. 20 og
er ætlaður unglingum á aldrinum
14—18 ára.
,,Við verðum með vinsælustu lög-
in. Þar munum við taka mið af ís-
lenzkum lögum og þá leita í vin-
sældalista dagblaðanna. Við verðum
með spákonu í hverjum þættt sem
mun spá fyrir vikuna og spákarl sem
segir okkur hvernig stjörnumerkin
cru.
Það má taka það fram að þessi
þáttur er með blönduðu efni fyrir
unglinga en ekki um þá. Við sendum
smákönnunarseðla í unglingaskóla
og báðum unglinga að senda okkur
hugmyndir um þáttinn sem við
munum síðan fara eftir i vetur. Við
ætlum að reyna að vera í snertingu
við landsbyggðina og t.d. upplýsa
unglinga um vandræðabörn og þá
sem hafa áhuga á að spila á fiðlu og
þá hvers vegna o.s.frv.
Við munum heimsækja ýmsa staði,
m.a. upptökuheimili. í þættinum i
kvöld ræðum við við krakka — bæði
á götu úti og eins í stúdíói — um
hvaða vinnu þeir höfðu i sumar og i
hvað þeir hafi varið peningunum sín-
um. í tengslum við það segjum við
örlítið frá leikritinu Blómarósum sem
fjallar um móður og dóttur og vanda-
mál þeirra á milli.
Einnig ræðum við um leikritið
Kvartett i Iðnó og fluttur verður kafli
úr þvi leikriti. Léttara efni, eins og
við köllum það, verðurn við með. Ég
ræði um feril Spilverks þjóðanna og
rabba við Sigurð Bjólu. Ef tími
vinnst til verður Hljóðriti i Hafnar-
firði einnig heimsóttur.
Það má geta þess í lokin að við
verðum með i lok þáttarins hljóð
dagsins og þeim sem geta svarað því
rétt verða veitt verðlaun. Verðlaunin
eru að velja sér lag í þáttinn.
VID er fjörutíu mínútna langur
þátlur. Auk Andrésar stjórnar Jór-
unn Sigurðardóttir þættinum. Þau
cru bæði leikarar.
- EI.A
t-----------------------------------------^
ALLAN GUÐSLANGAN DAGINN -sjónvarp kl. 21.05:
Hvað á að gera
við þann litla?
—eftir höfund sögunnar Bamið hans Péturs
„Þessi mynd fjallar um einstæða
móður sem á tvo syni, fimm ára og ell-
efu til tólf ára. Hún er að byrja að
vinna úti, fara út á vinnumarkaðinn,
og þá kemur upp það vandamál sem
flestir kannast við — hvað gera eigi við
yngri drenginn. Það er ekki hægt að fá
dagheimilispláss fyrr en einhvern tima
og dagmömmur liggja ekki á lausu,”
sagði Jakob S. Jónsson þýðandi
myndarinnar Allan guðslangan daginn.
,,Út frá þessu lendir eldri drengurinn
í því að taka ákvörðun. Annars vegar
um skólann og klíkuna, hins vegar um
bróður sinn. Ég held ég ætti ekki að
segja meira því endirinn kemur svolítið
notalegaáóvart,” sagði Jakob.
V______________________________________
Viveka Warenfalk í hlutverki sínu í
myndinni Allan guðslangan daginn.
,,Þessi mynd er mjög vel gerð og
skemmtileg. Það er margt I henni sem
kemur manni á óvart ag drengirnir i
myndinni leika mjög vel. Ég held að
það sé óhætt að segja að hún sé virki-
lega þess virði að sjá hana,” sagði
Jakob.
Mvndin er byggð á sögu eftir Gun
Jacobsson en liún er einmitt höfundur
sögunnai Barnið hans Péturs sem sjón-
varpið sýndi nú fyrir stuttu. Myndin,
sem kemur frá sænska sjónvarpinu, er
því við hæfi allrar fjölskyldunnar.
Leikstjóri er Henry Meyer og með hlut-
verkin fara Ken Lennaard, Mich
Koivunen og Viveka Warenfalk.
- ELA
_________________________________/
Útvarpkl. 13.15:
Þorgeir Ástvaldsson I góðum hópi. T.v. Gunnar Þórðarson, þá Þorgeir, Steinar
Berg hljómplötuútgefandi og Pétur Gunnarsson rithöfundur.
DB-mynd R.Th.
TONLEIKASYRPA
í STAÐ P0PPS
„Mér þykir tilhlýðilegt að hefja
þetta vetrarpopp á íslenzku efni. Ég
mun þvi tína til eitthvað af því nýj-
asta," sagði Þorgeir Ástvaldsson i
samtali við DB. í dag verður sú breyt-
ing gerð á dagskrá útvarpsins að
popphornin, sem áður voru á dag-
skrá kl. 16.20, falla inn í Lögin við
vinnuna.
Þorgeir hcfur því tíinann frá kl.
13.15 til 13.40 og aftur frá 15.00 til
15.20. Á móti eru leikin lög valin af
tónlistardeild.
Fyrir utan að leika létt innlent efni
ætlar Þorgeir að flytja „i sinum
tima” glefsur úr færeyskum þáttum
um islenzk dægurlög. Þorgcir sagði
ennfremur að á markaðinum væri
gífurlega mikið af plötum frá ýmsum
stórlöxum í poppi og hefur hann
hugsað sér að leika nokkur af þeint
lögum.
Sams konar tónleikasyrpa verður
alla virka daga vikunnar og miðdegis-
sagan verður aðeins lesin þrisvar i
viku. Þess má geta að ýmsir þættir
skjóta nú upp kollinunt i miðri viku,
s.s. Ungir pennar, Tónhornið og
Tónlistartimi harnanna. svo eitthvað
sé nefnt.
- EI.A
VIKINGADRENGUR - útvarp fcl. 17.20:
Konungssynir íharðri
baráttu við valdabófa
Bjarni Stcingrimsson lcikari.
Anna Hcrskind fcr með citt aðalhlui-
vcrkið i Vikingadrcngjunum cn það lcik-
rit var áður flutt i útvarpi árið 1966. Ef-
laust cr þcssi mynd af Önnu álika gömul
og lcikritið.
SUÐRIÐ SÆLA—sjónvarp kl. 21.55:
VERKALÝDSHREYFINGIN BERST
GEGN FJÖLÞJÓDAFYRIRTÆKJUM
Suðrið sæla nefnist fræðslumynd
sem sýnd verður i sjónvarpinu í kvöld
kl. 21.55. Myndin er annar þáttur um
Suðurríki Bandaríkjanna og nefnist
hún Velkomin til Norður Karólína.
Sú öld er nú liðin er bómullin
skipti sköpum fyrir efnahag Suður-
ríkjanna og svartir þrælar strituðu
daginn langan á sólgylltum ekrunum.
Nú er þó svo komið að verkalýðs-
hreyfingin er þróttlítil og þarf á öllu
sínu að halda gegn fjölþjóðafyrir-
tækjum sem virðast ráða öllum rikj-
um.
Myndin sem kcmur frá sænska
sjónvarpinu, gerð af Svium, er um
ftmmtiu mínútna löng og er þýðandi
hennar Jón O. Edwald. - EI.A
í íslenzku f ramhaldsleikriti fyrír
böm og unglinga
I dag kl. 17.20 hefst flutningur
barna- og unglingaleikrits í útvarpi.
Leikritið nefnist Víkingadrengirnir og
er eftir dönsku skáldkonuna Hedwig
Collin i þýðingu Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar.
Leikritið gerist i Danmörku á vík-
ingaöld. l'veir ungir prinsar eiga i bar-
áttu við mann sem hefur hugsað sér að
ná öllum völdum í landinu. Konungs-
synirnir eiga þó góða stuðningsmenn
sem verða þeim til hjálpar þegar valda-
V___________________________________
ræninginn reynir að elta þá uppi til að
drepaþá.
I.eikritið, sem er endurflutt siðan
1966, er i þremur þáttum sem sagðir
eru nokkuð spennandi. Verða þeir
lluttir næstu tvo mánudaga. Kristján
Jónsson bjó leikritið til leikflutnings og
nteð aðalhlutverk fara, í fyrsta þættin-
um, Anna Herskind, Valgerður Dan,
Haraldur Björnsson, sem nú cr látinn,
og Bjarni Steingrimsson.
- EI.A
__________________________________/