Dagblaðið - 10.12.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBHR 1979.
7
íslenzkt „lygapróf9 vekur athygli:
Síbrotamennimir höfðu
vinninginn gegn prestinum
„Jafnvel þótt þátttakendurnir hafi
ekki getað fundið til sektartilfinningar
yfir því að ljúga — þar sem þeir höfðu
skipun um að gera það — þá var ár-
angur mælisins furðulega mikill. í
aáðum prófunum stóð hann 4 af 6
þátttakendum að lygi.” Þannig segir í
brezka blaðinu Sunday Times 25.
nóvember sl. frá lygaprófi er blaðið
fékk nokkra aðila til að gangast undir
eftir forskrift Gísla Guðjónssonar sál-
fræðings.
Undir prófið gengust stjórnmála-
maður, pókerspilari, auglýsingastjóri,
prestur og tveir leikarar. Það voru
aðeins leikararnir sem stóðust eitt próf
hvor en féllu á öðru. Þykir blaðinu
mikið til árangurs lygamælisins koma.
Blaðið segir einnig frá sams
konar tilraun er Gísli Guðjónsson
hafði gert hér á íslandi. Undir tilraun
hans hér gengust þrír flokkar manna;
lögreglumenn, prestar og síbrotamenn.
Ætlunin var að sjá, hvort einn ákveð-
inn hópur manna væri líklegri til að
geta blekkt mælinn en aðrir. Niður-
staðan varð raunar sú, að mælirinn
náði beztum árangri með prestana. Þar
reyndust niðurstöður hans réttar i 94%
tilfella, í 92% tilfella hjá lögreglu-
mönnunum en ekki nema 72% hjá sí-
brotamönnunum.
Tilraunin er gerð þannig, að þátttak-
andinn er spurður staðlaðra og óper-
sónulegra spurninga. Mælirinn á síðan
að greina, hvenær logið er.
Lítill leppur er festur við lófa þátt-
takanda og hann tengdur við mæli sem
greinir ef minnsta breyting verður á.
svitaútstreymi í lófanum.
Þrátt fyrir hversu árangursríkur
mælirinn er þá mælir Gísli ekki með
notkun hans við lögreglurannsóknir.
Hættan sé sú, að ákveðin taugaveikl-
unareinkenni þess er gangist undir lyga-
prófið geti bent til lygi án þess að um
slíkt séað ræða.
,,Ég var einu sinni beðinn að beita
slíku prófi á mann sem sagðist hafa
verið barinn af lögreglunni,” segir
Gísli. ,,Ég hlaut að neita vegna þess að
jafnvel þótt hann hefði verið að segja
sannleikann þá hefði mátt búast við
því, að það hefði mikil áhrif á tilfinn-
ingar hans að vera spurður út i atvikið,
- í viðureign
þeirra við
lygamælinn
og þessi áhrif hefði ekki verið hægt að
greina frá þeim áhrifum sem vart hcfði
orðið ef hann hefði verið að ljúga.”
Slíkum lygamælum cr talsvert beitt i
„klíniskri” sálfræði. Gísli segir t.d. frá
tilraun er gerð var með mann er hafði
misst minnið. Hann var spurður, hvert
væri nafn hans. Mörg nöfn voru ncfnd
og þegar hans rétta nafn var nefnt
sýndi mælirinn ákveðin viðbrögð.
Maðurinn kvaðst ekki muna nafn sitt,
en samt greindi mælirinn viðbrögð
þegar hans rétta nafn var nefnt.
- GAJ
Reglubundnar hraðferðir til Norðurlandanna
Þarftu aS flytja vörur til eða frá Danmörku,
Noregi, SviþjóS eða Ftnnlandi? Ef svo er þá
er það gott norðurlandaráð að notfæra sér
hinar tíðu hraðferðir Fossanna.
BERGEN - KRISTIANSAND - MOSS
GAUTABORG - HELSINGBORG
KAUPMANNAHÖFN
VALKOM - HELSINKI
Góð flutningaþjónusta, hröð afgreiðsla og
vönduð vörumeðferð eru sjálfsagðir þættir í
þeirri markvissu áætlún að bæta viðskipta-
sambönd þín og stuðla að traustum atvinnu-
rekstri hér á landi.
Hafóu samband
EIMSKIP
SIMI 27100
*
Tilraunum til blóðsöfnunar verður
haldið áfram næsta sumar og rcynsla
sumarstarfssins mun skera úr um hag-
kvæmni útflutnings.
Fylfullar hryssur framleiða ákveðinn
hormón i sérstaklega ríkum mæli frá
50. degi til 90. dags, en aðeins innan
þessara tímamarka er reiknað með vak-
anum í blóði hryssanna i þvi magni að
söfnun blóðs geti svarað kostnaði.
Löng reynsla af blóðsöfnun bendir
ekki til þess að þær geti skaðað heilsu
hryssanna. Nauðsynlegt er þó að við-
hafa strangt eftirlit með þvi að rcglum
dýralæknis og ly fjafyrirtæk isins sé
framfylgt.
- ARH
Dýrindissteikur á spottpns í Brauðbæ ígær:
Hálft tonn af frönskum
og500kjúklingar
voru hesthúsaðir
—góð tilraun tilaðsetja matstaðinn
áhausinn, segirBjamiíBrauðbæ
„Jú, þetta er ein af þessum
skemmtilega snarbrjáluðu hugmynd-
um sem menn fá og framkvæma.
Góð tilraun til að setja fyrirtækið á
hausinn!” sagði Bjarni Ingvar
Árnason, eigandi matsölustaðarins
Brauðbæjar, við Dagblaðið í gær.
Gísli Thoroddsen yfirmatreiðslu-
maður og annað starfslið í Brauðbæ
átti annrikt í allan gærdag við að
seðja hungur ótrúlegs fjölda manna
fyrir ótrúlega litinn pening.
Menn gátu keypt nautasteik með
tilheyrandi fyrir 190 kr., kjúklinga
með tilheyrandi fyrir 195 kr., ham-
borgara með öllu fyrir 90 kr. Og
mjólkurglasið kostaði 5 kall!
Brauðbær átti 15 ára afmæli í gær
og afmælisins var minnzt með því að
bjóða upp á sama matseðil og var í
gildi þegar húsið hóf starfsemi sina
— með 15 ára gömlu verði. Við-
skiptavinir létu ekki bíða eftir sér og i
allan gærdag stóðu tugir og hundruð
manna í álnalöngum biðröðum og
biðu eftir því að hesthúsa kræsingar
fyrir spottprís.
Bjarni Ingvar bjóst við að 1200—
1500 manns hefðu komið í mat í gær.
Flestir pöntuðu nautasteik og kjúkl-
inga. „Ætli sé fjarri lagi að gizka á að
500 kjúklingar hafi verið afgreiddir í
dag og hálft tonn af frönskum kart-
öflum,” sagði Bjarni Ingvar. - ARH
FRÁBÆR FRAMNII-
STAÐA LARSENS
—langef stur í Buenos Aires
Góðkunningi okkar íslendinga,
danski stórmeistarinn Bent Larsen, er
langefstur á alþjóðlegu skákmóti i
Buenos Aires. Hefur Larsen hlotið 8
vinninga úr fyrstu 9 umferðunum,
unnið 7 skákir og gert 2 jafntefii. f 9.
umferð gerði Larsen jafntefii við séra
William Lombardy frá Bandaríkjun-
um.
Heimsmeistari sveina, Marcelo
Tempone frá Argentinu, vann um helg-
ina sína fyrstu sigra á mótinu er hann
lagði fyrrum heimsmeistara Tigran Pet-
rosjan að velli og sömu útreið fékk
Jorge Rubinetti frá Argentínu.
Aðrar skákir fóru þannig, að Franco
(Paraguay) vann Ivkov (Júgóslavíu) og
Gheorghiu (Rúmeniu) vann Quinteros
(Argentínu). Þá vann Panno
(Argentinu) landa sinn Rubinetti,
Spassky og Najdorf gerðu jafntefli og
sömuleiðis Miles og Ulf Andersson.
Staðan að loknum 9 umferðum er
þessi: 1. Larsen 8 v., 2. Miles 6 v. 3.—
7. Najdorf, Quinteros, Ivkov, Spassky
og Andersson með 5,5 v. 8. Gheorghiu
5 v. 9,—11. Panno, Franco og Petros-
jan 4,5 v. 12. Lombardy 3,5 v. 13.
Tempone2,5 v. 14. Rubinetti 1 v.
-GAJ
Hrossabændur þinga um nýja útf lutningsgrein:
Blóð úr fylfullum hryssum
Blóð úr fylfullum merum getur
orðið útflutningsvara landsmanna i
umtalsverðum mæli, samkvæmt niður-
stöðu manna sem fjallað hafa um
málið að undanförnu.
Hagsmunasamtök hrossabænda
halda aðalfund sinn í Reykjavík í dag.
Eitt aðalmál fundarins er söfnun mera-
blóðs og útflutningur þess.
Síðastliðið sumar var gerð tilraun
með blóðsöfnun úr fylfullum hryssum
á vegum fyrirtækisins G. Ólafsson hf.
Kaupandi blóðsins er danskt lyfjafyrir-
tæki. Úr blóðvökvanum vinnur fyrir-
tækið hormón sem nýttur er til lyfja-
framleiðslu.
Samkvæmt markaðshorfum ætti að
vera hægt að selja blóð úr 1000—1500
hryssum á sumri, að minnsta kosti.
Talið er að taka megi allt að 5 litra af
blóði i senn, 5 sinnum á hverju tíma-
bili. Fari svo að blóðsöfnunardæmið
gangi upp, má ætla að hver hryssa skili
u.þ.b. 38 þúsund krónum íslenzkum
eftir sumarið, miðað við núgildandi
verðlag.