Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 18
18
I
Iþróttir
Iþróttir
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
8
VALSSIGUR í
JÖFNUM LEIK
— Valur vann Hauka 16-15 í í. deild kvenna
Valur og Haukar lciddu saman hesta
sína i 1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik kvenna i Laugardalshöli á
laugardaginn. Valur sigraöi í jöfnum
og skemmtilegum leik 16—15. Var
þetta einn sá bezti leikur sem ég hef séö
i 1. deild kvenna i vetur. Staöan i hálf-
leik var jöfn, 9—9.
Á fyrstu sekúndum leiksins fengu
Valsstelpurnar víti, Erna Lúðvíksdóttir
gerði sig klára til að skjóta, en henni
mistókst í þetta skipti. Björg Guð-
mundsdóttir skoraði 1—0 fyrir Val.
Valsstelpurnar voru yfirleitt einu eða
tveimur mörkum yfir. Sigrún Berg-
mundsdóttir skoraði tvö falleg mörk af
línu eftir sendingar frá Björgu Guð-
mundsdóttur. Þá var staðan orðin 6—3
fyrir Val.
Þegar átta minútur voru eftir af
hálfleiknum fengu Haukar víti. Mar-
grét Theódórsdóttir tók vítið. Boltinn
skoppaði milli þverslár og gólfsins.
íþróttir
Áhorfendur héldu að þetta væri nú
ekki mark. Dómari leiksins flautaði og
benti á miðju — það var mark öllum til
mikillar undrunar. Staðan var þá 7—6
fyrir Vaí. Þá fengu Valsstúlkur sitt
þriðja víti í leiknum. Björg Guðmunds-
dóttir — skoraði örugglega, 8—6.
Mínútu síðar fengu Haukar líka sitt
þriðja víti í leiknum. Margrét
Theódórsdóttir vítaskytta Hauka skaut
og skoraði, 8—7. Hanna Rúna skoraði
9—8 fyrir Val. Síðan skoraði Margrét
Theódórsdóttir tvö síðustu mörk hálf-
leiksins — annað úr víti — og jafnaði
fyrir Hauka, 9—9.
Bæði liðin mættu ákveðin til leiks í
seinni hálfleik. Valsstelpurnar skoruðu
þrjú fyrstu mörkin og komust í 12—9.
Haukum tókst að jafna í 12—12 eftir
að Valur hafði verið einum færri.Eftir
þetta skildu aðeins eitt og tvö mörk
liðin að — þó voru Valsstúkurnar alltaf
yfir. Þegar fjörutíu sekúndur voru til
leiksloka voru Haukar með boltann.
Kolbrún Jónsdóttir missti hann. Þar
með var draumurinn búinn, en það er
aldrei að vita hvernig leikurinn hefðt
endað ef þetta óhapp hefði ekki komið
fyrir. Leikurinn endaði eins og fyrr
segir 16—15 fyrir Val.
Mörk Vals: Björg 7/3, Harpa,
Ágústa Dúa, Sigrún og Erna 2 hver,
Hanna Rúna I.
Mörk Hauka: Margrét Theódórs-
dóttir 10/8, Halldóra og Sjöfn 2 hvor
og Björg 1.
- HJ
Björn Björnsson stekkur hér upp fyrir utan punktalinu og skorar eitt fjögurra marka sinna i 38—16 sigri Vals yfir ensku
meisturunum Brentwood á laugardag. DB-mynd Hörður.
22ja marka sigur
Islandsmeistara
Valur - Haukar 16-15 (9-9)
Islandsmótið i
Beztu leikmenn
Hsukum, 7, Jöhenne
1. deHd kvenna i Lsugardaishöi laugardaglnn 8. dasambar.
einkunn 10) Björg Guðmundsdóttir, Val, 8, Margrót Theódórsdóttir,
Péladóttlr, VaL 7, Slgrún Bargmundadóttk, Val, 8, Kottxún Jónadóttlr,
Valur Jóhanna Pélsdóttk, Ema Lúóvfkedóttir, Hanna Rúna Jóhannadóttk, Eln Kriatins-
dóttk, Slgrún Bargmundadóttk, Agúata Dúa Jónadóttk, Guðbjörg Einarsdóttk, BJðrg Guð-
mundsdóttk, ólafla Guðmundadóttk, Harpa Guðmundadóttk, Karan Guönadóttk.
Haukar Sóley Indriðadóttk, Margrét Thaódórsdóttk, Kottwún Jónadóttk, Saaaaga Frið-
þjófsdóttk, Sjðfn Haukadóttk, Halga Hauksdóttk, HafdU Stafénadóttk, Guðrún Aðalstains-
dóttk, Hattdóra Mathlaaan. Hulda Hauksdóttk, BJðrg Jónatanadóttk, SvanhHdur Guðlaugs-
dóttk.
Dómarar Magnús Amarsson og Jón Magnússon.
—Valur sigraði ensku meistarana í handknattleik 38-16
íEvrópuleiknum á laugardag
„Það er erfitt að ná upp slcmmningu
gegn slíku liöi,” sagöi Bergur Guöna-
son, formaöur Vals, i leikhléinu á
Evrópuleik Vals og ensku meistaranna
Brentwood i Laugardalshöll á laugar-
dag. Fyrri hálfleikurinn var ákaflega
dapur — Englendingarnir kunna sára-
lítið fyrir sér i handknattleik, og Vals-
menn fóru næstum niöur á sama plan.
Hresstust þó undir lok hálfleiksins og
staðan í hálfleik 16—10. í síöari hálf-
íeprobtoT) (^epro^ux^ C^eproóu^)
Utskomar
kistur úr eik
— tvær
stærðir
— tveir iitir
Útskomir bekkir
úreik
— tværstærðir
— tveir litir
Póstsendum
SNJEFELL SF
LANGHOLTSVEG1111. SÍMI30300.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN drekavogsmegin
leiknum tóku íslandsmeistararnir öll
völd. Mörkin hrönnuðust upp — Vals-
menn skoruöu 22 mörk gegn sex í hálf-
leiknum svo lokatölur urðu 38—16.
Mikill sigur og í fyrri leiknum í
I.undúnum sigraði Valur 32—19. Sam-
tals þvi i báðum leikjunum 70—35 —
35 marka munur á liðunum. Það er
furðulegt í 2. umferð Evrópukeppni
meistaraliða. Brentwood komst i 2.
umferðina, þegar færeyska liðiö Kynd-
ill var dæmt frá keppni eins og rakið
var hér í DB á sínum tíma.
Valsmenn skoruðu fjögur fyrstu
mörkin í leiknum á laugardaginn —
það fyrsta eftir aðeins 15 sekúndur —
og um 400 áhorfendur bjuggust við al-
gjörri einstefnu. Ensku^ leikmennirnir
ákaflega slakir. En það merkilega skeði
að Brentwood skoraði næstu tvö mörk,
4—2, og hélt lengi vel í Val, 6—4, 7—5,
8—6 og 9—7. En þá tóku Valsmenn
loksins á sig rögg og sigldu endanlega
fram úr. Brentwood skoraði þó 10
mörk í hálfleiknum en fyrir leikinn
ætluðu Valsmenn ekki að fá á sig nema
10 mörk. Hins vegar var markvarzla
Brynjars Kvaran alveg í molum í fyrri
hálfleiknum. Fékk á sig mörk, sem
auðvelt hefði átt að vera að komast
hjá. Brynjar meiddist á auga í leiknum
við Hauka sl. miðvikudag og háði það
honum greinilega mjög. Hann lék þó
allan leikinn.
í síðari hálfleiknum var um algjöra
einstefnu að ræða og langtímum saman
skoruðu þeir ensku ekki mark. Um
miðjan hálfleikinn var staðan 27—14
og úthald ensku leikmannanna alveg
þrotið. Valur skoraði ellefu mörk gegn
tveimur síðustu 15 mínúturnar. Þetta
var greinilega skemmtiferð hjá leik-
mönnum Brentwood. Þeir vissu fyrir-
fram að þeir áttu enga möguleika i
Valsmenn og voru því sigursælli á
skemmtistöðum Reykjavíkur á föstu-
dagskvöldið.
• Um leikinn er lítið að segja. Vals-
menn unnu með 22ja marka mun án
þess að sýna nokkuð sérstakt. Fyrri
hálfieikurinn með þvi lakasta, sem
Valur hefur sýnt á keppnistimabilinu.
En það kom ekki að sök — mótstaðan
lítil sem engin. Englendingar nánast
byrjendur í iþróttinni. Markverðirnir
Terry Delaney í fyrri hálfleik og Tom
Smith í þeim síðari beztu menn liösins.
Júgóslavinn Goran Gaziwoda, sem er
þjálfari liðsins og leikmaður, mun
slakari en búast hefði mátt við af fyrr-
verandi júgóslavneskum landsliðs-
manni.Greinilega í lítilli æfingu þósvo
hannskoraðiflest mörkin. Valsliðið var
jafnt i leiknum — enginn sérstakur skar
sig úr og allir leikmenn liðsins skoruðu
mörk nema Brynjar markvörður.
Mörk Vals: Steindór Gunnarsson
9/1, Stefán Halldórsson 6/3, Þorbjörn
Guðmundsson 5/1, Björn Björnsson 4,
Bjarni Guðmundsson 4, Þorbjörn
Jensson 4, Gunnar Lúðviksson 2/1,
Hörður Hilmarsson 2, Jón H. Karlsson
1 og Stefán Gunnarsson 1. Valur fékk
sjö vítaköst í leiknum. Nýtti sex.
Delaney varði hið fyrsta frá Þorbirni
Guðmundssyni. Þremur Valsmönnum
var vikið af velli — Stefáni Gunnars-
syni, Þorbirni Jenssyni og Bjarna.
Mörk Brentwood: Gaziwoda 5, Gary
Beechener 3, Danny Sweeney 3/2,
Larry Beard 2, Mike Hegarty 1, Paul
Rolls 1 og Tony Davis 1. Brentwood
fékk tvö víti. Skoraði úr báðum.
Tveimur leikmönnum var vikið af velli.
Beechener og Rolls.________- hsim.
Mflanó-liðin
halda ennþá
forystu sinni
Milanó-liðið Inter og AC halda
ennþá forystu sinni i ítölsku 1. deildar-
keppninni og unnu bæði sigur um
helgina. Inter lagði Perugia að velli 3—
2 á heimavelli sinum en AC Milanó
vann Boiogna 1—0 á útivelli. Úrslitin í
1. deildinni urðu annars sem hér segir:
Ascoli — Avellino 0—0
Bologna — AC Milanó 0—1
Cagliari — Fiorentina 2—1
Cantanzaro — Pescara 1—1
Inter — Perugia 3—2
Juventus—Roma 2—0
Lazio — Udinese 0—0
Napóli — Tórínó 1—0
Staða efstu liðanna er nú sem hér
segir:
Inter Milanó 12 7 5 0 18—6 19
ACMUano 12 6 4 1 11—4 16
Cagliari 12 4 7 1 9—6 15
Juventus 12 6 2 4 13—11 14
Tórínó 12 4 5 3 9—6 13
Avellino 12 3 7 2 6—5 13
Það voru skoruð 14 mörk i 1. deild-
inni að þessu sinni og þykir það óvenju
mikið. Hins vegar vekur athygli að
liðið sem er i 6. sæti, Avellino, hefur
aðeins skorað 6 mörk i 12 leikjum.
Undarleg knattspyman á ftalíu!