Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
25
Iþróttir
Iþróttir
I)
Hjálmfríöur Jóhannesdóttir hefur hér sloppið framhjá þeim Sigrúnu Blomsterberg og Guöríöi Guðjónsdóttur i Framvöm-
inni. Ekki tókst henni að skora i þetta skiptið og Fram vann öruggan sigur i leiknum. DB-mynd Hörður.
Haukur Ottesen þjátfari
KR rekinn af bekknum!
er Fram sigraði KR í 1. deild kvenna 16-9
„Stelpur, Gunnlaugi er enn hlýtt um
hjartarætur til Fram.” Eitthvað á þá
leið mælti Haukur Ottesen, þjálfari KR
i meistaraflokki kvenna í handknatt-
leik. Honum var vikið af bekknum upp
í áhorfendastúku fyrir þessi ummæli,
er lið hans lék við Fram í Laugardals-
höll á laugardaginn var.
Framstúlkurnar og stúlkurnar úr
vesturbænum kepptu um efsta sætið í
1. deild kvenna. Mikil harka var í leikn-
um — dálítið um kýlingar. Svo fór að
Fram sigraði í þessum leik. Skoruðu 16
Gummersbach
í 8-liða úrslit
V-þýzka stórliöiö Gummersbach,
sem reyndar er ekki nema miðlungslið í
v-þýzku deildakeppninni, komst áfram
8-liða úrslit Evrópukeppni meistaraliða
í handknattleik með 25—17 sigri yfir
norska liðinu Fjellhammer i leik, sem
fram fór í Köln. Staðan í hálfleik var
12—6 Gummersbach i vil. Fyrri leikinn
vann Gummersbach einnig — 20—15.
mörk á móti 9 mörkum KR-kvenna.
Komust þær þvi einar í efsta sæti, eru
með 10 stig — hafa þær leikið fimm
leiki og unnið þáalla.
Þrátt fyrir að KR tapaði þessum leik
skoruðu þær tvö fyrstu mörkin í leikn-
um, komust í 2—0, 2—1, Oddný
jafnaði fyrir Fram, 2—2. Aftur var
staðan jöfn, 4—4, 5—5. Markamunur-
inn var ekki meiri en eitt til tvö mörk.
Staðan í hálfleik var 7—5 fyrir Fram.
Fram kom mun ákveðnari til leiks í
seinni hálfleik — skoraði hvert markið
á fætur öðru.
Það virtist eins og KR-liðið brotnaði
alveg saman eftir að Hauki Ottesen var
vikið af bekknum. Allt gekk á afturfót-
unum — skoruðu ekki nema fjögur
mörk í þeim síðari. Fram komst í 13—
8, 14—8, 14—9, 15—9 og 16—9.
Framsigraði því með sjö marka mun.
öruggur sigur og verðskuldaður hjá
Fram.
Mörk Fram skoruðu: Guðríður 9/5,
Oddný4, Jóhanna 2 og Jenný 1.
Mörk KR: Hjördís 3, Hansína 3/2,
Olga 2 og Birna I.
- HJ
Fram-KR 16-9 (7-5)
íslandsmótíð i handknattíeik, 1. deild kvenna Fram — KR 16—9 (7—5) í Laugardalshöll,
laugardaglnn 8. desember.
Beztu Mkmenn (haesta einkunn 10): QuAdður Quðfónadóttk, Fram, 7, Oddný Sigsteins-
dóttír, Fram, 7, Jóhanna HaMdórsdóttír, Fram, 6, Olga Qardarsdóttír, KR, 6, og HjörcSs Sigur-
jónsdóttír, KR, 6.
Fratru Kofcrún Jóhannsdóttír, SJgrún Blomstactíerg, Helga Magnúsdóttír, Jenný Qrétu-
dóttír, Kristín Orradóttír, Ama Stainsen, Quðriður Quðjónedóttír, Oddný Sigstelnsdóttir, Pbr
laug Steinedóttir, Quðvún Sverrisdóttír, Jóhanna Hafldórsdóttír og Sveinbjörg Jónedóttír.
KR: Asa Asgrimedóttír, Haneina Melsteð, Guðrim VUhjáimsdóttir, Anna Und Sigurðsson,
Ama Garðarsdóttír, Bima Benediktsdóttír, Hólmfriður Jóhannsdóttír, Hjördis Sigurjónsdóttir,
Olga Garðarsdóttír, Helga Bachman og Karolína Jónsdóttír.
Dómarar Gunniaugur Hjábnarsson og Jón Magnússon.
Armenningar stöðvuðu
sigurgöngu Fylkis
—unnu öruggan sigur í Höllinni í gær, 24-18
Ármenningar komu talsvert á óvart I
Laugardalshöllinni í gærdag er þeir
stöðvuðu sigurgöngu Fylkis i 2. deild-
inni á ákaflega sannfærandi hátt. I
fjörugum leik, sem einkenndist af stór-
góðri frammistöðu Heimis Gunnars-
sonar í marki Ármanns annars vegar og
frábærri dómgæzlu þeirra Karls
Jóhannssonar og Ingvars Viktorssonar
hins vegar, reyndust Ármenningar
sterkari þegar mest á reyndi og sigruðu
sanngjarnt 24—18. í hálfelik leiddi
Fylkirll—10.
Leikurinn var í algeru jafnvægi
framan af. Ármann leiddi oftast með
1—2 tveimur mörkum en Fylkir
jafnaði fyrst 7—7 og komst síðan yfir
11 — lOáður en flautað var til leikhlés.
Fylkir jók forystu sína í 2 mörk, 14—
12, snemma í síðari hálfleiknum en þá
sögðu Ármenningar hingað og ekki
lengra! Næstu 15 mín. skoruðu Fylkis-
menn aðeins 1 mark en á sama tíma
skoruðu Ármenningar 8 mörk og
tryggðu sér sigurinn. Breyttu stöðunni í
20—15 sér í hag. Þá voru aðeins um 5
mín. til leiksloka. Mikið fjör og darr-
aðardans var lokakaflann en Fylkis-
mönnum tókst ekki að minnka mun-
inn. Ármenningar léku af yfirvegun og
sóknarleikur þeirra var einkum og sér í
lagi miklu hugmyndaríkari en hjá
Fylki. Þar reyndu menn mest að koma
sér áfram á eigin spýtur með afar tak-
mörkuðum árangri.
Ármenningarnir áttu mjög góðan
dag að þessu sinni. Beztir voru þó
Heimir Gunnarsson i markinu og Þrá-
inn Ásmundsson í vinstra horninu.
Heimir varði stórvel allan leikinn og
Þráinn skoraði mörg falleg mörk af
harðfylgi í horninu. Hjá Fylki var
meðalmennskan allsráðandi og eini
maðurinn, sem eitthvað verulega kvað
að var Ásmundur Kristinsson.
Dómarar voru þeir Karl Jóhannsson
og Ingvar Viktorsson, sem undirritaður
hefur ekki séð dæma fyrr i vetur. Þeir
skiluðu verkefni sínu af stakri prýði og
létu leikinn allan tímann ganga hratt og
vel fyrir sig. Ekki dæmt á nein smábrot
og þeir félagar voru sérlega lagnir að
sjá í gegnum leikaraskap sumra leik-
manna liðanna. Sannarlega vel dæmt
hjá þeim Karli og ingvari. Slík dóm-
gæzla er því miður allt of sjaldgæf
sjón.
Mörk Ármanns: Þráinn Ásmunds-
son 7, Björn Jóhannesson 5/2, Smári
Jósafatsson 4, Friðrik Jóhannsson 3,
Kristinn lngólfsson 2, Haukur Har-
ardsson, Bragi Sigurðsson og Einar
Eiríksson 1 mark hver.
Mörk Fylkis: Ásmundur Kristinsson
7/5, Ragnar Hermannsson 4, Gunnar
Baldursson 4, Sigurður Símonarson,
Einar Ágústsson og Hafliði Kristinsson
1 mark hver.
- SSv.
Hörkukeppni í
Bundesligunni
— Hamborg og Bayern bítast um efsta sætið
Sextánda umferðin í V-þýzku
Bundesligunni fór fram um helgina og
eftir hana virðast Hamborg og Bayern
Miinchen ætla að stinga af í kapp-
hlaupinu um titilinn. Úrslitin urðu ann-
ars sem hér segir:
Hertha — Dússeldorf 3—0
Bayern — Stuttgart 4—0
Köln — Werder Bremen 4—1
Hamborg — Bayern Leverkusen 3—0
Kaiserslautern — Munchen 1860 3—1
Duisburg — Dortmund 1 —0
Frankfurt — BayerUer ingc.-: 2—0
Gladbach—Braunschwcii 1 — 1
Bochum — Schalk e 04 0—0
Staðan í Bundesligunni er sem hér
segir:
Hamborg 16 9 5 2 35- -15 23
Bayern 16 10 3 3 35- -16 23
Frankfurt 16 10 0 6 33- -19 20
Köln 16 8 4 4 34- -25 20
Dortmund 16 9 2 5 31- -24 20
Schalke04 16 6 6 4 23- -16 18
Gladbach I6 6 6 4 28- -26 18
Stuttgart 16 7 3 6 28- -26 17
Kaiserslautern 16 6 3 7 27- -22 15
B. Uerdingen 16 6 3 7 20- -26 15
B. Leverkusen 16 5 5 6 21- -30 15
Bochum 16 5 4 7 17- -19 14
Duisburg 16 5 3 8 19- -30 13
Werder Bremen 16 5 3 8 21- -35 13
Dusseldorf 16 4 4 8 29- -37 12
Hertha Berlin 16 3 5 8 16- -28 11
Múnchen 1860 16 3 5 8 15- -26 11
Braunschweig 16 3 4 9 16- -28 10
Þrjú lið falla niður úr Bundesligunni
á hverju ári. Hamborg varð þýzkur
meistari í fyrra og er enn í efsta sætinu.
Þau lið, sem komu upp úr 2. deildinni
sl. vor eru Bayer Uerdingen, Bayer
Leverkusen og Múnchen 1860 og til
þessa hefur þeim tekizt þokkalega að
spjara sig. Heldur er þó farið að halla
undan fæti hjá Múnchen 1860. í raun
merkilegt hversu mörg lið virðast
blómstra i og umhverfis Múnchcn.
Fjögur lið í Bundesligunni, sem gefur
ensku 1. deildinni lítið eða ekkert eftir
hvað gæði snertir. Bikarmeistarar
síðasta árs, Dusseldorf, hafa átt erfitt
uppdráttar á þessu keppnistimabili og
eru i mikilli fallhættu.__
Jafntef li f
skozka deild-
arbikarnum
Derek Johnstone skoraði eina
markið, sem gerl var i skozku úrvals-
deildinni um helgina. Það var i leik
Morton og Rangers, sem fram l'ór á
heimavelli Morton. Rangers sigraði I —
0 en Morton heldur enn efsta sæti úr
valsdeildarinnar. Rangers komst
við sigurinn í 3. sætið. Þá léku Aber-
deen og Dundee United til úrslita um
skozka deildabikarinn. Jal'ntefli varð
ánk marka í bráðskemmtilegunt leik,
sem varð að framlengja. l'rslit fengust
þó ekki og liðin mætasl á ný í vikunni.
Aðeins 27.000 áhorfendur voru á
llampden Park og hafa aldrei verið
i'ærri á úrslitaleik i skozkri hikar-
keppni. Ekki óeðlilegt þar sem hvorki
Celtic eða Rangers voru í úrslilum.
Staðan i úrvalsdeildinni:
Morton 15 9 3 3 32- 16 21
Ccltic 15 9 3 3 29- 14 21
Rangers 17 7 3 7 24- 22 17
St. Mirren 16 6 5 5 24-27 17
Abcrdeen 14 6 3 5 25-18 15
Partiek 16 5 5 6 19—22 15
Dundec L' 15 5 4 6 21-17 14
Kilmarnock 15 5 4 6 16—24 14
Dundee 16 6 1 8 24-36 13
Hibernian 16 v 3 II 15-31 **
HARÐVffiUR - VANDAÐ VERK
MIKIÐ ÚRVAL
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI39 REYKJAVÍK - SÍM113462