Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 43

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 43
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. EINNIG FJÖLBREYTT ÚRVAL SKERMA PÓSTSENDUM LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÖS & ORKA Suðurlandsbraut 12 sími 84488 GULL 0G GERSEMAR—sjónvarp kl. 22,10: Gullæðið og mannkynssagan í kvöld sýnir sjónvarpið fræðslu- mynd sem ber engu minna nafn en Gull og gersemar. Að sögn Baldurs Hermannssonar sem velur fræðslu- mýndir fyrir sjónvarpið er þessi mynd meinlaus ef borið er saman við myndir eins og um Kampútseu. ,,Myndin fjallar um gull og áhrif þess á mannlífið,” sagði Baldur í samtali við DB. „Hvernig það hefur valdið ást, hatri og styrjöldum. Einnig er fjallað um svokallað gull- æði. Að mestu er þó fjallað um vinnslu á gulli og hvernig ýmsir list- munir eru unnir úr því.” Myndin er fimmtíu mínútna löng og þýðandi og þulur er Jón O, Edwald. -ELA. ONYX-LAMPAR NÝKOMNIR VIЗútvarp kl. 20,00: / dag b/rtum v/ð tjórða hhrta Jólagetraunar DB þar sem frœgar sögupersónur sjóst sem böm með jólagjafímar sínar. Bns og éður þmrf að strika undlr rétta svarið, geyma mynd- imar þangað tfí þær hafa blrzt aMar tíu og senda þear sfðen afíar / ektu tfí DB. Glæslleg verð- íaun em í boði — 980þúsundkróna myndsegulbandstæki af gerðinni Fisher. Dregið verður úr réttum lausnum sem berast fyriríl. desember í Slðumúia 12, Reykjavik. Á myndlnnísjéum vfð strékpjakk sem se/nna varð fræg sjóhetja é Norðuriöndum. Hvaðhéthann? a) Ólafur Tryggvason b) Peder Tordenskjold c) Ingólfur Arnarson Eyjamenn heimsóttir Þátturinn VIÐ er á dagskrá út- varpsins í kvöld kl. 20.00. Að sögn Jórunnar Sigurðardóttur, umsjónar- manns þáttarins, verða Vestmanna- eyjar heimsóttar. „Við ræðum við fegurðardrottn- ingu íslands 1979, Kristínu Bern- harðsdóttur, um borð í Herjólfi. Einnig verðum við með smá Eyja- spjall,” sagði Jórunn. „Rætt verður við fyrrverandi alþingismann um unglinga og síðan fjöllum við lítillega um sprang. Þá verður umsögn um unglinga- bækur, bæði þær nýju og þær gömlu,” sagði Jórunn. ,,í sambandi við það reynum við að forvitnast um hvað unglingar lesi helzt og fáum höfunda til að spjalla við okkur. David Bowie verður kynntur og Ketill og Katla koma í heimsókn. Fastir póstar eins og síminn, bréfa- hornið og tónlist verða ennfremur í þættinum.” Auk Jórunnar er Andrés Sigurvinsson umsjónarmaður. Þátturinn er fjörutíu lengd. mínútur að -ELA. Andrés Sigurvinsson og Jórunn Sig- urðardóttir vinna hér að gerð þittarins Við. Eins og sjá má er í mörgu að snú- ast og margt sem athuga verður áður en þátturinn er sendur út. DB-mynd R.Th. Sig. LITLU JÓUN—sjónvarp kl. 21,25: Jólatrésskemmtun í kjallaranum „Þetta er ljúf og indæl mynd um nokkra stráka á aldrinum 9—10 ára. Einn þeirra ákveður að halda jólatrés- skemmtun i kjallaranum heima hjá sér og býður til sín vinum sinum. Hugmyndina fékk hann hjá vini sínum sem fékk að fara á jólatrés- skemmtun i vinnu föður síns. Þar sem engin jólatrésskemmtun var haldin í vinnunni hjá föður aðal- leikarans varð hann að gera eitthvað sjálfur,” sagði Dóra Hafstejnsdóttir, þýðandi myndarinnar Litlu jólin sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 21.45. „Hann fær vinina til að hjálpa sér við undirbúning og þeir nota ýmis ráð til að afla sér ýmissa veizlufanga og skreytinga. Þessi strákur býr i gömlu, stóru húsi og fær að hafa kjallarann fyrir sig. Myndin lýsir síðan hvernig þeir standa að þessu öllu saman,” sagði Dóra ennfremur. Myndin er dönsk og með aðalhlut- verk fara Morten Reinholdt-Möller og Harald Micklander. Höfundur handrits og leikstjóri er Nils Malmros. -EI.A. Höfuðpaurarnir I mynd kvöldsins. Þeir ákveða að halda jólaskemmtun fyrir félag- ana en afla sér skreytínga og veizlufanga á vafasaman hátt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.