Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 10. DESEMBER 1979. SÍMAGJ Póstsendum SÍMTÆKNISF. Ármúla 5 Simi 86077. !!!II||i''T'!M:I!!!IÍ"'!I!!I!'!1 STEINSTEYPUHNINGARI EININGAHÚS BTGEINtARHIilAN Hf Sími 36660 Pósthóif 4032. Breiðhöfða 10,124 Reykjavík. VERKTAKAR - IÐNAÐARMENN BOSCH HOGGHAMRAR - BORHAMRAR 'ilííT !íV* tIssíí I í. IOSCH Steypan veröur sem bráðið smjör með risunum frá BOSCH BOSCH Fjöibreytt úrvai af rafmagns verkfærum Gunnar Asgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Reykjavík Sími35200 VEGNA UMRÆÐUNNAR UM ÁSTANDH) í KAMPÚTSEU Töluverð umræða hefur sprottið upp í kjölfar sýningar sjónvarpsins á mynd Bretans John Pilger þann 26. nóv. Forsvarsmenn Rauða krossins hafa svarað á tilhlýðilegan hátt þeim ásökunum sem fram komu á hendur þeim alþjóðlegu hjálparstofnunum sem hafa liðsinnt þeim hundruðum þúsunda sem svelta í Kampútseu og nágrannalandinu Tælandi. Sérstak- lega er ástæða til að benda á grein Björns Friðfinnssonar í Morgun- blaðinu 30.II Þær upplýsingar sem hann veitir um afstöðu þeirrar stjórnar sem Víetnamar hafa sett á laggirnar eftir hernámið koma vel heim og saman við fréttir ýmissa erlendra blaða — og eru víðsfjarri frásögn breska fréttamannsins John Pilger. Sá eini sem hefur tekið opinberlega undir með Bretanum er Árni Berg- mann ritstjóri Þjóðviljans. Honum tekst m.a. það meistarastykki aðgera tvo menn úr þeim eina John Pilger sem um er að ræða hér. Árni segir: „Fréttaritari New Statesman, John Pilger, hefur sömu sögu að segja. Eins og sjónvarpsfréttamennirnir segir hann. ...” Árni hefur ekki áttað sig á þvi að John Pilger er sjón- varpsfréttamaðurinn og greinar- höfundurinn í New Statesman. Afstaða Pilger verður ekkert senni- legri þótt hann sé notaður til að styðja eigin orð. önnur hlið sem þarf að koma fram Fólk var slegið yfir því sem myndin sýndi — það eru eðlileg viðbrögð og væntanlega til góðs. Hjálparstarf Rauða krossins fær aukinn byr hér heima og matvæli og læknishjálp nær til fleiri. En það er ástæða til að skoða atburðina betur og fara i saumana á fréttamyndinni — við ættum að velta því fyrir okkur hvers vegna þetta hryllilega ástand hefur skapast og hvernig John Pilger reynir að afvegaleiða okkur. Ég tel að myndinni sé m.a. ætlað að réttlæta hernám Vietnam á Kampútseu. Talað er um víetnamska herinn sem frelsara og sagt er að Vietnam sé svo til eitt um að hjálpa bágstöddu fólkinu. Gott — ef satt væri. Nægur vitnisburður er til um það að fólk í Kampútseu s\alt ekki fyrir innrásina — nægur matur var til og ræktun orðin geysimikil. Stórkostlegt átak í húsnæðismálum var i fullum gangi (m.a. má marka það af vitnis- burði bandarískra blaðamanna sem sluppu frá landinu tveimur dögum fyrir innrás Víetnam), heilbrigðis- þjónusta var í uppbyggingu o.fl. o.fl. sem til framfara horfði Allt þetta var eyðilagt við innrásina — uppskeran eyðilögð eða-henni rænt. Aflciðingin eðlilcga sultur og hungurdauði. Talið er að um hálf milljón Kampútseu- manna hafi nú þegar fallið í valinn vegna hungurs og önnur hálf milljón hafi fallið í hernaðarátökum. Áróður víetnamskra stjórnvalda og stuðningsmanna þeirra gengur út á það að koma sökinni á aðra en gera hernámið að frelsun og hjálparstarfi. Mynd John Pilger er liður í þessu. Rangfærslur John Pilger Hér verður gerð tilraun til að drepa á örfá atriði sem rangfærð eru (þ.e. fyrir utan ásakanirnar á hendur hjálparstofnunum og orsök hungurs- ins). — „En ógnanirnar hófust aftur svo til samstundis. íbúar Phnom Penh, tvær og hálf milljón talsins, voru fluttir nauðugir brott á næstu klukkustundum. Veikir og særðir voru dregnir úr sjúkrahúsunum, deyjandi börn borin í plastpokum en öldnum og örkumla hrint út fyrir vegbrúnina. Fólkið var rekið út úr borginni, út á landsbyggðina sem fæstir borgarbúar höfðu augum litið. . . ” Athugasemdir: íbúar Phnom Penh voru tæplega 6(X),000 (403,500 1962). Borgin var tæmd á lOdögum að sögn m.a. Ponchaud (höfundur bókar- innar — Kambódia árið núll — ). Franska Calmett-sjúkrahúsið starfaði áfram. Flestir þeirra tæplega þriggja milljóna sem yfirgáfu borgina Kjallarinn voru flóttamenn undan sprengju- regni Bandarikjanna — þeir voru sveitamenn á leið heim (sjá t.d. bók Ponchaud) en ekki borgarbúar sem ekki höfðu litiö sveitirnar augum. — „Hinir nýju stjórnendur Kambódíu kölluðu árið I975 árið núll. Byrjun tímabils þar sem engar fjölskyldur ættu að vera til. . . . engir skólar. . . engin lyf, engir spítalar, engar bækur, engin menntun, engir . frídagar, engin hljómlist, engir söngvar. . . aðeins vinna og dauði.” Athugasemdir: Engin þekkt yfir- lýsing er til frá Pol Potstjórninni um árið núll. Þetta er hins vegar titillinn á áðurnefndri bók Ponchaud. Um fjölskyldur er einnig hægt að lesa i bók Ponchaud, einnig eru til frá- sagnir ýmissa manna sem heimsóttu landið á tímabili Pol Potstjórnar- innar. Þar sem er rætt sérstaklega um fjölskylduna og sess hennar. Skólar voru til, það er sannað af kvikmynd- um, Ijósmyndum og frásögnum fjölda manna. Sviinn Jan Myrdal tók með sér nokkrar skólabækur sem stjórnin lét prenta fyrir skólabörn. Lyf voru framleidd og einnig flutt inn, m.a. frá Bandaríkjunum. Hljómlist og söngur var ástundaður, m.a. fóru söng- og dansflokkar viða um Evrópu. Og á Stokkhólmsráð- stefnunni 17.—18. nóv. '79 kom fram slíkur flokkur frá Kampútseu. Sögur um lík í vatnsbólum — ,,Þetta er Phnom Penh, sem eitt sinn var iðandi af lifi. . . stærri en Amsterdam. I fjögur ár hefur hún staðið þögul og yfirgefin eins og eftir kjarnorkustríð....” Athugasemdir: Phnom Penh hafði Hverjir jöfnuðu þorpið viðjörðu? „Þetta er förufólkið í Kambódíu, •sem veslast upp á vegunum, soltið, sjúkt, heimilislaust, en reynir að finna sér hæli í þorpunum sem Rauðu Khmerarnir hafa mörg hver jafnað við jörðu. . . .” Athugasemd: Flestir eru sammála um það að þær rústir sem finna má í Kampútseu eru verk bandarískra flugmanna. Flóttamenn hafa ekki sagt sögur um að þorp væru jöfnuð við jörðu. Bandaríski blaðamaðurinn R. Dudman, sem ferðaðist í Kampútseu rétt fyrir innrás Víetnam, sagðist hafa orðið vitni að einu mesta húsbyggingarstarfi sem sögur færu af í nokkru landi. — „Svo virðist sem Pol Pot telji að hann sé einkaerfingi að keisara- dæminu Ankor Wat, en keisarar þess ríktu i þessum hofuni og höllum á 10. öld. Kommúnismi er sárasjaldan nefndur á nafn í hugmyndafræði Rauðu Khmeranna. Þess í stað orðið Ankor, eða skipulagið sem krafðist þrælahalds í landbúnaðarþjóðfélagi þar sem hvorki væru borgir eða vélar. . . ” Athugasemd: Pilger hefur greini- lega frjótt ímyndunarafl. Svo virðist sem hann hafi ekki fylgst ýkja vel með — m.a. er það þekkt að Kommúnistaflokkur Kampútseu gekk undir nafninu Ankalou eða Ankar (hreyfingin — eða samtökin). Enginn hefur minnst á þrælahald — en bandarisku blaðamennirnir Dudman og Becker höfðu orð á þvi að þau sæju enga vopnaða verði yfir fólkinu á ökrunum. Borgir og vélar voru til. M.a. kornu fjölmargir traktorar frá Júgóslaviu, þreski- vélar voru framleiddar í landinu sjálfu, skipasmíðar voru í Kompong Som og erlendir gestir (Dudman, Becker) heimsóttu verksmiðjur. íslenskir sjónvarpsáhorfendur eiga rétt á að vita um þá galla sem eru á frásögn breska fréttamannsins. Það hlýtur að teljast furðulegt að ekki skuli hafa verið umræðuþáttur á eftir sýningu myndarinnar þar sem tals- menn hjálparstofnana og þeir aðilar sem hafa fram að færa rökstuddar athugasemdir við myndina fengju að koma fram. Olt hefur umræðuþáttur og læraskjálfti orðið af minna tilelni í sjónvarpshúsinu. Og í beinu fram- haldi af þeirri betrumbót sjón- varpsins sem hér er farið fram á væri eðlilegt að það tæki til sýningar þær myndir sem til eru um ástandið i Kampútseu fyrir innrás Vietnama. A „Ég tel að myndinni sé meðal annars ætlað að réttlæta hernám Víetnam á Kampútseu.” tæplega 600.000 íbúa fyrir 1970. Amsterdam hefur 900.000 ibúa. Á þeim fjórum árum sem liðu fram að innrás Vietnam voru um 200.000 ibúar komnir til Phnom Penh. — „Vatnsból (í Phnom Penh) menguð af rotnandi líkum ótölulegs fjölda kvenna, karla og barna sem pynduð voru til bana.” Athugasemd: Fjöldi erlendra manna heimsótti Phnom Penh og þar bjuggu einnig erlendir sendiherrar og starfslið. Þessar sögur um lík í vatns- bólum hafa aðeins komið til eftir innrás Vietnama. — „Og hér er eitt grátbroslegasta dæmið þessa alls. Rauðu Khmerarnir bönnuðu alla peninga, en þó höfðu þeir prentað milljónir af þessum glænýju seðlum. Og stuttu áður en Víetnamarnir óku inn í borgina á siðasta ári sprengdu Rauðu Khmer- arnir upp Þjóðbankann. . . ." Athugasemd: Þjóðarbankinn var sprengdur upp 19. apríl 1975. Að sögn Víetnama voru það Rauðu Khmerarnir sem það gerðu, en Pol Potstjórnin segir að það hafi verið leifarnar af sveitum Lon Nol sem gerðu það sem skemmdarverk. Þarna erú nokkuð mörg ár á milli þess sem breski fréttamaðurinn segir og þess sem raunverulega gerðist. Þetta atriði vekur upp -purningar um þckkingu hanv á gangi mála ylirleitt. Hingað til hefur sjónvarpið neitað því.Til er sænsk.dönsk.júgóslavnesk og kanadisk mynd og geta þær sagt okkur meira en sú einhliða mynd af atburðum og ástandi sem hingað til hefur komið á skjáinn. Einnig er til mynd, gerð af Jan Myrdal i september sl., sem lýsir ástandinu á svæðum þeim sem Pol Potstjórnin ræður. Meginatriði málsins í dag Hörmungar Kampútsana eru geysi- legar. Tvö meginverkefni blasa við okkur íslendingum sem öðrum þjóðum sem eiga möguleika á að láta eitthvað af hendi rakna og tjá sig um málin. Við verðum að standa vel við bakið á þeim aðilum sem skipuleggja hjálparstarf — og við verðum að láta hátt í okkur heyrast og krefjast þess að allri erlendri ihlutun verði hætt i landinu og að réttur þjóðarinnar til að ráða sinum málum sjálf sé virtur til hins ýtrasta. Öflugt hjálparstarf slrax. Víetnamska herinn burt. Frjálsar kosningar undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Hjálmtýr Heiðdal teiknari.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.