Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 44

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 44
Stjómarmyndunarviðræður: Flokksforingjamir lásu upp stefnuskrár sínar —Alþýðubandalagið vill forseta Sameinaðs þings Fulltrúar vinstri flokkanna þriggja hittust á laugardaginn og gerðu lítið annað en lesa upp kosningastefnuskrár sínar, hver fyrir annan. Framsóknarmenn sögðu frá tillögum sínum um „niðurtalningu” verðbólgunnar. Alþýðubandalags- menn greindu frá sinni miilifærsluleið. Nýr fundur verður klukkan þrjú i dag. Ólafur R.ignar Grímsson (AB) sagði í morgun að viðræður mundu nú tefjast mjög vegna þingsetningar. Skipa þyrfti í deildir og nefndir og framlengja nokkur lög sem ella rynnu út um áramót. Steingrímur Flermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, kvaðst í morgun enn vera bjartsýnn. Erfitt er að ganga frá forsetakjö X á þinginu. Alþýðubandalagið vill fá forustu Sameinaðs þings en Framsókn mun helzt kjósa að Ólafur Jóhannesson verði þar forseti. Alþýðuflokksmenn standa enn á tillögum sínum um ..þjóðstjórn” við forsetakjör, þannig að kjörið fari eftir stærð flokka á þinginu. Þá fengi Sjálfstæðisflokkurinn forseta Sameinaðs þings. Alþýðuflokksmenn hafa þingflokks- og flokksstjórnar- fundi i dag þár sem afstaða til stjórnarmyndunar og forsetakjörs verður rædd. „Ég tel einsýnt að stefnt sé að því að mynda stjórn, sem sitji að minnsta kosti út kjörtímabilið,” sagði Steingrímur. Hann kvað ekki ástæðu til annars en bjartsýni um stjórnar- myndun. -HH/BS. fijálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 10. DES. 1979. Olían þoldi ekki kuldann á Akureyrí: „Olían er lé- legri en áöuK' — segir Leó Guðmunds- son, starfsmaður Olís „Þessi olía virðist ekki þola t.ema 5—8 stiga frost þá fer hún að krapa. Hún virðist storkna við minni kulda en áður hefur verið,” sagði Leó Guðmundsson, starfsmaður hjá Olís á Akureyri, er DB hafði samband við hann og spurði um ástæður þess að hiti fór af olíukyntum húsum á Akureyri fyrir helgina. „Þaðer orðið lítið af olíukyntum húsum hér á Akureyri þannig að vandamálið varð ekki eins mikið og ella hefði orðið. Ég gæti trúað, að þetta hafi verið 35 hús sem þannig varð ástatt um. Við fórum í þessi hús, sum tvisvar og þrisvar, og reyndum að hita upp leiðslurnar. Einnig reyndum við að setja steinolíu á kerfið. Ég held að við höfum ekki haft svona vonda olíu áður. Venjulega hefur olían þolað a.m.k. 10 stiga frost. Þessi olía er þó góð að því leyti, að hún er hitagóð og ekki eyðist mikið af henni en á móti kemur þessi galli. Eftir því sem meira er af svokölluðu „parafín” storknunarefni í henni er hún hita- drýgri en jafnframt er þá meiri hættu a að hún storkni í frosti,” sagði I co að lokum. -GAJ. Egilsstaðin Tekinn með fíkniefni - við komu frá Færeyjum Ungur maður sem kom til Egils- staða á laugardag með flugvél frá Fær- eyjum var handtekinn við komuna, þar sem tollverðir fundti áhonum efni sem gat verið fíkniefní. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Egilsstöðum fannst efnið við venjulega tollskoðun. Maðurinu' missti hins vegar af vélinni til Reykja- víkur á Laugardag vegna óláta og varð því að hafa hann i gæzlu á Egils- stöðum. Hann var sendur til Reykja- víkur í gær. Þar sem menn á Egils- stöðum voru ekki vissir um hvaða efni hér var um að ræða var það sent lögreglunni í Reykjavík til athugunar. Reyndizt það vera hass. Guðmundur Gígja lögreglufulltrúi i fikniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík sagði í morgun að manninum hefði verið sleppt eftir yfirheyrslu í gær, enda hefði hann verið með mjög lítið magn fíkniefna á sér. -JH. Brutu og brömluðu fyrir hundruð þúsunda Gifurleg skemmdarverk voru unnin í félagsheimilinu Fannahlíð við Akra- fjall aðfaranótt laugardagsins. Þrír nitján ára piltar brutust þar inn og er inn var komið brutu þeir nánast allt sem hægt var að brjóta, salerni, vaska, leirtau og fleira. Tjónið nemur hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum. Frakkland: íslenzk stúlka slas- aðist — ökumaður og annar farþegi fórust Ung íslenzk stúlka slasaðist tals- vert i bilslysi i Frakklandi fyrir hálfum. mánuði. Auk hennar voru í blínum tveir piltar og létust þeir báðir. Fólkið var á leið norður Evrópu frá Sviss til Kaupmannahafnar í bit af gerðinni Volkswagen rúgbrauð. ítalskur piltur ók bilnum og við hlið hans sat Marokkómaður, en islenzka stúlkan var i svefnpoka aftur I bílnum. Unga fólkið hafði lagt af stað að morgni dags og ekið þann dag allan og næstu nótt. Þann morgun um kl. 5.30 var bill- inn á hraðbraut skammt frá Nancy i Frakklandi. Ökumaðurinn mun þá hafa sofnað með þeim afleiðingum að bill unga fóiksins lenti framan á vöruflutningsbifreið, sem kom á móti. Piltarnir létust samstundis, en íslenzka stúlkan slapp með meiðsli. Hún brotnaði á báðum fótum og hlaut önnur meiðslá fótum. Stúlkan hefur dvalið siðan á sjúkrahúsi skammt frá Nancy, en hún er væntanleg hcim i næstu viku. -JH. Áfengi og tóbak hækka Áfengi og tóbak hækkar í dag og cru áfengisverzlanir þvi lokaðar i dag. Samkvæmt upplýsingum Ragn- ars Jónssonar, skrifstofustjóra ÁTVR, hækkar tóbak og áfcngi u.þ.b. um 13%. Venjulegur sigarcttupakki kostar þvi 905 kr. Ódýrasta rauðvin um 2000 kr. hennivin 8000 kr. Vodka Viborova .0.500 og Smirnoff og rússneskur vodki 11.000. Séniver kostar nú 11.500, gin 11.000 og vcnjulegt viski U.IOOkr. -JH. (J.liti -fyrir að um sjö milljónir króna hafi safhazt handa hnrnaheimilinu Sólheimum i Grimsnesi á Jólakonsert '79, sem lialdinn var í gœr. Þrennir hljómleikar voru haldnir og var fullt hús í Háskólabíói i öll skiptin. Þar komu fram margir vinsœlustu skemmti- kraftar og tónlistarmenn þjóðarinnar — eins og t.d. Bjarki Tryggvason, sem hérerá fullri ferð. DB-mynd: Hörður. Hart deilt um verðbætur á kjaramálaráðstefnu ASÍ LÁ VID KL0FNINGI —ráðstefnunni frestað í mánuð Svo harðar deilur urðu um fyrir- komulag verðbóta á kjaramálaráð- stefnu ASÍ í gær, að lá við algerri, sundrungu. „Ég tel hæpið, að samstaða hefði orðið milli ASÍ-félaganna samningagerð, ef meirihlutavaldi hefði verið beitt á ráðstefnunni,” sagði Magnús L. Sveinsson, skrif- stofustjóri Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, i viðtali við DB í morgun. „Deilt var um, hvort nota ætti verðbætur til að jafna launin eða ekki,” sagði Magnús. „Aðrir töldu, að laun hjá félögunum séu ekki svo óskaplega ójöfn, að þess sé þörf. Það væri ekkert grín fyrir okkur verzlunarmenn að fara i samninga- gerð upp á það, að fólk í samsvar-' ándi störfum hjá BSRB fengi hærri laun eins og kom fyrir 1977.” Fulltrúar Verkamannasambandsins vildu, að verðbætur yrði ákveðin krónutala í stað prósentu, þegar kæmi yfir miðlungslaun, þannig að fólk með há laun fengi ekki jafnháa prósentu og fólk með lægri launin. „Þetta byggðu þeir á samþykkt þings Verkamannasambandsins, sem haldið var fyrir skömmu. „Við geirnegldum okkar samþykkt,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambandsins, á kjaramálaráðstefnunni. Afstaða Verkamannasambandsmanna mætti mikilli andstöðu á kjaramáJaráð- stefnunni. BSRB gerir ráð fyrir, að ekkert þak sé á verðbótaprósentum. Þvi töldu margir á ráðstefnunni, að ASÍ gæti ekki komið með lægri- kröfur en BSRB. Að ósk forystumanna Verka- mannasambandsins, Guðmundar J. Guðmundssonar og Karls Steinars Guðnasonar, var kjaramálaráðstefnu ASÍ frestað til 11. janúar. Yfir 20 manna nefnd skyldi á meðan fara ofan í þetta mál. Á ráðstefnunni kom og fram, að fulltrúar láglaunafólks lögðu minna upp úr krónutöluhækkunum en meira upp úr skattalækkunum og félagsmála„pökkum”. -HH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.